m&m kökur
Það sem til þarf er:
40-50 stk.
Ef þú ætlar að gefa þurrefnin í krukku þá vantar, 1.5 L glerkrukka, slaufur og borðar
300 gr. hveiti
1 1/4 tsk. lyftiduft
1/2 tsk. matasódi
1/4 tsk. salt
50 gr. kakóduft
200 gr. púðursykur
170 gr. sykur
1 poki M&M kúlur
1 poku hvítir súkkulaðdropar
1 poki dökkir súkkulaðdropar
Það sem vantar í krukkuna en á að vera í kökunum:
250 gr. ósalt smjör, brætt og kælt
3 egg
80 ml mjólk
2 tsk. vanilludropar
Mér finnst skemmtitlegt að blanda þurrefnunum eða grunninum af góðum kökum eða kexi, í fallega glerkrukku, skreyta og hafa með mér í aðventuboð eða álíka tækifæri fyrir jólin. Þessar kökur eru rosalega góðar og krukkan er svo falleg, þegar þurrefnin eru komin í lögum í hana :-)
En svona geri ég:
Í meðalstórri skál skaltu blanda helmingnum af hveitinu með lyfitdufti, matasóda og salti. Í annarri skál er restinni af hveitinu og kakóinu blandað saman. Svo seturðu sykur, púðursykur, hveiti og kakóblönduna í lögum í krukkuna og þjappar vel ofaná hvert lag (ég notaði kryddglas til þess). Svo koma m&m kúlurnar, svo er súkkulaðidropunum blandað saman og settir efst. Síðan getur þú annaðhvort handskrifað leiðbeining-arnar sem eru hér fyrir neðan, sem er persónulegt og skemmtilegt, eða prenað þær út og lætur fylgja með krukkunni.
M&M SÚKKULAÐIKÖKUR
40 -50 stk.
250 gr. ósalt smjör, brætt og kælt
3 egg
2 tsk. vanilludropar
Hitaðu ofninn í 180°C, og gerðu ofnplötur klárar með bökunarpappír á. Svo er smjöri, eggjum, mjólk og vanilludropum blandað í stóra skál og innihaldi krukkunnar hrært saman við þar til innihaldið er rétt blandað saman. Degið er sett á plöturnar 1 msk. í einu og bakað í 13 mín., K-kurnar eru kældar á plötunni í smá stund áður en þú setur þær á grind til að kólna alveg.