Oreo & súkkulaði- mousse kaka

Það sem til þarf er:

f. 10-12  (f. fleiri ef hún er notuð sem eftirréttur)

Botn:

Smjör til að smyrja formið með

24 Oreo kökur, muldar

90 gr. smjör, brætt

Smá salt

Súkkulaðimúss:

3 blöð matarlím, bleytt upp í  köldu vatni

400 gr. suðusúkkulaði (þetta venjulega frá Nóa Síríus, finnst mér vera best)

Salt, smakka til

7,5 dl rjómi (ath. skipt)

70 gr. flórsykur

Ca. 2 stór box fersk jarðarber, toppurinn skorinn af

 Ganache:

2/3 bolli rjómi

2 bollar saxað suðusúkkulaði 

 Skraut:

Skafið súkkulaði, jarðarber, metallic duft eða anna sem þér dettur í hug.

Úlala..... :-D  Þessi er crazy..  svo flott á borði og þó hún virðist flókin þá er hún það alls ekki, ég lofa.  Ég hef gert hana nokkrum sinnum frá því ég sá  hana fyrst á vefnum hjá DelishÉg hef lagað hana að mínum smekk og gert hana einfaldari.  Hún þarf að geymast í nokkra tíma á boði til að taka sig ef þú gerir hana daginn áður.  Þá verður moussin mjúk og bragðið nýtur sín. Hún mettar marga og er tilvalin eftirréttur eða á fermingarboðið, litil sneið dugar langt. 

Svona geri ég:

Botn:  Lausbotna springform (ca. 24 cm) er smurt að inna með smjöri.  Muldu Oreo kökunum, smjöri og salti er blandað saman í skál. Þjappað niður í botninn á forminu og sett í kæli.  

Súkkulaðimúss:  Matarlímið er bleytt upp í köldu vatni.  Súkkulaðið er sett í hitaþolna skál. 1 bolli af rjómanum er hitaður að suðu í litlum potti, tekinn af hitanum og matalíminu er blandað út í og látið leysast upp í rjómanum.  Heitum rjómanum er hellt yfir súkkulaðið í skálinni og hrært saman við það, þar til súkkulaðið er bráðið og blandan er flauels mjúk. Kælt og hrært í við og við á meðan.  Restin af rjómanum er þeyttur með flórsykrinum, þar til hann er stífþeyttur.  Fjórðungur af súkkulaðiblöndunni er hrærður út í rjómann og blandað vel saman við hann, svo er restinni af þeytta rjómanum blandað varlega saman við.  Þunnu lagi af músinni er smurt ofan á botninn. 

Jarðarber:  Ber sem eru svipuð að stærð, eru skorin í tvennt á lengdina.  Þeim er raðað meðfram forminu svo þau þeki allan hringinn, sárið snýr út að forminu (passa að þrýsta þeim þétt út í formið svo þau loði vel við það).  Svo er fyllt upp í formið með heilum jarðarberjum, sem snúa með af skorna botninn niður.  Restinni af músinni er smurt varlega yfir berin, best er að byrja í miðjunni og vinna sig út og passa að jarðarberið í jaðrinum haldist upprétt og þétt útvið formið.  Þegar öll músin er komi í formið er ágætt að banka forminu létt niður á borð svo hún fari örugglega vel inn á milli berjanna. Sléttað yfir og sett í kæli þar til músin er búin að taka sig og orðin stíf, ca. 4-6 tímar.

Ganach:  Súkkulaðið er sett í hitaþolna skál.  Rjóminn er hitaður að suðu í potti og hellt yfir súkkulaðið og látið standa í um 3 mín.  Svo er hrært í þar til súkkulaðið er mjúkt og alveg bráðið.  Kælt þar til ganachið er alveg orðið kalt og farið að þykkna dálítið.  Því er síðan smurt yfir músina og látið kólna vel.  

Þegar á að bera kökuna á borð, þarf hún að standa á borði í 1-2 tíma svo að músin nái að taka sig og mýkjast aðeins, hún má ekki vera of köld, en kakan þolir vel að standa á borði í einhvern tíma.

ATH:  Allt í lagi að gera kökuna daginn áður, ekki fyrr út af jarðarberjunum.  Ekki hægt að frysta.

Verði þér að góðu :-)

Showstopper 🤩