Jarðarberja- og Mascarpone ostakaka
Það sem til þarf er:
f. ca. 8
1 óbökuð bökuskel (fæst í Kosti) eða þína bestu uppskrift af bökuskel, bakað skv. leiðb. á pakka
250 gr. mascarpone ostur
150 gr. grísk jógurt
150 ml óþeyttur rjómi
3 msk. flórsykur
2 tsk. vanilludropar
2 blöð matarlím
Ofaná og til að skreyta með:
750 gr. sæt jarðarber, topphreinsuð og skorin í tvennt
Enn og aftur er Anna lata á ferð og nældi sér í tilbúna bökuskel :-) Um að gera að stytta sér leið í góðgætið. Fyllingin og sósan eru samt heimagerð, svo dásamleg og fersk með örlítið súrsætri jarðarberjasósunni, jummý....
En svona gerum við:
Bökuskelin er bökuð skv. leiðbeiningum á pakkningu, gott er að pensla óbakaða skel með létt þeyttri eggjahvítu, kælt. Mascarpone osturinn er þeyttur í hrærivél þar til hann er mjúkur og kekkjalaus, þá er grísku jógurtinni bætt úti, ásamt rjóma, vanillu og 1 tsk. af flórsykrinum. Þeytt vel saman þar til þetta er orðið virkilega þykkt, þá er hræran sett í skelina og jöfnuð út. Þakið yfir með jarðarberjum og kælt í a.m.k. 2 tíma. Restin af jarðarberjunum er sett í blandara með 2 msk. af flórsykrinum og maukað. Ostakakan er svo borin fram með jarðarberjasósunni.
Verði þér að góðu :-)
ATH.: Mér hefur stundum fundist eins og fyllingin verði of lin þegar kakan hefur staðið á borði í smá tíma. Þess vegna hef ég bætt 2 matarlímsblöðum við uppskriftina í fyllinguna. 2 blöð af matarlími eru bleytt upp i köldu vatni. Siðan brædd yfir vatnsbaði. 1-2 msk. af fyllingunni er hrært útí matarllímið og svo er því blandað saman við restina af fyllingunni.