Dádýralundir

Það sem til þarf er:

f.4

Dádýralundir

Ca. 600 gr. dádýralundir, himnu hreinsaðar

2 msk. ólívu olía

30-50 gr. smjör

Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar


2 msk. ólívu olía

8 stór hvítlauksrif, óskræld

900 gr. mjölmiklar kartöflu, skrældar og skornar í jafnstóra kubba

50 gr. smjör

2 msk. mjólk

Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar


75 ml. rautt púrtvín

1 msk. balsamic edik

1 msk. hrásykur

1 msk. dökkur púðursykur

1 tsk. ferskt timian, grófsaxað

4-5 stórar bláar plómur, steinninn tekinn úr og skornar í fernt


Dádýra sósa:

Allur afskurður af dádýralundunum

40 gr. smjör

3 dl rauðvín

3 dl nautasoði í fernu

2 stórar greinar af fersku timian

2 msk. bláberjasulta

1 msk. rautt púrtvín

Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar

40 gr. af köldu smjöri í kubbum


Olía til að steikja úr

4-5 jarðskokkar, skrældir og skornir í þunnar sneiðar, á mandólíni

Sjávarsalt

Hvað á að borða um jólin? Þessi spurning bergmálar í hugum margra í desember. Ef maður er með fastar hefðir alla hátíðina, er málið einfalt. Aðfangadagur var í föstum skorðum hjá mér, ég bauð mínu fólki upp á fyllta aligæs með „all the trimmings“, eins og það heitir, en nú skal því breytt. Ekki það að við elskum ekki gæsina, en það er nauðsynlegt að hrista upp í hlutunum, þó það sé bara á tíu ára fresti. Og þá vottar fyrir panikki, hvað á þá að hafa í staðinn?? Í gegnum árin hef ég verið dugleg að prófa allskonar nýjungar á hátíðunum, ástæðan er úrvalið í verslununum. Það ærir óstöðugan að skoða hvað er mikið spennandi til, sem maður hefur hvorki smakkað eða eldað. Svo kemur valkvíðinn, þá rifjast upp hvernig það var að vera krakki í dótabúð og væla í foreldrunum: Má ég BARA velja EITT dót? En, ég hef sannarlega fengið að leika lausum hala í gegnum árin og gert vel við mig og mína. Ég hef prófað að elda antilópu, kengúru, strút, hreindýr, stokkendur, fasana, dádýr, lynghænur, akurhænu, villigæsir, dúfur, grágæsir, villiendur og hjört. Og af þessu úrvali er eitt sem stendur upp úr og það er dádýrið. Það er eitthvað við það sem er svo hátíðlegt, svolítið villt, en samt fínlegt og lekkert. Auka bónusinn er, að það er auðvelt að elda það, miðað við margan annan hátíðamat. Verði þér að góðu!

Svona geri ég:

Dádýralundirnar, aðferð:

Ofninn er hitaður í 110°C. Lundirnar eru snyrtar (geyma allan afskurð). Þær eru settar í fat og nuddaðar með olíunni, plastfilma lögð ofan á þær og látnar standa á eldhúsbekknum í 3-4 tíma. Þykkbotna panna er hituð á háum hita. Lundirnar eru brúnaðar í 2-3 mín. á hvorri hlið, eftir því hversu mikið steikta þú vilt hafa hana, fyrir mig, 2 mín. ekki meira. Þá eru þær settar á ofnplötu í ofninn í 20 mín. Teknar út og látnar standa í 5 mín. Skornar í fallegar, miðlungsþykkar sneiðar og raðað fallega ofan á kúf af hvítlauksmús, síðan er nokkrum plómum og jarðskokka flögum raðað á hvern disk og smávegis af sósu dreypt yfir.

Kartöflumús með ristuðum hvítlauk, aðferð:

Olían er hituð á lágum hita í litlum potti og hvítlauksrifin látnir malla í 8-10 mín., þar til þau eru gyllt og meyr. Kartöflurnar eru soðnar meyrar í söltu vatni í 10-12 mín., þar til þær eru meyrar. Þá er vatnið síað af þeim og þær maukaðar, þar til það er flauelsmjúk áferð á þeim. Síðan er smjöri hrært saman við þær og þynnt með smá mjólk. Hvítlaukurinn er kreistur úr hýðinu og þeyttur vel saman við kartöflurnar. Smakkað til með salti og pipar.

Púrtvínssoðnar vetrarplómur með balsamic gljáa, aðferð:

Púrtvíni, balsamic ediki, sykri og timian, blandað saman í meðalstóran pott. Hitað á lágum hita þar til sykurinn er bráðinn, hrært í við og við. Plómunum er bætt út í og látið malla rólega í 5-8 mín., þar til þær eru mjúkar, en halda lögun sinni.

Dádýra sósa, aðferð:

Afskurðurinn af kjötinu er brúnaður í smjörinu, á sömu pönnu og lundirnar (ekki þvo hana á milli). Rauðvíninu er hellt yfir ásamt timian greinunum, soðið niður þar til það er sírópskennt. Þá er nautasoðinu bætt út í og mallað í smá stund, skafið vel upp úr botninum á pönnunni. Afskurður og greinarnar eru sigtaður frá og hent, púrtvíni og bláberjasultu er hellt út í. Smakkað til með salti, pipar og kryddi. Pannan tekin af hitanum og smjörkubbunum hrært út í, þar til þeir eru bráðnaðir.

Jarðskokka flögur, aðferð:

Dagblað með eldhúspappír á, er gert klárt á borðinu. Þumlungs lag af olíu er hitað í rúmgóðri þykkbotna pönnu. Þegar olían er orðin vel heit, eru jarðskokka flögurnar steiktar í nokkrum skömmtum, þar til þær byrja að taka lit. Þá eru þær teknar upp úr og settar til hliðar á pappírnum, þar til allar eru steiktar. Þá eru forsteiktu flögurnar steiktar aftur, þar til þær eru gylltar. Saltaðar eftir smekk. Þetta má gera nokkrum dögum áður og geyma í vel lokuðu boxi.

Verði þér að góðu :-)

Kjöt

Sósan

Meðlæti

Svolítið villt, en lekkert og ljúft💝