Spænskar grísalundir 

Það sem til þarf er:

F. 4

600 gr. grísalundir

1 grænt epli

2 msk. möndluflögur

1 msk. brauðrasp

1 tsk. sykur

Kanell á hnífsoddi

1/2 tsk. hvítlauksduft

1/2 búnt fersk steinselja

Gróft sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar

Smjör til að steikja uppúr

Það eru oftast smá pælingar um hvað á að hafa í matinn um helgina.  Þessar grísalundir hafa glatt okkur fjölsylduna í gegnum fjöldann allan af árum og gera enn.  Fyllingin er svo skemmtilega fersk og með svolitlum arabískum áhrifum.  Ég ber þær á borð með dásamlegri sveppasósu, smjörbökuðum tómötum  og hasselback kartöflur með láviðarlaufi og hvítlauk.  Dásamleg máltíð sem hægt er að undirbúa fyrirfram, sem ég dýrka...!

Svona geri ég:

Lundin er snyrt og klofin eftir endilöngu, passa að skera ekki í gegn.   Eplið er skrælt og rifið á rifjárni, það er sett í skál, raspi, kryddi og syrki er hrært útí.  Eplamaukinu er dreyft jafnt í skurðinn  á lundinni og hún er síðan bundin saman eða næld saman með litlum steikarprjónum.  Lundin er steikt á háum meðalhita og lokuð á öllum hliðum.  Stungið í 180°C í 15 mín. og fullelduð.  Borin fram með hasselback með lárviðarlaufi og hvítlauk, sveppasósu og smjörbökuðum tómötum.

Verði þér góðu :-) 

Gott um helgina... 😉