Sizzling fajitas

Það sem til þarf er:

f. 4

400 gr. kjúklingalundir

1 græn paprika skorin í strimla

1 rauð paprika skorin í strimla

1 rauðlaukur skorinn í geira

Tortillur (sleppa ef þú ert á keto eða LKL)

Marainering:

1 msk. olía + meira til að steikja uppúr

1 hvítlauksrif, marið

1/2 tks. cumin

1/2 tsk. hvítlauksduft

1/2 tsk. laukduft

Skvetta af Shriacha sósu (ef þú vilt vera 100% keto, skaltu sleppa þessu og setja smá Cayanne pipar til að fá hitann)

Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar.

Guacamole:

2-3 vel þroskuð avocado

1-2 hvítlauksrif, marin

1/2 - 1 rauð chili, fínsaxað

1 lítill rauðlaukur, fínsaxaður

1 vel þroskður tómatur, kjarnhreinsaður og saxaður nokkuð smátt

Ferskt kóríander, fínsaxað

Safi út lime, smakkað til

Salt og svartur pipar

Meðlæti:

Salsa

Sýrðður rjómi

Rifinn cheddar

Lime í bátum

Þú heyrir alveg fyrir þér hljóðið í Sizzler pönnunum, sem þjónarnir hlaupa um með á borðin til kúnnanna, þegar þú hefur verið á mexikönskum stað, ég sný mér alltaf við og hugsa:  " Namm, hvað var þessi að panta sér?  Sizzler pannan er skemmtileg þó ég noti hana alltof sjaldan.  Þessar fajitas eru æði og ef þú ert á keto eða LKL þá sleppir þú tortillunum eða baka keto-vænar tortillur, örugglega fullt af uppskriftum á netinu, ég vel að sleppa þeim.  Ég mæli 100% með guacamoleinu gamalt og vel reynt í mínu vopnabúri, en ef þú átt þitt uppáhald, ekki hika við að nota það.  

Svona geri ég:

Allt í marineringuna er sett í skál og kjúklingalundunum velt uppúr henni og geymt í kæli í um 1 klst.  Guacamoeið er útbúið og plastfilma lögð beint ofaná maukið, svo það dökkni ekki, geymt í ísskáp, þar til þú berð það á borð.  Osturinn er rifinn og allt annað meðlæti er gert klárt.  Ofninn er hitaður á 200°C.  Sizzler pönnurnar eru settað í ofninn og hitaðar í minnst 20 mín.  Lundirnar eru steikar á háum meðalhita þar til þær eru gegnsteiktar á grillpönnu og settar til hliðar á meðan paprikur og rauðlaukur er steikt þannig að það sé enn kröns í þeim, þá er kjúllanum bætt á pönnuna og allt hitað  vel.  Tortillurnar eru hitaðar í ofninum ef þú notar þær.  Sizzler pönnurnar eru teknar úr ofninum, kjúlla og grænmeti skipt á milli þeirra og borið snarkandi og dramatískt á borð.  Meðlætið er borið á borð í litlum skálum, og hjálpa sér allir sjálfið í það.  ískaldur Corona bjór, með limebáti ofaní, skemmir ekki með þessu.

Verði þér að góðu :-) 

Hljómar vel, ekki satt 🤤