Kardemommu chia búðingur

Það sem til þarf er:

f. 2

3 1/2 dl kókos/möndlumjólk

4 msk. chia fræ

1 tappi (1/8) kardemommudropar

1-2 msk. þeyttur rjómi 

Nokkur bláber

Það er gott að vera með marga spennandi morgunverðar valkosti, svo maður stökkvi á fætur fullur tilhökkunar að byrja daginn af krafti. Einn af þessum spennó valkostum eru allskonar bragðbættir chiabúðingar eins og þessi sem er kryddaður með kardemommu,  svo er auðvitað rjómatopppur á honum, af því við gefum ekkert eftir í lúxus og svo nokkur bláber fyrir andoxunina.  Taktu svo nokkrar djúpöndunar æfinga og dagurinn verður æði!

Svona geri ég:

Chiafræunum er skipt á milli glasanna.  Mjólkinni og kardimommudropunum er hræt saman og smakkað til.  Hellt jafnt í hvort glas og hrært vel í.  Mér finnst gott að láta glösin standa í 1-2 tíma á borðinu og hræra í þeim við og við áður en ég set plastfilmu yfir og sting þeim í ísskápinn, amk. yfir nótt en geymist í 2 daga í ísskáp.  Svo setur þú fallega kórónu af þeyttum rjóma ofaná og nokkur marin bláber.

Verði þér að góðu :-)

Gott kick start 🫐