Granóla
Það sem til þarf er:
250 gr. pecanhnetur
60 gr. grófar kókosflögur
150 gr. sólblómafræ
40 gr. graskersfræ
40 gr. sesamefræ
130 gr. hörfræ
1 msk. turmeric
1 msk. kanell
2 tsk. vanilludropar
60 gr. möndlumjöl
2 1/2 dl vatn
0.6 dl kókosolía
Það er gott að vera með nóg af einföldum og hollum valkostum við hendina þegar morgunverðir eru annars vegar. Yfirleitt erum við á mikilli hraðferð og grípum það sem hendi er næst. Ósætt granóla út á gríska jógúrt með slatta af berjum er góð byrjun á deginum. Þú veist nákvæmleg hvað þú settir í granólað svo þú veist að það er enginn dulinn sykur eða annað sem þú vilt ekki að sé í morgunkorninu þínu. Einfalt að búa til og geymist vel. Endilega prófaðu!
Svona geri ég:
Ofninn er hitaður í 150°C. Hneturnar eru saxaðar gróft og síðan er fræunum og möndlumjölinu blandað saman við þær. Kókosolían er brædd á lágum hita í pottisíðan er kryddinu og vanilludropunum bætt útí ásamt vatninu. Hellt yfir hnetu- og fræblönduna og öllu blandað vel saman. Blöndunni er hellt í ofnskúffu og stungið í ofninn í 20 mín. Platan tekin út og hrært vel uppí blöndunni og stungið í ofninn í aðrar 20 mín. eða þar til blanda er orðin nánast þurr. Slökkt á ofninum og platan látin vera í ofninum á meðan hann kólnar. Þegar granólað er orðið alveg kalt er það sett í krukku.
Ég nota oftast frosin ber til að hafa út jógúrtina, ég set það sem ég ætla að nota á disk í örbylgjuna og læt berin þiðna alveg. Síðan mer ég smá hluta af þeim til að láta safann blæða út þá er komin þessi fína ávaxtasósa. Restina hef ég í heilu lagi og svo er slatti af granóla á toppnum, æði...!