Tex-Mex gratín með eggi

Það sem til þarf er:

f. 2

300 gr. kjötafgangar (lambalæri, hryggur, svín eða kjúlli)

30 gr. smjör

1 1/2 msk. Tex-Mex kryddbanda, eða tacokrydd (sykurlaust)

1 dós marðir tómatar

30 gr. niðursoðnir Jalapenos

100 gr. rifinn ostur

4 egg

Meðlæti:

Sýrður sjómi

Steinselja og vorlaukur, saxað

Tex-Mex blanda:

1 msk. chili powder

2 tsk. paprika

2 tsk. malað cumin

1 tsk. hvítlauksduft

1 tsk.laukduft

1/2 tsk. þurrkaðar chiliflögur

1/2 tsk. oregano

1/2 tsk. svartur pipar

Kanell á hnífsoddi

Negull á hnífsoddi

1 tsk. sjávarsalt

Það er oft vandamál hvað á að gera við afganga af kjöti, gera eitthvað girnilegt úr þeim.  Það var oft vandamál að búa til eitthvað nýtt úr afgöngunum, eftir helgarsteikina fyrir fjölluna, annars þýddi ekkert að bjóða þeim upp á þá.  Þessi Tex-Mex réttur er frábær, kolvetnasnauður, svolítið spicy, yljar skrokknum vel og gengur örugglega í krakkana.  Ef þú nennir, þá fylgir með uppskrift af sykurlausri kryddblöndu, sem þú átt örugglega allt til í, svo er gott að eiga smá rest af henni í  krukku þar til næst.

Svona geri ég:

Ofninnn er hitaður í 200°C.  Kjötið er skorið í bita  og steikt á pönnu upp úr smjörinu, kryddað með kryddinu og velt áfram í pönnunni.  Síðan er tómötunum og jalapeno piparnum bætt út á og steikt áfram,  smakkað til með salti og pipar.  Kjötið er sett í eldfastmót, (ekki of stórt) og 4 lautir eru mótaðar í maukið.  1 egg er brotið i hverja laut  og ostinum síðan dreyft yfir.  Bakað í ofninum í 15 mín., þar til osturinn er gylltur en eggin enn mjúk innst.  Saxaðri steinselju og vorlauk dreyft yfir og borið fram með sýrðum rjóma.

Verði þér að góðu :-) 

P.s.  Það er auðvelt að margfalda uppskriftina.

Tex-Mex snilld 🥚🌶️🧀