Kjötbollur og grænt í ofni með hvítlauksbrauði
Það sem til þarf er:
F. 4-6
Í bollurnar:
1/2 kg. nautahakk, eða annað hakk sem þú vilt
1/2 kg. nýtt kjötfars
1 solo hvítlaukur, fín rifinn
1 laukur, rifinn eða fínsaxaður
1 tsk. sjávarsalt
1/2 tsk pipar
1/2 tsk. paprikuduft
1/2 tsk. Montréal seasoning
1/2 tsk. Hamburger sesaoning
Grænt á plötuna:
1 box kirsuberjatómatar
1 poki broccolini greinar, eða venjulegt skorið í lengjur
1 box sveppir
1/4 bolli ólívu olía
1 1/2 tsk. oreganó
1 tsk. rauðra piparflögur
100 gr. fín rifinn Parmesan ostur
Á brauðið:
2-3 langlokubrauð eða 1 snittubrauð
2 sóló hvítlaukar, fín rifnir
Ólívu olía
Vikan er að byrja eftir mestu og lengstu súkkulaðihátíð ársins, páskana. Sem betur fer er vikan stutt, svo maður fer rólega af stað inn í venjulegan ritma. Það er gott að fá venjulegan mat, eftir veislumat síðustu daga, mat sem er fljótlegt að útbúa og koma á borðið. Hér er á ferðinni mjög góður kvöldmatur, tekur enga stund að gera, er hollur og nærandi. Njóttu vikunnar 😊
Svona geri ég:
Bollur og grænt: Ofninn er hitaður í 200°C. Ofnskúffan gerð klár, smá olíu er smurt í botninn á henni. Hakki og farsi er blandað saman í stóra skál. Laukarnir eru rifnir eða skornir fínt og blandað út í það ásamt kryddunum. Bollur eru mótaðar úr deiginu, með desertskeið eða smáköku skammtara (hún er eins og ísskammtari, bara minni) þú færð ca. 35-40 litlar bollur úr deiginu. Þeim er dreift jafnt í skúffuna. Grænmetið er þvegið vel og skorið, ef þarf, í huggulegar stærðir, samt ekki of smátt. Því er svo dreift á plötuna á milli bollanna. Olíunni er drussað yfir, ásamt kryddinu og helmingurinn af ostinum rifinn yfir. Stungið í ofninn og bakað í 20 mín. Þá er bollunum snúið og restinni af Parmesan ostinum dreift yfir og brauðið lagt ofan á bollurnar og bakað áfram í um 20 mín. Borið fram með hvítlauksbrauðinu og auka rifnum Parmesan osti.
Brauðið: Brauðið er klofið eftir endilöngu og hvítlaukurinn er nuddaður inn í skorna flötinn og olíu dreift yfir. Ská skorið í 3-4 bita, fleiri ef þú ert með snittubrauð. Þegar þú er búin, að snúa bollunum er brauðinu stungið ofan á bollurnar og það bakað með bollunum. Ef það er tilbúið áður en bollurnar eru klárar, er brauðið tekið úr ofninum og pakkað í álpappír til að halda því heitu.