Jósafat Sigurðsson

Jósafat Sigurðsson fisksali - á Siglufirði

Jósafat Sigurðsson fæddist á Syðri-Hofdölum í Skagafirði 23. nóvember 1917.

Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 4. október 2006. 

Foreldrar hans voru 

Þóranna Magnúsdóttir, f. 19.8. 1895, d. 30.7. 1968, og 

Sigurður G Jósafatsson, f. 15.4. 1893, d. 5.8. 1969. 

Systkini Jósafats, sem öll eru látin, voru: 

Magnús Hofdal, f. 1916, 

Guðrún Ólafs, f. 1919, 

Guðrún Bergs, f. 1921, 

Hólmsteinn, f. 1924, 

Lilja Ólöf, f. 1926, 

Sigurberg Magnús, f. 1931,

Ósk, f. 1933.

Hinn 21.6. 1947 kvæntist Jósafat 

Margrét G Guðmundsdóttir, f. í Reykjavík 11. desember 1917, d. 2. 9. 1992. 

Foreldrar hennar voru 

Ólína Sigríður Ólafsdóttir, f. 11.5. 1876, d. 22.7. 1928, og 

Guðmundur Jónsson, f. 11.4. 1876, d. 21.10. 1958. 

Börn þeirra Jósafats og Margrétar eru: 

1) Þóranna Sigríður Jósafatsdóttir f. 1947,

maki Jónsteinn Jónsson

2) Sigurður Gunnar Jósafatsson, f. 1949,

maki Ingigerður Baldursdóttir;

3) Elenóra Margrét Jósafatsdóttir, f. 1955,

maki Sigurður H Ingimarsson; og 

4) Þorfinna Lydia Jósafatsdóttir, f. 1959,

maki Þorkell V Þorsteinsson.

Barnabörn Jósafats eru þrettán og barnabarnabörn sex.

Fyrir átti Margrét þrjú börn:

Örn, f. 1938,

Stella, f. 1939, og

Hjördís f. 1943, d. 2000. 

Börn þeirra systkina eru ellefu. Jósafat ólst upp í Skagafirði og starfaði þar á unglings- og fyrstu fullorðinsárum.

Hann flutti til Siglufjarðar upp úr 1940, þar sem hann starfaði lengst af sem fisksali. Frá 1985 hefur hann búið í Reykjavík.

Síðustu tvö árin dvaldi hann á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.  

Jósafat Sigurðsson