Jóhann F. Kárason 

Jóhann Friðrik Kárason var fæddur á Siglufirði. 

Hann var sonur Kára Jónassonar og Fjólu Jóelsdóttur. Hann ólst upp á Siglufirði en fluttist innan við fermingu með foreldrum sínum og eldri systur, Hrund, til Kópavogs. Þar fæddist yngri systirin, Ásdís, og bjó fjölskyldan á Skólatröð 1. Jóhann lauk skyldunámi frá Kópavogsskóla. 

22. ágúst 1990 

Eftir það lá leiðin í Gagnfræðaskóla verknáms, þar lauk hann prófi 1961. Hvanneyri heillaði ungan mann og þaðan varð hann búfræðingur ári síðar. Jóhann lauk vél fræðinámi frá Vélskóla Íslands 1970 og vann fyrstu árin við vél gæslustörf á sjó og síðan vélaviðgerðir í landi. Öllum störfum sinni hann af einstakri trúmennsku, reglusemi og alúð. 

Hann hafði óvenju víðtæka þekkingu á starfi sínu. Jóhann kvæntist Amalíu Þórhallsdóttur 1967 og eignuðst þau fjórar dætur, Ester, Agnesi, Bryndísi Fjólu og Auði Sveinbjörgu. Afastrákarnir eru Birkir sonur Esterar og óskírður sonur Agnesar og Gústa. Fjölskyldan átti fyrst heimaá Brávallagötu 10 en fluttist síðanað Vallhólma 14 í Kópavogi þar sem þau hafa búið.

Jói eins og við kölluðum hann alltaf var góður vinur okkar. Við kynntumst þeim hjónum ung. Karlmennirnir hafa þekkst frá bernskudögum í Kópavogi en við konurnar fléttuðumst inn í þræði þeirra einsog spunnið var. Við unga fólkið giftum okkur sama árið, börn okkar eru á svipuðum aldri og jafnmörg. Samskipti hafa alla tíð verið góð. Ef eitthvað var um að vera þá hittust þessar fjölskyldur. Áhugamálin og umræðuefnin voru fjölbreytt, þó báru umræður um hesta þar höfuð yfir annað. Við keyptum hesthús saman í Gusti og þangað hafa mörg spor Jóa og Björgvins legið. Samvera þeirra með hestunum var þeim báðum dýrmæt. Þar voru hestaferðir ræddar, nýjar undirbúnar og farnar ferðir endurvaktar.

Á kveðjustund er efst i huga þakklæti fyrir að hafa kynnst góðum og traustum manni sem alltaf var reiðubúinn að taka þátt í þvísem var að gerast hverju sinni, öðrum til gleði og hjálpar.

Elsku Amalía og börn. Við biðjum Guð að styrkja ykkur og fjölskylduna alla.

Minning um mætan mann lifir.

Kristín Garðarsdóttir

Björgvin Svavarsson