Albert Þorkelsson

Albert Þorkelsson - Ljósmyndari ókunnur

Albert Hólm Þorkelsson, bakarameistari                

Albert Þorkelsson, fæddist á Siglufirði 29. ágúst 1922. 

Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 12. febrúar 2008. 

Foreldrar hans voru 

Þorkell Kristinn Sigurðsson Svarfdal, f. 8.4. 1881, d. 20.12. 1940, og 

Jóhanna Guðríður Kristjánsdóttir, f. 6.1. 1892, d. 11.12. 1986. 

Systkini Alberts eru 

1) Elenora Þorkjelsdóttir, f. 5.4. 1911, d. 14.6. 1976), 

2) Sigurpáll Þorkelsson, f. 27.2. 1914, d. 3.1. 1996, 

3) Kristján Jóhannes Þorkelsson (Kristján Þorkelsson), f. 29.6. 1917, d. 21.11. 2007, 

4) Margrét Þorkelsdóttir, f. 12.10. 1918, d. 20.9. 2006, 

5) Axel Aðalsteinn Þorkelsson (Axel Þorkelsson), f. 25.11. 1920, d. 17.11. 1993, 

6) Sigurður Þorkelsson, f. 28.2. 1924, d. 28.2. 2007, 

7) Júlíus Þorkelsson, f. 1.7. 1925, 

8) Hansína Þorkelsdóttir, f. 22.4. 1927, d. 9.3. 2005, 

9) Hilmar Þorkelsson, f. 13.10. 1928, 

10) Sigríður Inga Þorkelsdóttir, f. 8.8. 1930, 

11) Elísabet Þorkelsdóttir, f. 21.7. 1932, d. 12.3. 2003 og 

12) Jóhanna Aðalbjörg Þorkelsdóttir, f. 11.11. 1933.

Albert kvæntist árið 1946 

Sigríður Halldóra Guðmundsdóttir frá Súðavík, f. 27.7. 1922. Foreldrar hennar voru 

    Guðmundur Óskar Þorleifsson byggingameistari, f. 6.4. 1884, d. 7.7. 1964 og 

    Ágústína Jónsdóttir, f. 6.8. 1884, d. 13.5. 1957.

Börn Alberts og Sigríðar eru:

1) Ágústína Albertsdóttir, f. 13.4. 1945, maki Sigurður Arason

Börn þeirra eru

2) Drengur, f. 7.1. 1947, d. 11.5. 1947.

3) Katrín Albertsdóttir, f. 18.4. 1948, maki Loftur Jóhannsson

Börn þeirra eru

4) Kristján Þorkell Albertsson, f. 3.5. 1949. Fyrrverandi maki Margrét Sigurþórsdóttir

Börn þeirra eru

5) Annabella Albertsdóttir, f. 17.9. 1952, maki Sigurgeir Erlendsson

Barn Önnubellu og uppeldissonur Sigurgeirs er

Albert ólst upp á Siglufirði. Hann starfaði í Félagsbakaríinu á Siglufirði, fyrst sem sendill og síðar sem bakari. Albert lauk prófi í bakaraiðn frá Iðnskólanum á Siglufirði 1944.Albert og Sigríður bjuggu í Keflavík um árabil þar sem Albert rak bakarí Kaupfélags Suðurnesja frá 1951 til 1961. Albert stofnaði sitt eigið bakarí í Keflavík 1961 og rak það þar til fjölskyldan flutti til Borgarness árið 1965.

Í Borgarnesi annaðist Albert rekstur Brauðgerðar KB til ársins 1988. Eftir að Albert lét af störfum hjá KB starfaði hann hjá tengdasyni sínum og dóttur (Sigurgeir og Önnubellu) í Geirabakaríi þar til hann fór á eftirlaun.Albert var mikill áhugamaður um íþróttir og var góður skíðamaður og badmintonspilari.

Hann var einn af stofnendum badmintondeildar Skallagríms 1973 og var fyrsti formaður hennar. Síðustu 35 árin helgaði Albert þó að mestu golfíþróttinni og var einn af stofnendum Golfklúbbs Borgarness, í janúar 1973, og sat í fyrstu stjórn hans. Albert og Sigríður voru gerð að heiðursfélögum golfklúbbsins árið 1996. Albert og Sigríði var veitt gullmerki ÍSÍ á 90 ára afmælishátíð UMSB í apríl 2002. Albert náði mjög góðum árangri í golfíþróttinni og var m.a. valinn í landslið öldunga í golfi.