Páll Hlöðversson
Páll Hlöðversson vélsmiður
Páll Hlöðversson fæddist á Siglufirði 27. mars 1945.
Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 5. ágúst 2016.
Foreldrar hans voru
Hlöðver Sigurðsson, skólastjóri, f. 29.4. 1906, d. 13.5. 1982, og
Katrín Guðrún Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur,(Katrín Pálsdóttir) f. 10.1. 1907, d. 10.4. 1982.
Systkini Páls eru
Anna Matthildur Hlöðverssdóttir, f. 26.11. 1947,
Sigurður Hlöðversson verkfræðingur, f. 23.7. 1949 og
Þorgerður Hlöðverssdóttir, f. 3.8. 1955.
Páll ólst upp í foreldrahúsum á Suðurgötu 91 á Siglufirði.
Hann lauk gagnfræðaprófi 1962 og nam síðan vélvirkjun á vélaverkstæði Síldarverksmiðju ríkisins. Páll lauk sveinsprófi í vélvirkjun frá Iðnskólanum á Siglufirði 1966 og hlaut meistarabréf í iðninni nokkrum árum síðar.
Páll kynntist eiginkonu sinni,
Rannveig Valtýsdóttir, f. 4.11. 1945, á síldarballi á Siglufirði 1962 og gengu þau í hjónaband þann 6. nóvember 1965.
Foreldrar hennar,
Einarína Jóna Sigurðardóttir, f. 27.2. 1923, d. 31.01. 2015, og
Valtýr Magnússon, f. 12.7. 1924.
Fósturfaðir, Húnbogi Þorleifsson, f. 28.10. 1912, d. 10.3. 2004
Páll Hlöðversson