Síldarverksmiðjurnar´

Til vinnu hjá SR 1950 + Drukknun ! + Raufarhöfn 1959 + SeyðisfjörðurLöndunarbryggjan Langa töng + Ýmislegt heima á Sigló + Hætti en kom aftur  + 

Ýmsar ljósmyndir tengdar SR + Sigló Síld + Starfsmenn SR og fleira + Myndir SR Raufarhöfn + Myndir SR Seyðisfjörður 

Síldarverksmiðjur ríkisins og..............

Ég held ég fari nálæt því, að samtals með hléum, þá hafi ég unnið há Síldarverksmiðjunum í um 36 ár.

þekkja nokkuð vel til á þeim slóðum sem Síldarverksmiðjunum tengist, þar með vera mín sem timburmaður á Haferninum frá 1966-1970 - Haförninn var í eigu Síldarverksmiðja ríkisins.

Starfsmaður á Lager SR  júní - júlí 1950

Starfsmaður í Mjölhúsi SR júlí - september 1950-1956

Verkamaður/bílstjóri á Keflavíkurflugvelli haustið 1953 fram á vor 1954

Blönduð vinna (stopul að vetri til) hjá SR + mjölhúsið á sumrin 1954

Frystihús SR á vetrum, ekki fastráðin. 1954-1956

Hjálpakokkur á togaranum Elliða SI 1. - 13 daga túr 1955

Afgreiðslumaður hjá Veiðarfæraverslun Sig Fanndal 1956-1958

Vinna við trésmíðar og fleira hjá SR- / Páll Jónson 1959-1966, fastráðinn

Timburmaður á Haferninum (SR) 1966-1970  (frítími á milli meðtalinn)

Starfsmaður á Vélaverkstæði SR, samhliða kranastjórn og umsjón. 1970-1974

Kranastjóri og framkvæmdastjóri + eigandi að hluta, Krani sf) 1974-1978

Bifreiðastjóri á eigin vörubíl á Bílastöð Siglufjarðar 1978-1979 (hluta beggja ára)

Timburmaður á flutningaskipinu Hvalvík  (um 9 mánuði, megnið erlendis) 1979

Aftur á Vélaverkstæði SR 1979-1982

Kvikmyndahúseigandi, ásamt fjölskyldu; Nýja Bíó - 1982-1991 - (Valbjörn og Alla tóku við rekstrinum, seldium 1999)

Of svo aftur til SR 1991, þá lagermaður og síðan lagerstjóri 1999 til 2003 er starferlinum á launalista lauk, þá 69 ára. (Lagernum var lokað endalega)

Fyrir og á  milli þessarar upptalningar fékk ég alltaf vinnu hjá SR, þar sem sé nærri fljótlegra að telja hvað ég hefi EKKI fengist við, frekar en að telja það upp sem ég hefi prófað á þeim vettvangi.  Ýmsa aukavinnu aflaði ég mér, utan SR, bæði vegna síldarsöldunar og fleira sem ástæðulaust er að nefna frekar hér.

Stiklað er á stóri frá veru minni hjá SR + SR-Mjöl hf. og síðar Síldarvinnslunni, sem höfðu yfirtekið hið upprunalega fyrirtæi, SR