Þóroddur Guðmundsson,fæddur á Siglufirði 21. júlí 1903, dáinn 3. október 1970. Foreldrar: Guðmundur Jörundsson (fæddur 31. ágúst 1879, dáinn 9. nóvember 1912, drukknaði) skipstjóri, síðar útvegsbóndi á Þönglabakka og kona hans Sigríður Sigurðardóttir (fædd 23. júlí 1876, dáin 7. desember 1957) húsmóðir. Mágur Áki Jakobsson alþingismanns og ráðherra.
Maki (sambúð): Halldóra Eiríksdóttir (fædd 26. ágúst 1913, dáin 27. mars 1992) húsmóðir
Foreldrar: Eiríkur Bóasson og kona hans Elín Elísabet Engilbertsdóttir. Börn Þóroddar og Halldóru: 1) Margrét Þóroddsdóttir (1937), 2) Eiríkur þóroddsson (1941), 3) Guðmundur Jörundsson Þóroddsson (1948),
4) Steinþór Þóroddsson (1954).
Þóroddur var sjómaður á Siglufirði um langt skeið, en rak þar síðan útgerð og síldarsöltun. Starfsmaður verkalýðsfélaganna á Siglufirði um tíma.
Sat í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins frá 1944 til æviloka.
Landskjörinn alþingismaður (Eyfirðinga) 1942–1945 (Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn). (Varaþingmaður, tók sæti á Alþingi 19. nóvember 1942 vegna forfalla Þórðar Benediktssonar og sat á þingi til 14. nóvember 1945.)
2. varaforseti sameinaðs þings 1945. Ritstjóri: Verkamaðurinn (1934–1938).
Heimild og ljósmynd: Vefur Alþingis