Barnalistasmiðja


sksiglo.is | Afþreying | 02.08.2015 | 12:00 | Jón Ólafur Björgvinsson


Myndasyrpa: 

BARNALISTASMIÐJA

Sköpunargleði réði ríkjum í Alþýðuhúsinu 

Á föstudaginn var opnuð listasmiðja fyrir börn í Alþýðuhúsinu og tók Aðalheiður Eysteinsdóttir á móti um 90 manns í þremur hollum á milli kl: 13 - 16.

Þegar fréttaritari kom í þriðja hollið var mikið fjör í húsinu.

Hamrað, skrúfað, límt og sagað í öllum skúmaskotum sem hægt var í húsinu.

Börnin voru stoltir listamenn og sýnu verk sín ófeiminn og svo virtist vera að margir foreldrar gleymdu sér alveg og urðu listskapandi börn sjálf.

Allir með að smíða 

Þessi lista stelpa rétt leit upp við myndartökuna þetta er svo gaman sagði hún. 

Aðalheiður listakona gekk á milli gesta með blóm í hárinu og með sína frægu lista svuntu og aðstoðaði og gaf góð ráð. 

Allskonar kubbar og spýtur virtust vera til á endalausum lager hjá Aðalheiði. 

Hamrað á fullu, pabbi fylgist með og Amma Fríða situr í bakgrunninum og syngur og spilar á harmonikkuna. 

Þessar ungu listakonur voru með sýningu fyrir sunnan hús. 

Pabbi má saga, því sögin er svo stór.