mbl 21. september 1971
Jóhann Garibaldason
Fæddur 23. desember 1895. Dáinn 10. september 1971
Það líður að því, að minningin ein geymi lýsingu á lífsbaráttu kynslóðar Jóhanns Garibaldasonar. Með hverjum slíkum manni hverfa dýrmæt söguleg verðmæti skrifuð i slóð sögunnar, en oftast óskráð og gleymd að öðru leyti. Jóhann lifði á viðburðaríkri ævi tvenna tíma. Hann var borinn I þennan heim fyrir aldamót, þegar lífsbaráttan var hörð og átakasöm, en náði snemma, sökum mannkosta og dugnaðar að verða bjargálna maður.
Foreldrar hans, þau hjónin Garibaldi Einarsson og Margrét Pétursdóttir, trúðu á landkosti byggðarlags síns og hófu búskap að Mannskaðahóli í Sléttu hlíð í Skagafirði. Þar munu hafa fæðst elstu systkin Jóhanns, en barnahópurinn átti eftir að verða stór. 1894 flytjast foreldrar Jóhanns að Fagranesi í Sauðárhreppi, þar sem þau dvöldu eitt ár. En Út-Skagafjörður hefur verið þeim fyrirheitna landið, því að árið 1895 flytjast þau Garibaldi og Margrét og sest nú fjölskyldan að í Málmey á Skaga firði.
í Málmey fæddist Jóhann og dvaldist fjölskyldan þar í fjögur ár, því næst var flutt að Miðhóli í Sléttuhlíð. Örlagaríkast fyrir fjölskylduna var, er hún 1908 ákvað að setjast að á Engidal vestan Siglufjarðar, litlu dalverpi hömrum girtu á brattri strandlengju við opið haf til norðurs. Hér gátu verið miklir möguleikar með hrausta og dug mikla syni, því að sjórinn gat oft verið gjöfull. Hér varð fjölskyldan að vera sjálfri sér nóg með flesta hluti, því aðdrættir allir voru erfiðir, yfir fjallveg að fara til næsta kaupstaðar og föng til sjávar að sækja frá hafnlausri brimasamri strönd.Það var héðan, sem Jóhann átti flestar bernskuminningar sínar, þar sem hann sjálfur var þátt takandi í baráttunni við óblíða náttúru til lands og sjávar. En vegna dugnaðar fjölskyldunnar mun ekki hafa verið skortur á heimilinu, þrátt fyrir þungar búsifjar sum árin. Einn veturinn féllu allar ærnar úr hor og sjúkdómi. Harður vetur hafði komið í kjölfar lélegs sumars og hey, sem náðust reyndust kjarnlaust fóður. Fóðurbæti var ekki að fá og fjaran brast til beitar.
Jóhann Garibalda
Ljósmynd; Kristfinnur Guðjónsson
Hér var barnahópurinn orðinn stór, níunda barnið fæddist árið sem flutt var á Engidal, en systkinin voru þessi: Einar Garibalda f. 1888, Pétur Garibalda f. 1890, Hallur Garibalda f. 1893, Jóhann Garibalda f. 1895, Pálína Garibalda f. 1897, Anna Garibalda f. 1900, Ásgrímur Garibalda f. 1901, Indiana Garibalda f. 1904, Óskar Garibalda f. 1908.
Dýpst grópuð í huga Jóhanns voru atburðir og atvik er reyndu á karlmennsku, æðruleysi og þol. „Landsins forni fjandi" átti sinn þátt í að móta þessar minningar hans, enda var hann tíður gestur við bæjardyrnar á Engidal, stundum vetur eftir vetur. Þeir bræður þurftu ásamt föðurnum að draga mörg í bú, þótt ís legðist að. Var þá ef til vill gengið á landföstum ís fram á sextugt dýpi, ef ekkert aflaðist nær.
If no fish were caught on such trips, a bird or duck came to the rescue. No one who knows it is surprising that a cottage like Engidalur did not feed such a large family as it had become there. After all, the children had begun to wander away from home, to school for temporary stays or to the rescue on their own account. Jóhann left his parents' house around the age of confirmation. He thought it would be best served by placing him with his dear uncle, Ásgrímur Einarsson, a fishery farmer, then living at Yzthóll in Sléttuhlíð, and later at Ás in Hegranes. Jóhann had a great liking for this uncle of his and remembered him with respect and gratitude. With Asgrim Jóhann learned seamanship, and was with him on his ship for many seasons. Among other things, they fished for sharks off the north and west of Iceland on 25-tonne vessels, which were considered large vessels in those days.
Báru þeir Jóhann og Ásgrímur gagnkvæmt traust hvor til annars og gerði Ásgrímur Jóhann að stýrimanni á skipi sínu. Sjómennsku stundaði Jóhann á ýmsum skipum og dvaldi þá oft langdvölum að heiman. Mun þá oft ýmislegt hafa borið við, sem hetjudáð teldist í dag. Það mun hafa verið síðla vetrar árið 1915 í hákarlalegu að hafís hrakti skip Jóhanns ásamt fleiri skipum inn á Ingólfsfjörð á Ströndum.
Skipshöfnin var að verða matarlaus og bændur á nærliggjandi bæjum ekki aflögu færir. Var þá ákveðið að þeir yngri og hraustari af skipshöfninni skyldu freista þess að ganga frá skipi alla leið til heimila sinna á Norðurlandi, en hinir eldri og þeir er ekki treystust til þess að ganga skyldu bíða um borð til vors er ísa leysti og sigla þá til heimahafnar. Jóhann var einn hinna gangandi. Gengu þeir næturlangt á aðra viku, en fengu afnot af rúmum fólks um miðjan daginn, á hinum ýmsu bæjum. Ekki var ferðin átakalaus, en heim náðu þeir um síðir.
Árið 1918 fregnar Jóhann lát föður síns á Engidal. Missti móðirin þar eiginmanninn og fyrirvinnuna, sem þá var 54 ára. Var þá rætt um að móðirin og það sem heima var af fólkinu flyttist til Siglufjarðar. Af þeim flutningum varð ekki í lifanda lifi. Í byrjun aprílmánaðar árið 1919 veitti Siglfirskur formaður, sem leið átti með landi við Engi dal því athygli, að ekki var allt með felldu með bæjarhúsin. Þau virtust horfin, nema hvað sáust þústir á víð og dreif. Gerði formaðurinn viðvart og var leiðangur gerður út til athugunar.
Aðkoman var ljót. Snjóflóð hafði fallið úr fjallinu ofan við bæinn og gjöreytt öllu lífi.
Þessi atburður verður ekki rakinn hér frekar, enda svo mörgum kunnur. Hér fórust móðir Jóhanns, Margrét, þrjú systkin hans, þau Pétur, Pálína og Anna, mágur hans, öldruð stjúpa móðurinnar og ungt fósturbarn. Þar sem skammt var liðið frá fráfalli föðurins mátti segja að skammt væri stórra högga í milli enda slysið einstakur hörmungaratburður.
Þessi atburður hafði djúp áhrif á systkinahópinn, sem eftir lifði eins og geta má nærri og jók enn meir á samheldni þeirra og systkinakærleik. Þau af systkinum Jóhanns, sem nú lifa eru Hallur og Óskar, búsettir á Siglufirði, Ásgrímur, búsettur á Akureyri og Indíana búsett í Reykjavik. Að hörmungaratburðum fráskildum var Jóhann Garibaldason gæfumaður til hinsta dags. Hann var maður vel af Guði gerður. Þéttur á velli, herðabreiður, friður sýnum og hraustmenni á yngri árum.
Honum voru mannkostir og dugnaður í blóð bornir. 10. október 1920 giftist Jóhann Önnu Gunnlaugsdóttur frá Siglufirði. Hún var dóttir hjónanna Gunnlaugs Þorfinnssonar og Þóru Helgadóttur, sem bjuggu lengst af í Siglufirði. Anna og Jóhann reistu sér litið og snoturt hús að Eyrargötu 28 í Siglufirði og bjuggu þar til ársins 1944 að þau keyptu húseign að Hafnargötu 20 þar í bæ. Anna var ekki eftirbátur Jóhanns að kostum, þótt á öðrum sviðum væri. Hún bjó manni sínum og börmum fyrirmyndar heimili og vakti yfir velferð þeirra með umhyggju og umsjá. Mannúð hennar náði út fyrir veggi heimilisins, því að þegar heimilið var aflögufært nutu þeir, sem vanmáttar voru þess. Hún naut þess að gefa og sjá öðrum líða betur. Að mannúðar- líknar- og félagsmálum starfaði hún á Siglufirði meðan heilsa og aldur entust.
Á sambúð þeirra hjóna bar aldrei skugga. Fyrstu hjúskaparárin stundaði Jóhann sjómennsku og ýmis önnur störf eða allt til 1930. Hófst þá nýr starfsferill i lífi hans, er hann réðist til Síldarverksmiðja ríkisins, sem þá voru að byggja fyrstu Síldarverksmðjunni. Fljót lega gerðist Jóhann ársmaður hjá S.R. og var honum falið að sjá um lýsisvinnsluna í hinni nýju verksmiðju.
Hefur það reynst Jóhanni létt starf miðað við það, sem síðar varð, er S.R. færðu út kvíamar og byggðu og keyptu fleiri verksmiðjur. Varð það þá hlutverk Jóhanns að sjá um lýsisvinnsluna í þeim öllum, allt frá því að hráefnið var tekin var mikil, því að margir hafa komin í skip til útflutnings. Síldarlýsi var þá ein helsta út flutningsvara þjóðarinnar og því mikil gjaldeyrisverðmæti sem fóru um hendur Jóhanns eftir því sem árin liðu. Ábyrgðin var mikil, því margir hafa notið brauðs þar af.
Auk þess að hafa verkstjórn á hendi, varð Jóhann að hafa umsjón með margbrotnum tækjum tilheyrandi lýsisvinnslunni og sjá um viðhald á þeim. Komu þá útsjónarsemi og lagni hans að góðu haldi, sérstaklega þegar gjaldeyrisskortur háði innflutningi á varahlutum og tækin varð að nota á hverju sem gekk. Lán er hverri stofnun að fá starfsmann á borð við Jóhann. Hann gaf sig óskiptan að öllu sínu starfi og afkastaði margföldu verki.
Á síldarsumrum lagði hann lengi vel nótt við dag, við störf og stjórnun, án þess að nokkur aukagreiðsla kæmi fyrir. Hann vildi sjá því borgið, sem honum var trúað fyrir. Sérhæfing hans olli því, að honum voru allar stundir ónæðissamar, hvort heldur var nótt eða dagur, vetur eða sumar. Ósjaldan var leitað til hans vegna í fjarlægra byggðarlaga. Þurfti þá ráð frá reyndum manni við að byggja nýja verksmiðju eða koma í veg fyrir og lagfæra mistök.
Enda þótt erindisbréf Jóhanns gerði ráð fyrir miklum ákvörðunarrétti hans sjálfs í starfi, var samvinna hans við forstjóra og framkvæmdastjóra S.R. með miklum ágætum. Hann virti menntun þeirra og stöðu og þeir mátu reynslu hans og hæfni. Hann var góður leiðbeinandi og stjórnandi og hafði fullan skilning á aðstæðum undirmanna sinna. Undir stjórn hans var gott að vinna. Á vetrum vann hann, sem og aðrir fastir starfsmenn S.R., að undirbúningi síldarvertíðarinnar. Fluttist þá vettvangur hans inn á vélaverkstæði S.R. á Siglufirði.
Urðu kynnin milli föstu starfsmannanna þar nánari en sumarið gat gefið tilefni til. Jóhann eignaðist þar trausta vini og hélst sú vinátta ævilangt. Nokkrir voru horfnir á undan honum og minntist hann þeirra með þakklæti. Starfsmaður síldarverksmiðjanna var Jóhann til ársins 1966, eða samfellt í 36 ár, að hann fluttist til Reykjavíkur. Bjó hann þar hjá dóttur sinni og tengdasyni til dauðadags. í Reykjavík starfaði hann síðustu árin hjá olíufélagi við afgreiðslustörf.
Konu sina missti Jóhann árið 1964. Börn þeirra voru: Þór, giftur Elinu Eyfeils, Jónína, gift Sigurþór Þorgilssyni kennara og Margeir giftur Silly Samúelsdóttur, sem öll eru búsett í Reykjavik. Dóttursonurinn Þorgils naut ástríks þeirra og umhyggju til fermingaraldúrs, er hann fluttist til foreldra sinna. Hugðarefni átti Jóhann en fékk illa notið þeirra sökum anna, þar sem hann var sístarfandi að skyldustörfum allt sitt líf. Hann hafði yndi af náttúru og öllu kviku og vissi margt um einkenni og sérstæða lifnaðarhætti dýra.
Hann leitaði á vit náttúrummar þegar hann fékk tækifæri til. Sérstaklega var Skagafjörðurinn honum hugleikinn, enda æskustöðvar hans. Margar ferðir átti hann upp í Hegranes þegar um hægðist síðustu árin. Þar voru ættingjar og vinir svo til á hverjum bæ og þar var snertingin við náttúruna svo ósvikin. Í veraldlegum efnum taldi Jóhann jöfnuð farsælustu lausnina í sambúð manna og einlæga Guðs trú bar hann innra með sér. í byrjum þessa árs fór heilsa Jóhanns að bila. Þegar honum varð Ijóst að hverju dró tók hann því með þeirri karlmennsku, æðruleysi og jafnaðar geði, sem einkennt hafði líf hans allt.
Hann andaðist 10. september. Sérstakar þakkir frá honum flytja aðstandendum hans ölum þeim, sem veittu honum sjúkum hjúkrun og gerðu honum veikindin léttbærari, svo og öllum þeim, sem heimsóttu hann á sjúkrahúsið. Systkinum þakkar hann órofa tryggð, svo og frænd fólki og vinum öllum. Að lokum skal Jóhanni sjálfum þökkuð ást alúð og umhyggja og tryggð við börnin, tengdabörnin og barnabörnin.
Sigurþór Þorgilsson
+++++++++++++++++++++++++++++++++
Jóhann Garibaldason
The Descendants of Einar Ásgrímsson and His Women
Guðmundur Jóhann Garibaldason
Niðjatal Guðmundar Jóhanns Garibaldasonar og Guðrúnar Önnu Guðlaugsdóttur, Siglufirði
Forsíða (frontpage) | Saga | Niðjatal (pedigree, stammbaum) | Ungar (newborn, neugeborene) | Framætt (Ahnen, ancestors) | Kristbjörg Jónsdóttir | Margrét Jónsdóttir | Sigurbjörg Magnúsdóttir | Sigurbjörg Jónsdóttir | Myndir (photos, bilder) | Heimasíður (Links) | Afmælisdagar (birthdays, geburtstags) | Contact | From Adam and Eve | Frosti | Kristbjörg Einarsdóttir
Guðrún Anna Guðlaugsdóttir og Guðmundur Jóhann Garibaldason
ásamt börnum sínum:
Margeir Garibalda. Jónína Garibalda og Þór Garibalda
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Guðmundur Jóhann Garibaldason, f. 23. des. 1895, d. 10. sept. 1971, vkm Akureyri og Reykjavík.
~ Guðrún Anna Gunnlaugsdóttir, f. 29. mars 1898, d. 4. apríl 1964, Reykjavík.
For.: Gunnlaugur Þorfinnsson, f. 7. ágúst 1869, d. 14. des. 1945, Bóndi Máná Úlfsdölum ov og k.h. Þóra Helgadóttir, f. 19. ágúst 1864, d. 28. mars 1943, Máná ov.
Börn þeirra:
a) Þór Garibalda, f. 31. jan. 1925,
b) Jónína Garibalda, f. 23. maí 1930,
c) Margeir Pétur Garibalda, f. 2. ágúst 1932.
a Þór Jóhannsson, f. 31. jan. 1925, d. 3. maí 2010, Húsgagnabólstrari Reykjavík.
- K. 19. júní 1948, Elín Rannveig Eyfells, f. 16. nóv. 1926, Reykjavík.
For.: Eyjólfur Jónsson Eyfells, f. 6. júní 1886, d. 3. ágúst 1979, listmálari Reykjavík og k.h. Pála Ingibjörg Eyfells, f. 4. des. 1895, d. 24. febr. 1977, hannyrðakona Reykjavík.
Börn þeirra:
a) Anna Kristín, f. 28. okt. 1949,
b) Jóhanna Sólveig, f. 5. febr. 1951,
c) Ingibjörg Eyja, f. 25. maí 1952,
d) Jóhann Garibaldi, f. 29. ágúst 1953,
e) Eyjólfur Einar, f. 5. febr. 1961.
aa Anna Kristín Þórsdóttir Eyfells, f. 28. okt. 1949, Manhattan NY USA.
- M. 1970, (skilin), Robert Neylan Gaffney, f. 1948 Usa, Bandaríkjunum.
- M. 15. ágúst 1980, Franco Marinai, f. 15. febr. 1948 Florens Ítalíu, kvikmyndargerðarmaður Manhattan Ny USA, frá Ítalíu.
Börn þeirra:
a) Matilde Ella, f. 2. jan. 1985,
b) Chiara Ebe, f. 25. nóv. 1989.
aaa Matilde Ella Nuvola Marinai, f. 2. jan. 1985, Manhattan NY USA.
aab Chiara Ebe Eyja Marinai, f. 25. nóv. 1989, NY.
ab Jóhanna Sólveig Helga Þórsdóttir, f. 5. febr. 1951, Torremolinos Spáni, hefur fellt niður nöfnin Jóhanna Helga.
- M. 1. jan. 1972, Jose Antonio Tome Ares, f. 13. ágúst 1944, vélvirki Torremolinos Spáni.
For.: Manuel Tome, f. um 1915, Torremolinos Spáni og k.h. Carmen Tome, f. (1917), Torremolinos.
Börn þeirra:
a) Manuel Þór, f. 6. júlí 1972,
b) Ingibjörg Irena, f. 7. apríl 1977,
c) Elísa Rakel, f. 27. apríl 1986.
aba Manuel Þór Tome, f. 6. júlí 1972, endurskoðandi Spáni.
- K. 3. maí 1997, Purificacion Tolanda Puig Sánchez, f. 5. apríl 1971, innanhúsarkitekt Torremolinos.
abb Ingibjörg Irena Tome, f. 7. apríl 1977, bókari Torremolinos Spáni.
abc Elísa Rakel Tome, f. 27. apríl 1986, London, atvinnuráðgjafi Torremolinos.
- M. 28. mars 2008, Gonzalo Hector Losada Silva, f. 20. maí 1985 Argentínu, bifvélavirki Torremolinos Spáni.
ac Ingibjörg Eyja Þórsdóttir Eyfells, f. 25. maí 1952, Kennari Enköbing og Västerås Svíþjóð.
- M. 11. júní 1973, (skilin), Berndt Torbjörn Kvist, f. 13. okt. 1949, flugvirki Enköbing Svíþjóð.
For.: Tore Kvist, f. (1919), Svíþjóð og k.h. Anna Elisabet Kvist, f. (1920), Svíþjóð.
Börn þeirra:
a) Elín Elísabet, f. 23. júní 1974,
b) Stefan Mikael, f. 23. mars 1976.
aca Elín Elísabet Eyfells Kimland, f. 23. júní 1974, hjúkrunarfræðingur Bro, Västerås.
- M. 15. júní 2002, Johan Martin Kimland, f. 12. jan. 1972, framkvæmdastjóri Bro Svíþjóð.
Börn þeirra:
a) Johan Oliver, f. 7. sept. 2003,
b) Aron Henrik, f. 7. sept. 2006.
acaa Johan Oliver Kimland, f. 7. sept. 2003, Svíþjóð.
acab Aron Henrik Kimland, f. 7. sept. 2006, Svíþjóð.
acb Stefan Mikael Eyfells, f. 23. mars 1976, Solna Svíþjóð.
ad Jóhann Garibaldi Þórsson, f. 29. ágúst 1953, Reykjavík.
- Barnsmóðir Hafdís Einarsdóttir, f. 4. sept. 1963, vkk Reykjavík.
For.: Einar Sigurjón Björnsson, f. 1. júlí 1929, d. 25. apríl 1976, Reykjavík og Kristín Ingimundardóttir, f. 5. júlí 1929, d. 11. mars 1995, Reykjavík.
Börn þeirra:
a) Ása Kristín, f. 3. jan. 1985,
b) Sigurdís Rós, f. 18. febr. 1988.
ada Ása Kristín Jóhannsdóttir, f. 3. jan. 1985, Reykjavík.
- Barnsfaðir Daníel Unnar Vignisson, f. 18. júní 1983, trésmiður Kópavogi.
For.: Vignir Ragnarsson, f. 1. maí 1960, Kópavogi og k.h. Hildur Daníelsdóttir, f. 20. sept. 1962, Kópavogi.
Barn þeirra:
a) Snædís Lilja, f. 26. des. 2010.
adaa Snædís Lilja Daníelsdóttir, f. 26. des. 2010.
adb Sigurdís Rós Jóhannsdóttir, f. 18. febr. 1988, Reykjavík.
- Barnsfaðir Guðmundur Þór Gíslason, f. 22. ágúst 1986.
Faðir: Gísli Gissur Ófeigsson, f. 15. sept. 1952.
Barn þeirra:
a) Gísli Óðinn, f. 6. ágúst 2021.
adba Gísli Óðinn Guðmundsson, f. 6. ágúst 2021 Reykjavík.
ae Eyjólfur Einar Eyfells Þórsson, f. 5. febr. 1961, d. 4. nóv. 1988, Bifvélavirki Reykjavík.
- K. 10. maí 1986, Ingibjörg Jóhannsdóttir, f. 22. febr. 1963, kennari Reykjavík og Njarðvík.
For.: Jóhann Eyjólfsson, f. 11. júní 1928, málarameistari Reykjavík og k.h. Sigríður Ásgeirsdóttir, f. 19. jan. 1925, d. 20. okt. 1999, verslunarmaður Reykjavík.
Börn þeirra:
a) Jóhann, f. 18. apríl 1987,
b) Eyrún Harpa, f. 2. febr. 1989.
aea Jóhann Eyjólfsson, f. 18. apríl 1987, Njarðvík.
aeb Eyrún Harpa Eyjólfsdóttir Eyfells, f. 2. febr. 1989, Kaupmannahöfn.
- M. (óg.) Aðalsteinn Sigurðarson, f. 26. okt. 1983.
Barn þeirra:
a) Aðalsteinn Thor, f. 15. jan. 2018.
aeba Aðalsteinn Thor Aðalsteinsson, f. 15. jan. 2018.
b Jónína Jóhannsdóttir, f. 23. maí 1930, Reykjavík.
- M. 2. júní 1949, Sigurþór Þorgilsson, f. 30. mars 1928, d. 8. ágúst 2015, kennari og atvinnurekandi Reykjavík.
For.: Þorgils Guðmundsson, f. 7. apríl 1898, d. 6. febr. 1985, Bolungarvík 1930 og k.h. Katrín Sigurðardóttir, f. 30. des. 1896, d. 21. ágúst 1975, Bolungarvík 1930.
Börn þeirra:
a) Þorgils, f. 21. apríl 1950,
b) Jóhann Ólafur, f. 21. apríl 1950,
c) Anna, f. 2. ágúst 1951,
d) Þóra, f. 25. maí 1954,
e) Ársæll, f. 1. febr. 1957,
f) Jóhann, f. 22. febr. 1965.
ba Þorgils Sigurþórsson, f. 21. apríl 1950, Vélvirki Akranesi.
- K. 22. júlí 1972, Eygló Tómasdóttir, f. 9. júní 1951, Akranesi.
For.: Tómas Jónsson, f. 1. apríl 1916, d. 19. nóv. 2006, Skipasmiður, sjómaður Sandvík Akranesi og k.h. Sigrún Stefánsdóttir, f. 11. ágúst 1917, Sandvík Akranesi.
Börn þeirra:
a) Sigrún, f. 11. júní 1973,
b) Sigurþór, f. 7. júlí 1975,
c) Anna Þóra, f. 27. maí 1981.
baa Sigrún Þorgilsdóttir, f. 11. júní 1973, Hafnarfirði.
- M. 7. sept. 2002, Björn Knútsson, f. 30. des. 1971, Hafnarfirði.
For.: Guðjón Knútur Björnsson, f. 1. maí 1930, d. 26. ágúst 2014, Lýtalæknir Hafnarfirði og Anna Þóra Þorláksdóttir, f. 5. júní 1931, Reykjavík.
Börn þeirra:
a) Eygló María, f. 29. sept. 1995,
b) Róbert, f. 31. ágúst 2004,
c) Aldís Anna, f. 2. apríl 2007.
baaa Eygló María Björnsdóttir, f. 29. sept. 1995, Hafnarfirði.
baab Róbert Björnsson, f. 31. ágúst 2004, Lúxemborg.
baac Aldís Anna Björnsdóttir, f. 2. apríl 2007, Lúxemburg.
bab Sigurþór Þorgilsson, f. 7. júlí 1975, Akranesi.
- K. (óg.) Júlíana Viðarsdóttir, f. 30. mars 1979, Akranesi.
For.: Viðar Stefánsson, f. 3. apríl 1949, Lögreglufulltrúi Akranesi og k.h. Valdís Ragnheiður Ívarsdóttir, f. 20. mars 1948, bankastarfsmaður Akranesi.
Börn þeirra:
a) Hrafnhildur Steinunn, f. 2. nóv. 1996,
b) Þorgils, f. 16. júlí 2002,
c) Viðar, f. 25. júní 2006.
baba Hrafnhildur Steinunn Sigurþórsdóttir, f. 2. nóv. 1996, Akranesi.
babb Þorgils Sigurþórsson, f. 16. júlí 2002, Akranesi.
babc Viðar Sigurþórsson, f. 25. júní 2006, Akranesi.
bac Anna Þóra Þorgilsdóttir, f. 27. maí 1981, Akranesi.
- M. Andri Lindberg Karvelsson, f. 8. jan. 1979, Akranesi.
For.: Karvel Lindberg Karvelsson, f. 13. mars 1952, Akranesi og k.h. Ólafía Ólafsdóttir, f. 26. jan. 1953, d. 11. febr. 1993, Akranesi.
Börn þeirra:
a) Íris Embla, f. 18. febr. 2007,
b) Aníta Rut, f. 20. okt. 2010,
c) Sölvi Freyr, f. 14. sept. 2014.
baca Íris Embla Andradóttir, f. 18. febr. 2007, Akranesi.
bacb Aníta Rut Andradóttir, f. 20. okt. 2010, Akranesi.
bacc Sölvi Freyr Andrason, f. 14. sept. 2014, Akranesi.
bb Jóhann Ólafur Gunnþór Sigurþórsson, f. 21. apríl 1950, d. 11. maí 1950, Reykjavík.
bc Anna Sigurþórsdóttir Rosager, f. 2. ágúst 1951, Fjölskylduráðgjafi Óðinsvéum Danmörku.
- M. 30. mars 1991, Anders Rosager, f. (1950), tanntæknir Óðinsvéum Danmörku.
Börn þeirra:
a) Kirsten, f. 12. nóv. 1972,
b) Lisa, f. (1974).
bca Kirsten Rosager Voxtrup, f. 12. nóv. 1972, Kongens Lyngby Danmörku.
Börn hennar:
a) Anna Freyja, f. um 1995,
b) Vitus, f. um 2008.
bcaa Anna Freyja Voxtrup, f. um 1995, Lyngby.
bcab Vitus, f. um 2008, Lyngby.
bcb Lisa Rosager, f. (1974), félagsráðgjafi Kaupmannahöfn.
- M. 5. sept. 2009, Sören Skafte Overgård, f. 9. mars 1974, ráðgjafi Kaupmannahöfn.
Faðir: Poul Overgård Nielsen, f. um 1945, Aarhus Danmörku.
bd Þóra Sigurþórsdóttir, f. 25. maí 1954, Reykjavík.
- Barnsfaðir Arnar Jósefsson, f. 30. apríl 1951, d. 14. nóv. 2018, Reykjavík.
For.: Jósef Einar Markússon, f. 12. nóv. 1923, d. 21. okt. 2003, Húsasmiður Hafnarfirði og k.h. Magnea Bjarney Sigurjónsdóttir, f. 21. júní 1930, d. 13. nóv. 2001, Hafnarfirði.
Barn þeirra:
a) Sigurþór, f. 17. ágúst 1971.
- M. 19. jan. 1980, Helgi Snorrason, f. 8. nóv. 1951, d. 4. maí 2020, fasteignasali Reykjavík.
For.: Snorri Helgason, f. 2. júní 1929, d. 13. okt. 2006, hljóðfærasmiður Kópavogi og k.h. Þórdís Todda Jónsdóttir, f. 7. júní 1925, Kópavogi.
Börn þeirra:
b) Jónína, f. 27. júlí 1980,
c) Þórdís Ósk, f. 5. des. 1982,
d) Snorri, f. 30. apríl 1990.
bda Sigurþór Arnarsson, f. 17. ágúst 1971, d. 26. jan. 2021, Reykjavík.
- Barnsmóðir Emely Kalla Kvaran, f. 29. ágúst 1972, Reykjavík, Vejle Danmörku.
For.: Peter Kvaran, f. 8. maí 1949, og Lóa Edda Eggertsdóttir, f. 24. júní 1954, Reykjavík.
Barn þeirra:
a) Amalía Arna, f. 7. sept. 1994.
- Barnsmóðir Hrafnhildur Hjaltadóttir, f. 8. sept. 1971, Reykjavík.
For.: Hjalti Róarsson, f. 10. maí 1951, og Inga Pála Línberg Runólfsdóttir, f. 5. ágúst 1954.
Barn þeirra:
b) Róbert Daði, f. 1. júní 2001.
- K. (óg.) Berglind Ýr Aradóttir, f. 11. mars 1984.
For.: Ari Kristinn Garðarsson, f. 6. apríl 1963, d. 3. maí 2014, bifreiðastjóri Hafnarfirði, kjörforeldrar Garðar Eymundsson (1931-1978) og Sigfríður Sigfúsdóttir (1932-2010) og Sigrún Þorleifsdóttir, f. 10. júní 1963.
Barn þeirra:
c) Lovísa Alba, f. 23. des. 2015.
bdaa Amalía Arna Sigurþórsdóttir, f. 7. sept. 1994, Reykjavík.
bdab Róbert Daði Sigurþórsson, f. 1. júní 2001.
bdac Lovísa Alba Sigurþórsdóttir, f. 23. des. 2015.
bdb Jónína Helgadóttir, f. 27. júlí 1980, Reykjavík.
- M. (skilin), Óskar Þór Hjaltason, f. 4. júní 1971, Hafnarfirði.
For.: Hjalti Skaftason, f. 8. mars 1940, Hafnarfirði og Friðbjörg Þórunn Oddsdóttir, f. 10. febr. 1938, Kópavogi.
Börn þeirra:
a) Petrína Pála, f. 6. okt. 2005,
b) Patrekur Tumi, f. 7. júní 2007,
c) Bjartur Júlían, f. 21. júlí 2021.
bdba Petrína Pála Óskarsdóttir, f. 6. okt. 2005, Reykjavík.
bdbb Patrekur Tumi Óskarsson, f. 7. júní 2007, Reykjavík.
bdbc Bjartur Júlían Blær Óskarsson, f. 21. júlí 2021 Akranesi.
bdc Þórdís Ósk Helgadóttir, f. 5. des. 1982, Reykjavík.
- Barnsfaðir Matthías Rúnarsson, f. 22. apríl 1981.
For.: Rúnar Matthías Mölk, f. 6. mars 1957, d. 10. ágúst 2020, tölvunarfræðingur Þýskalandi og Ragnheiður Matthíasdóttir, f. 28. jan. 1960.
Barn þeirra:
a) Garðar, f. 6. sept. 2016.
bdca Garðar Matthíasson, f. 6. sept. 2016 Akranesi, Reykjavík.
bdd Snorri Helgason, f. 30. apríl 1990, Reykjavík.
- Barnsmóðir Halla Karen Haraldsdóttir, f. 17. des. 1992.
For.: Haraldur Eiríksson, f. 12. febr. 1976, veiðimaður Álftanesi og Auður Kristín Þorgeirsdóttir, f. 27. febr. 1976, Kópavogi.
Börn þeirra:
a) Hrafn Viðar, f. 27. sept. 2015,
b) Eiður Ernir, f. 11. sept. 2018.
bdda Hrafn Viðar Snorrason, f. 27. sept. 2015 Rvk.
bddb Eiður Ernir Snorrason, f. 11. sept. 2018.
be Ársæll Sigurþórsson, f. 1. febr. 1957, Fiskeldisfræðingur Grindavík.
- K. Þórhildur Eggertsdóttir, f. 2. júní 1958, Grindavík.
For.: Eggert Þorsteinsson, f. 26. nóv. 1938, Reykjavík og Ásta Vigdís Gústafsdóttir, f. 8. mars 1942, Reykjavík.
Barn þeirra:
a) Rakel, f. 8. apríl 1978.
bea Rakel Ársælsdóttir, f. 8. apríl 1978, Njarðvík.
- M. (óg.) (slitu samvistir), Vignir Óskarsson, f. 31. ágúst 1977, Keflavík.
For.: Óskar Kristinn Óskarsson, f. 25. júlí 1957, d. 15. mars 1987, Rafvirki Grindavík og Sjöfn Ágústsdóttir, f. 25. ágúst 1956, Grindavík.
Barn þeirra:
a) Gabríela Ósk, f. 17. sept. 1998.
Börn hennar:
b) Natalía Nótt, f. 10. sept. 2005,
c) Sebastian Myrkvi, f. 23. sept. 2012.
beaa Gabríela Ósk Vignisdóttir, f. 17. sept. 1998, Hafnarfirði.
beab Natalía Nótt Adamsdóttir, f. 10. sept. 2005, Hafnarfirði.
beac Sebastian Myrkvi Rakelarson, f. 23. sept. 2012, Hafnarfirði.
bf Jóhann Sigurþórsson, f. 22. febr. 1965, Rafmagnsiðnfræðingur Garðabæ.
- K. (óg.) Bylgja Valtýsdóttir, f. 30. maí 1966, Upplýsingafulltrúi Garðabæ.
For.: Valtýr Eyjólfsson, f. 11. júní 1930, Garðabæ og k.h. Arndís Guðrún Kristjánsdóttir, f. 14. apríl 1931, Garðabæ.
Börn þeirra:
a) Ragnheiður, f. 29. des. 1989,
b) Óskar Daði, f. 14. sept. 1995.
bfa Ragnheiður Jóhannsdóttir, f. 29. des. 1989, Garðabæ.
bfb Óskar Daði Jóhannsson, f. 14. sept. 1995, Danmörku.
- K. (óg.) Þorgerður Brá Traustadóttir, f. 25. okt. 1995.
Faðir: Trausti Kári Hansson, f. 21. apríl 1969.
c Margeir Pétur Jóhannsson, f. 2. ágúst 1932, Reykjavík.
- K. Lilly Alvilda Samúelsdóttir, f. 1. apríl 1932, d. 10. okt. 2021, Reykjavík.
For.: Samúel Jóhannsson, f. 19. sept. 1905, d. 15. júlí 1989, prentari Reykjavík og k.h. Alette Sofía Mjatveit Jóhannsson, f. 22. mars 1908 Noregi, d. 4. jan. 1982, Reykjavík, sögð Knútsdóttir í mbl 20. júlí 1989.
Börn þeirra:
a) Jóhann Pétur, f. 5. júní 1958,
b) María Aletta, f. 17. maí 1962.
ca Jóhann Pétur Margeirsson, f. 5. júní 1958, Verslunarmaður Reykjavík.
- K. 29. mars 1980, Kristrún Erlendsdóttir Helgadóttir, f. 11. febr. 1960, Reykjavík.
For.: Helgi Gestsson, f. 14. ágúst 1900, d. 31. jan. 1995, Trésmiður Reykjavík og Þórunn Elínborg Finnbogadóttir, f. 4. okt. 1919, d. 29. nóv. 1990, ljósmóðir Rvk.
Börn þeirra:
a) Ingibjörg Elín, f. 30. des. 1979,
b) Margeir Pétur, f. 2. sept. 1981,
c) Lilly Aletta, f. 31. mars 1985.
caa Ingibjörg Elín Jóhannsdóttir, f. 30. des. 1979, Reykjavík.
- M. Röðull Kolbeinn Röðulsson, f. 8. ágúst 1978, Reykjavík.
For.: Ingimar Röðull Bragason, f. 31. maí 1955, Akranesi og k.h. Arinbjörg Clausen Kristinsdóttir, f. 1. des. 1954, Akranesi.
Barn þeirra:
a) Jafet Kaín, f. 19. sept. 2020.
caaa Jafet Kaín Röðulsson, f. 19. sept. 2020, Reykjavík.
cab Margeir Pétur Jóhannsson, f. 2. sept. 1981, Reykjavík.
- K. Dagný Jónsdóttir, f. 5. febr. 1984, Reykjavík.
For.: Jón Ólafsson, f. 30. apríl 1958, og Margrét Pálsdóttir, f. 25. júlí 1957.
Börn þeirra:
a) Jóhann Pétur, f. 27. júlí 2005,
b) Ágúst Andri, f. 13. sept. 2008,
c) Júlíus Jón, f. 5. febr. 2015.
caba Jóhann Pétur Margeirsson, f. 27. júlí 2005, Reykjavík.
cabb Ágúst Andri Margeirsson, f. 13. sept. 2008, Reykjavík.
cabc Júlíus Jón Margeirsson, f. 5. febr. 2015, Reykjavík.
cac Lilly Aletta Jóhannsdóttir, f. 31. mars 1985, Reykjavík.
- Barnsfaðir Ónefndur, f. (1980).
Barn þeirra:
a) Margeir Garibaldi, f. 27. des. 2012.
- Barnsfaðir James Falama, f. 13. júní 1975.
Barn þeirra:
b) Þórarinn Þorri, f. 11. júlí 2016.
- M. (skilin), Ervin Elsharkavi, f. 21. júlí 1987.
Barn þeirra:
c) Leila, f. 4. des. 2019.
caca Margeir Garibaldi Lillyarson, f. 27. des. 2012, Reykjavík.
cacb Þórarinn Þorri Lillyarson, f. 11. júlí 2016 Rvk, Reykjavík.
cacc Leila Elsharkavi, f. 4. des. 2019, Reykjavík.
cb María Aletta Margeirsdóttir, f. 17. maí 1962, Reykjavík.
- M. Halldór Már Reynisson, f. 8. des. 1962, Reykjavík.
For.: Björgvin Reynir Björnsson, f. 18. okt. 1940, Reykjavík og k.h. Arndís Sigþrúður Halldórsdóttir, f. 30. júní 1938, Reykjavík.
Börn þeirra:
a) Fjóla Dögg, f. 5. jan. 1984,
b) Hlynur Smári, f. 2. jan. 1988.
cba Fjóla Dögg Halldórsdóttir, f. 5. jan. 1984, Reykjavík.
- M. Davíð Örn Sveinbjarnarson, f. 30. des. 1984, Reykjavík.
For.: Sveinbjörn Gizurarson, f. 17. maí 1962, Reykjavík og k.h. (óg.) Kristín Linda Ragnarsdóttir, f. 25. júní 1962, Reykjavík.
Börn þeirra:
a) Salómon Blær, f. 29. júlí 2012,
b) Elísa Björt, f. 16. júní 2017,
c) Annika Bára, f. 22. apríl 2019,
d) Mikael Björgvin, f. 10. febr. 2021.
cbaa Salómon Blær Davíðsson, f. 29. júlí 2012.
cbab Elísa Björt Davíðsdóttir, f. 16. júní 2017.
cbac Annika Bára Davíðsdóttir, f. 22. apríl 2019.
cbad Mikael Björgvin Davíðsson, f. 10. febr. 2021.
cbb Hlynur Smári Halldórsson, f. 2. jan. 1988, Reykjavík.
- K. Dísa Björg Jónsdóttir, f. 11. júlí 1990.
For.: Jón Bergur Gissurarson, f. 18. júlí 1948, Reykjavík og k.h. (óg.) Erna Björk Guðmundsdóttir, f. 27. júlí 1960, Reykjavík.
Börn þeirra:
a) Adrían Breki, f. 2. febr. 2012,
b) Indíana Alba, f. 24. júlí 2017.
cbba Adrían Breki Hlynsson, f. 2. febr. 2012.
cbbb Indíana Alba Hlynsdóttir, f. 24. júlí 2017.