Hallfríður Njálsdóttir fæddist á Siglufirði hinn 4. maí 1921. Hún lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 11. október síðastliðinn.
Foreldrar hennar voru
Johandine Amalie Sæby (Johandine Sæby), f. 10.5. 1895, d. 15.4. 1988, og
Njáll Hallgrímsson, f. 4.7. 1891, d. 8.5. 1956.
Bræður hennar voru
Hallgrímur Einar Njálsson, f. 22.6. 1916, d. 18.5. 1919, og Gísli, f. 13.2. 1919, d. 5.10. 1930.
Uppeldisbróðir Hallfríðar er
Sigurður Matthíasson
maki Þóra Þórðardóttir.
Hinn 3. maí 1945 giftist Hallfríður
Sverrir Guðmundsson frá Hólmavík, f. 17.8. 1923, d. 23.5. 1990.
Þau eignuðust fimm börn:
1) Njáll Ölver Sverrisson, f. 10.8. 1945,
maki Ólöf Díana Guðmundsdóttir frá Vestmannaeyjum.
Börn þeirra eru:
a) Hallgrímur Gísli, f. 29.5. 1966,
maki Sigfríður Björgvinsdóttir,
þau eiga þrjú börn.
b) Herdís Rós, f. 6.6. 1970,
maki Hafsteinn Gunnarsson, þau eiga þrjá syni.
2) Jóhanndíne Amalíe (Jóhanndíne Sverrisdóttir), f. 6.1. 1947,
maki Valdimar Guðmundsson lögregluþjónn frá Bolungarvík.
Synir þeirra eru:
a) Sverrir Rafn Valdimarsson, f. 11.8. 1969,
maki Hanna Petra Guðmundsdóttir,
þau eiga þrjú börn.
b) Björgvin Steinar, f. 2.7. 1970,
sambýliskona hans er Þuríður Björnsdóttir,
þau eiga þrjú börn.
c) Valdemar Sæberg, f. 22.7. 1971,
sambýliskona hans er
Steinunn Adólfsdóttir.
d) Kristján Viðar, f. 29.9. 1976.
3) Vigdís Sigríður Sverrisdóttir, f. 22.5. 1951,
maki Jónas Valtýsson frá Siglufirði.
Börn þeirra eru:
a) Fríða Jónasdóttir, f. 21.10. 1972,
sambýlismaður hennar er
Sveinbjörn Sigurðsson.
b) Elsa Karen, f. 27.6. 1978.
c) Valtýr, f. 30.9. 1981.
4) Fríða Sverrisdóttir, f. 23.7. 1954,
maki
Ingimar Jónasson frá Vestmannaeyjum. Börn þeirra eru: a) Friðrik Ingi, f. 21.3. 1973, kvæntur Ann-Sofie Ingimarsson. b) Hallfríður Una, f. 9.2. 1975, gift Mattias Kristensson, þau eiga eina dóttur.
5) Hallgrímur Gísli Sverrisson, f. 17.5. 1957,
maki Fanneyja Gunnarsdóttir frá Ólafsfirði.
Dætur þeirra eru:
a) Guðrún Jóhanna, f. 27.7. 1977,
sambýlismaður hennar er
Sigurður Pálsson.
b) Eva María, f. 6.5. 1981,
sambýlismaður hennar er
Halldór Ólafsson.
Hallfríður var fædd og uppalin á Siglufirði. Hún fór í Húsmæðraskólann á Ísafirði.
Eftir námið vann hún á símstöðinni á Siglufirði þar til hún gekk í hjónaband.
Hún var lengstum heimavinnandi húsmóðir með stórt heimili.
Þegar fækkaði í heimili hóf hún störf hjá Kaupfélaginu á Siglufirði og síðar hjá frystihúsinu Ísafold.
Hallfríður Njálsdóttir
Ljósmynd: Kristfinnur