sksiglo.is | Fróðleikur | 10.07.2014 | 13:00 | Jón Ólafur Björgvinsson
Á tali við spítukarla
En snúum okkur nú að viðtalinu við þessa frægu kalla.
Í leiðinni, svona smá kynning á sjálfum mér!
Fólk hefur verið að kvarta yfir að ég sem arftaki Hrólfs hafi aldrei verið kynntur fyrir lesendum Siglo.is.
Hrólfur er bara latur sagði einhver, en ég verð að verja félaga minn og segja ykkur frá því að Hrófur klippir ekki bara hár og skegg, hann gerir upp hús líka.
Hús og hús, það má alveg ræða það, kanski meira kofi, hjallur, brakki eða bara spítnabrak.
En hann er allavega mjög upptekin maður, svo ég redda þessu bara sjálfur.
Þessir spítukarlar eru hrein snilld og sköpunarverk Aðalheiðar Sigríðar Eysteinsdóttur.
(Alla Sigga í Alþýðuhúsinu).
þeir eru alltaf að ræða málin og ef maður sest á milli þeirra, er maður bara allt í einu komin í hörku samtal um allt sem er í gangi á "BÆJARLÍNUNNI"
En snúum okkur nú að viðtalinu við þessa frægu kalla.
Blessaðir strákar, ég er að leysa hann Hrólf af, þið vitið hann sem skrifar á Siglo.is má ég ræða aðeins við ykkur?
Hljómsveitin Hjálmar leikur fyrir dansi á þorrablótinu hjá Öllu Siggu, Stína getur ekki stillt sig og dansar villt!
Blessaðir strákar, ég er að leysa hann Hrólf af, þið vitið hann sem skrifar á Siglo.is má ég ræða aðeins við ykkur?
"Hrólfur, hver er það, segir einn, höfum við hitt hann? Segir annar. En blessaður fáðu þér sæti vinur."
Ég kem hingað á hverju sumri og þið eruð alltaf hér, nema í fyrrasumar.
Hvar voruð þið þá?
"Við vorum sendir inn á Akureyri, segir annar og hinn kinkar kolli."
Nú, í rannsókn, eruð þið eitthvað slappir?
"Nei, nei, Alla Sigga var með risa sýningu í Listagilinu og við vorum lánaðir þangað."
Var það ekki leiðinlegt, sitja inni á einhverri sýningu allt sumarið?
"Nei alls ekki, það var bæði þorrablót og réttarball á þessari sýningu og svo kom 10.000 mans og spjölluðu við okkur, allra þjóða kvikindi, sagði annar og hló við"
En hvað heitir þú vinur? Spyr annar og hinn bætir við....... Og hverra manna ertu karlinn?
Ég heiti Jón Ólafur Björgvinsson,, fæddur 1962 hér á Sigló, oftast kallaður Nonni Björgvins.
Þú ert sem sagt Hrímnisdrengurinn, spyr annar ?
Nei, nei, faðir minn Björgvin Jónsson var stundum kallaður Hrímnisdrengurinn af því að afi minn var Jón Ólafur Sigurðsson í Hrímni og amma mín í föðurætt var Unnur Möller, (Nunna)
Móðir mín heitir Halldóra Ragna Pétursdóttir, dóttir Péturs Bald og Mundínu Sigurðardóttur.
"Já, já meinar þú Mundínu frá Vatnsenda í Héðinsfirði, Já, sóma fólk allt saman, segir annar og hinn kinkar kolli."
"Býrð þú hér í bænum? Spyr annar."
Nei, ég hef búið í Svíþjóð í 24 ár, en ég er alltaf með heimþrá.
"Heimþrá er erfiður kvilli að hrjást af og bara til ein bót á því ástandi, segir annar."
Hver er sú bót, spyr ég ákafur?
"Maður flytur einfaldlega heim, sagði einn og hinn kinkar ákaft kolli."
Takk strákar, gaman að spjalla við ykkur, sjáumst fljótlega.
"Já örugglega. Við erum ekki að fara neitt, sögðu báðir í kór. Og skilaðu kveðju till mömmu Öllu Siggu ef þú sérð hana."
Myndir: Kristín Sigurjóns og NB Myndvinnsla og texti: NB
Tengdar fréttir