trolli.is 1. ágúst 2021 Jón Ólafur Björgvinsson
SIGLFIRSK FARARTÆKI OG
ÝMIS SKRAPATÓL.
2. HLUTI. 65 MYNDIR.
Í seinni hlutanum kíkjum við til viðbótar á 65 merkilegar Siglfirskar ljósmyndir af jeppum og allskyns farartækjum sem koma að góðum notum í einangruðum snjóþungum firði, sem og á einkennileg reiðhjól og skellinöðrur, kranabíla, dýpkunarskip, kajaka og fl. skrapatól.
Þessar myndir segja okkur allar svo ótrúlega mikla sögu úr liðnum tíma.
Við byrjum á því að kíkja á Vespur, skellinöðrur og einkennileg reiðhjól.
Á forsíðuljósmyndinni sjáum við Guðbrand Magnússon, kennara í sumarvinnu á Piaggio Vespu þríhjóli, en þetta einkennilega farartæki var í daglegu tali heima á Sigló kallað Apinn. Guðbrandur kennari vann nokkur sumur við afgreiðslu og vöru útkeyrslu fyrir vöruflutningamiðstöð Birgis Runólfssonar. Nafn ljósmyndarans er Hannes P. Baldvinsson, en myndin er líklega tekinn 24 ágúst 1957 á fimmtugs afmælisdegi Guðbrands framan við heimili hans á Hliðarvegi 3c. (Brekkugata)
Það vill svo skemmtilega til að akkúrat þetta Piaggio Ape vespu þríhjól er til sýnis á Samgöngusafninu í Stóragerði. Dóttir Guðbrands sendi pistla höfundi mynd af upplýsingaskilti með skemmtilegum viðbótar upplýsingum um sögu þessa skrítna skrapatóls.
Upplýsingaskilti. Piaggio Ape, árgerð 1948. Ljósmyndari: Filippía Þóra-Pía Guðbrandsdóttir.
Þetta farartæki er einhverskonar Ítalskur “míní vörubíll.”
Vespur voru mjög svo vinsæl og ódýr farartæki, stórkostleg uppfinning sem breytti heiminum til hins betra á erfiðum eftirstríðsárum á Ítalíu og út um allan heim. Sjá meira hér um gamlar Piaggio Vespur:
FROM THE ORIGINS TO MYTH
Seventy years of history since 1946.
Á Netflix er einnig hægt að finna mjög svo skemmtilega og fræðandi kvikmynd:
Enrico Piaggio: An Italian Dream
Original title: Enrico Piaggio: Vespa
Siglfirskt járnbrautakerfi!
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Á Siglufirði voru fleiri km. af járnbrautarteinum undir síldarlöndunar sporvagna. Myndin er tekin á bryggjunni fyrir framan söltunarstöð Skafta á Nöf. Takið eftir stærðinni á planinu fyrir innan bryggjuna þar sem faðir pistla höfundur stendur og spjallar við Sigga Konn og það sést í flottu rauðu Piaggio vespuna hans pabba í bakgrunninum..
SKELLINÖÐRUR OG EINKENNILEG REIÐHJÓL
Skellinöðrur eru skemmtileg farartæki og sumar voru svo kraftlausar að maður varð að hjóla með í brekkum. Það fylgdi þeim leiðinda hávaði og þær voru kallaðar hinum ýmsu nöfnum. Eins og t.d. prumphænur, skothjól, hjálpartík og jafnvel smellitík. Sumir sögðu bara “Reiðhjól með hjálparvél” það þótti samt nokkuð niðurlægjandi. Á dönsku heita þessar nöðrur “Knallert” og “Moped” á sænsku.
Hannes Garðasrson (HANNES BOY / BEGÓLÍN) og flotta Suzuki skellinaðran hans.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Pistla höfundur minnist þess sem unglingur að margir urðu hissa heima á Sigló þegar Hannes birtist allt í einu á þessari líka flottu 50 CC Súkku. Svo varð hann leiður á skellinöðrunni og skellti sér í að taka bílpróf og keypti góðan bíl strax þar á eftir
Árni Filippus Magnússon og F-6 skellinaðran hans
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Magnús Pálsson á flottri NSU skellinöðru á Eyrargötunni. ( Líklegast heitir naðran NSU Quickly )
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson.
Samkvæmt nokkuð áráðanlegum heimildum sem bárust pistla höfundi nýlega, var hægt að panta svona skrapatól hjá Fálkanum í Reykjavík 1957, fyrir aðeins kr. 5.550.
Sendlareiðhjól.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson.
Sigurður Fanndal. sendi inn upplýsingar 13. mars 2009:
Þarna er Haraldur Reynir Árnason, seinna málari, á sendilshjóli Ásgeirs Jónassonar, síðar Verslunarfélags Siglufjarðar, framan við Norðurgötu 5. á Siglufirði.
Vilhjálmur Sigurðsson (sonur Sigurðar sparisjóðsstjóra) situr á bögglaberanum og Matthías Jóhannsson á sendils reiðhjólinu.
Alfonshúsið við Gránugötu í baksýn.
Ljósmyndari: Ókunnur.
Siglfirsk uppfinning. Olíutunnu reiðhjól fyrir farþegaflutninga.
Almar Möller og Ingvar Steinarsson.
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Nýtísku reiðhjól með WC og tilheyrandi
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Ólafsfirðingurinn Gotti Konna og Konni Gotta sonur hans í flottum sérsmíðuðum reiðhjólatengivagni með barnastýri.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
JEPPAR, JARÐÝTUR OG FL. (SNJÓ) SKRAPATÓL
Willys, Rússa jeppar, Land Rover og Volvo Laplander og. fl. fjórhjóladrifnir fjallabílar voru upprunalega mest notaðir í hernaði hér áður fyrr.
Flestir voru ekki upprunalega yfirbyggðir og það pössuðu ekki Íslenskum aðstæðum. Íslendingar hafa ætíð verið duglegir uppfinningamenn og fljótir að breyta og byggja bíla sem henta aðstæðum. Pistlahöfundur mælir eindregið með því lesendur fari í heimsókn á Samgöngusafnið í Stóragerði, en þar er hægt að sjá mikið af þessum séríslensku bílabreytingum.
Á Sleitustöðum þar rétt innar var á sínum tíma frægt bílaverkstæði og þar voru sumir starfsmenn kallaðir bílasmiðir.
Í þessu pínulitla Skagfirska þorpi var einnig mikil útgerð af bæði fólks- og vöruflutninga bifreiðum og fræg vegasjoppa.
Land Rover jeppar voru mjög mjög vinsæl og hentug fjórhjóladrifin farartæki á sínum tíma.
Ljósmynd: Gestur Fanndal
F-99. Siglfirskir skíðakappar á Land Rover
Ljósmynd: Gestur Fanndal
F-431 var flottur trukkur í eigu Rafveitu Siglufjarðar
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
F-352. Volvo Laplander trukkur Pósts og síma, á Grundargötunni.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Þessi bifreið tengist hræðilegu slysi sem gerðist 26 nóvember 1970
“Hörmulegt slys!
Það hörmulega slys varð um miðjan dag fimmtudaginn 26. nóv. s.l., að geysisterk stormhviða þeytti bifreið út af veginum við Sauðanes. Hrapaði bifreiðin niður í fjöru, mikið fall. Í bifreiðinni var einn maður, Jón Gunnar Þórðarson, símaverkstjóri, og beið hann bana. Þennan dag gekk á með sterkum stormhviðum.
Símamenn höfðu undanfarið unnið að viðgerðum í fjarskiptastöðinni á Sauðanesi og var því verki lokið, aðeins eftir að ganga frá húsinu og þess háttar og fór Gunnar í símabílnum út eftir, ásamt viðgerðarmanni frá Akureyri, en sá ætlaði að aka beint heim á leið frá Sauðanesi.
Þeir voru á heimleið, komnir ofarlega á afleggjarann heim að vitanum, er sterk stormhviða gekk á, og stöðvuðu þeir bílana. En allt í einu herðir vindinn og símabíllinn, sem var Volvo fjallabíll, þeyttist út af veginum, en einmitt þar var skemmst fram á brúnina og síðan snarbratt niður í fjöru. Hjálparmenn frá Siglufirði komu á staðinn nokkru síðar og fundu Gunnar látinn. Mun hann hafa dáið strax.
Jón Gunnar Þórðarson var á besta aldri, 35 ára, og lætur eftir sig konu og þrjú börn. Þetta sviplega slys sló þungum harmi á bæjarbúa. Þarna fórst indæll maður, allra hugljúfi í umgengni og starfi sínu.“
Sjá fleiri fréttaágrip og minningarorð um hin unga símaverkstjóra sem lést í þessu hörmungar slysi hér á heimasíðu Steingríms Kristinssonar:
Jón Gunnar Þórðarson símaverkstjóri
F-460. Flottur Ford Bronco fram á firði, Hesthús í bakgrunninum
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
F-69821. Sérkennilegur Safari jeppi við Öldubrjótinn í Ólafsfirði
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
F-107 og Gunnar Jens Þorsteinsson.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson.
Sighvatur Elefsen sendi inn upplýsingar 23. febrúar 2009: F-107
Hef ekki hugmynd um hver maðurinn er, en mér dettur í hug hvort þetta er FORDSON bíll sem pabbi átti. Ég tel mig vita að það hafi ekki verið margir frambyggðir vörubílar á Sigló.
Pabba bíll var það. Þeir frændur mínir, Sverrir eða Óskar vita þetta hugsanlega.
Ath. SK- Drengurinn heitir Gunnar Jens Þorsteinsson f. 09-Jún-38 – það var einnig svona bíll í eigu Kjötbúðarinnar á Siglufirði og einnig Guðmundar Einarssonar, sem lengst var eigandi slíkrar bifreiðar. Hvort þarna er um sömu bifreið að ræða veit ég ekki
Jakob Jónsson sendi inn upplýsingar 15. mars 2009
Bílategund?
Bíllinn á myndinni er Kanadískur Chevrolet CMP bíll. Allmikið af svona bílum var flutt inn árið 1947.
Þetta voru hörku torfærutrukkar, sem komu að góðu gagni, ekki síst í snjóþungum landshlutum.
Willys jeppi og Birgir Gunnlaugsson á gönguskíðum
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
F-120 Willys. Vor á Siglufjarðar Skarðsvegi um miðja síðustu öld
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Skarðsvegurinn gamli gat verið varasamur um hásumar líka.
Ljósmyndari óþekktur.
Kjartan Björn Guðmundsson sendi inn upplýsingar 20. október 2009:
Bílvelta á vegi upp að Siglufjarðarskarði. Ég sé ekki betur en að þetta sé bifreið sem Valgarð Sigmarsson, frá Bræðrabóli á Hofsós, átti og ók er þetta skeði. Með honum í för var fjölskyldan á Stekkjarbóli í Unadal og sá er þetta ritar. Eftir því sem ég kemst næst þá mun þetta hafa skeð 1952, þá um sumarið.
F-151 á austurleið í Siglufjarðarskarði.
Ljósmynd: Hinrik Andrésson
F-119 Willys blæjujeppi í Skarðinu.
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Sigurður Fanndal sendi inn upplýsingar 13. mars 2009: Georg Fanndal kaupmaður átti þessa Willys jeppabifreið F-119 árg. 1946, seinna F-45. Kristján Sigtryggsson byggði síðar, á efstu hæðinni í Suðurgötu 10 á bílinn timburhús í stað blæjunnar.
Áður hafði bifreiðin verið lengd í vélaverkstæði RAUÐKU. Með á myndinni er Garðar Guðmundsson. ( Gæji Bæ )
F-91. Wilys jeppi með blæjutaki.
Ljósmyndari óþekktur.
Rússajeppi með blæju þaki, Land Rover og snjóbíll.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Upplýsingar frá Steingrími: Uppi á Fjarðarheiði, “Pálsmenn” hjá SR á leið til Seyðisfjarðar. Þarna var allt stopp vegna snjó ófærðar, en snjóbíllinn tók við farþegunum.
“Þessir “Pálsmenn” voru starfsmenn hjá SR Tréverkstæði undir stjórn Páls Jónssonar trésmíðameistara.
Þar vann ég í um 8 ár frá árinu 1959 sem fastráðinn starfsmaður. (SK)
Gallabuxur og Rússajeppi.
Ljósmyndari óþekktur.
Snjóflóð féll enn og aftur á hitaveitudæluskúra í Skútudal.
Snjóbíll flytur mannskap og skóflur á staðinn
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Snjósmokstur á Skarðsvegi.Ýtustjórinn heitir Friðgeir Árnason.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Siglfirsk Cletrac jarðýta með "heimasmíðuðu húsi" og Ásgeir Gunnarsson ýtustjóri.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson.
Snjómokstursslys! Ææ… það var víst bíll þarna undir snjónum
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Það er margt og mikið til af allskyns tækjum og tólum úti á veglausu Siglunesi.
Ljósmynd: Guðný Ósk Friðriksdóttir.
Sveinbjörn Blöndal listamaður, úti á Siglunesi árið 1988 ásamt skólasystkynum sínum, árgangi 1932
Skurðgrafa i Hvanneyrarhlíðinni að grafa fyrir síma og rafmagns strengjum, á vegum Símans
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Rokkerman trukkur nr.1 í vinnu við Strákagöng.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Guðlaugur Ævar Hilmarsson sendi inn upplýsingar 04. mars 2009
Ásinn. Bílstjóri Guðlaugur Ævar Hilmarsson. Þetta er Rokkerman trukkur nr. 1, kallaður Ásinn.
Eini trukkurinn sem lifði gatið, var Ásinn. Hinir Tvisturinn og Þristurinn fóru fram af.
Það sem bjargaði Ásnum var að hann var með Kúplingu. Hinir voru hálfsjálfskiptir.
Rokkerman trukkur vinnu við Strákagöng. Bílstjórinn er Eggert Ólafsson
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Takið eftir framdekkunum, nánast á felgunni. En þetta skeði þegar ökumaður keyrir á ferð fram á á brún og snarbremsar, og við það opnast pallurinn og þunginn allur á framöxlum, og farmurinn losnar úr pallinum.
Við slíkt á skýringum Guðlaugs við mynd hér fyrir ofan, stoppuðu trukkarnir (Tvisturinn og þristurinn) ef til vill of framarlega á brúninni og rúlluðu niður, en snöggir stjórnendurnir náðu að stökkva frá trukkunum
Inni í Strákagöngum 1965.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Strákafjall, og séð inn í Siglufjörð. Strákagöng voru opnuð árið1967
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Traktors skíðalyfta
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Traktors skíðalyfta
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Snjótroðarar eru líka ágætis skíðalyftur
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Gamla skíðalyftan í Hólsdal. Hún var seinna færð norðar og eyðilagðist síðan í snjóflóði
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Skíðamót og vélsleði
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Vélsleði á Suðurgötu
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
KRANAR!…
… EIGA ÞAÐ TIL AÐ DETTA STUNDUM Á HLIÐINA
F-514. Link Belt krani með máluðum hesthaus. Frægur Siglfirskur krani.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Það væru algjör helgispjöll að hálfu pistla höfundar að horfa framhjá kranasögu Siglufjarða. Steingrímur Kristinsson stofnandi Ljósmyndasafns Siglufjarðar vann í áratugi sem kranastjóri og það er varla til sá krani sem hann hefur ekki stjórnað.
Mér veittist sá heiður að hafa fengið að vinna með þessum einstaka manni í mörg sumur.
Vann hjá bænum á allskyns tækjum og tólum, en þó mest við að stjórna stærðarinnar Bedford steypuhrærivél og blandaði steinsteypu í götur og hús út um allan bæ. Steingrímur og kranafélagar hans hífðu síðan steypusílóið út og suður.
Steingrímur og vinur hans Guðmundur Skarphéðinsson vélsmiður keyptu sama þennan öfluga Link Belt krana, nýjann í gegnum félagið Krani SF. Þeir áttu kranann í fjögur ár, þá skuldlausann. Þeir seldu síðan (nánast tilneyddir) kranann eftir farsælt og slysalaus tímabil, fjórum árum síðar með góðum hagnaði til Þormóðs Ramma hf.
Kranastjórar eftir það voru starfsmenn Rammans, þeir Birkir og Salli. (Salmann Kristjánsson)
Í þessum kafla koma í lokin myndir og tvær stuttar sögur sem tengjast persónulegum minningum um kranaslys í Skútudal en þar skemmdist þessi áður nefndi Link Belt krani illa.
Pistla höfundur, Jón Ólafur Björgvinsson og Bedford hrærivélin stóra.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Viðbót frá Steingrími: Þessa Bedford hrærivél, ásamt ámokstursvél, keyptu Byggingafélagið Berg (þórarinn Vilbergs og Birgir Guðlaugsson) í félagi við vinina Guðmund Skarphéðinsson vélsmið og Steingrím Kristinsson.
Gömlum krana stýrt með handafli. Í eigu SR verksmiðjana, sem átti tvo slíka.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Aksturs og hífi búnaður kranans var rafdrifinn, en rafallin var knúinn 8 sílendra Ford bensínmótor.
En þarna var stýri búnaðurinn brotinn og óvirkur.
Kristinn Jóakimsson er að stjórna stefnu kranans. Skömmu seinna voru síðustu dagar þessa krana taldir. (SK)
Sami krani og hér fyrir ofan fór á hliðina þekja bryggjunnar brast.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Kraninn var að vinna við tilfærslu á lýsisbörkum á Öldubrjótnum, bryggjuþekjan rofnaði og fór sem myndin sýnir, árið 1980
Þáverandi kranastjóri var Jón Kr. Jónsson, hann fótbrotnað við slysið, en var fljótur að ná sér.
Fyrstu tilraunir við að fella Gránu skorsteininn.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Þarna lengst uppi voru Óskar Berg Elefsen og Guðmundur Oddur Jóhannsson að vinna með lofthamri. (kranastjóri Steingrímur)
Byrjað var ofan frá, en verkið gekk seint vegna traustrar byggingar, svo þá var hætt við þessa aðferð og gerð tilraun til að sprengja hann niður með dínamít sem hlaðið var niður við jörð og átti hann að falla til suðausturs.
Það mistókst og ekki var talið ráðlegt að hlaða dínamít aftur að ótta við að skorsteinninn félli í öfuga átt, en mikið gap hafði myndast suðaustanmegin við sprenginguna. Þá var brugðið sterkri vírstroffu tengdri togvír um efri hlutann og stór jarðýta gerði tvær árangurslausar tilraunir við að fella hann áður en það tókst með miklum látum.
En þarna er verið að rýma gömlu Rauðkurústirnar vegna bygginga fiskiðjuvers á vegum Þormóðs Ramma hf. (Heimild: SK)
Í stóru SR 30 þrónni. Krani SR verksmiðjunnar.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Kranastjóri er Guðmundur Oddur Jóhannsson.
ATH. í þessari síldar/loðnu þró var oft spilaður handbolti, fótbolti og badminton og fl.
Berg hf. undir stjórn Birgis Guðlaugssonar tók að sér lagfæringar utan húss, á Hótel Hvanneyri.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Hann lét smíða stillas (vinnu palla) við suðurhliðina á húsinu, og eftir að lagfæringum þar var lokið, þá lét hann flytja stillasinn við vestur hliðina og síðan á norðurhlið hússins. Allt gekk þetta upp eins og hann hafði áætlað. Sömu aðferð beitti hann síðar vegna smíði á stillas við Aðalgötu 34, Útvegsbanka húsinu, nema þar byggði hann stillasinn á láréttum fleti, á bílatæðinu norðan við húsið og flutti svo á suður hliðina með aðstoð krana, og svo kol af kolli. Losnaði þannig við að trufla starfseminnar í húsinu með hávaða og látum á meðan stillasinn var í byggingu. (Heimild: Steingrímur)
Löndunarkranar Rauðku verksmiðjunnar og dýpkunarpramminn Björninn
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
oooooooooooooooooOooooooooooooooooo
Sjá fleiri myndir og sögur um Rauðku kranann hér:
KAÐLA OG KLIFUR ÆVINTÝRA MYNDASYRPUSAGA
Margar kynslóðir Siglfirska barna og unglinga muna örugglega eftir að hafa sveiflað sér í köðlum og klifrað upp á lýsistanka og verksmiðjuþök.
Meðan síldin var og hét þá var þetta vinsæll leikur en eftir að síldin hvarf magnaðist þetta til muna. Því þá stóðu verksmiðjur, brakkar og bryggjur með stórum löndunarkrönum auðar og breyttust í …
oooooooooooooooooOooooooooooooooooo
Undirbúningur við að bora eftir heitu vatni í Skútudal
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
boraÐ eftir heitu vatni í Skútudal
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Kranaslys í Skútudal
Pistla höfundur gæti sagt ykkur endalausar sögur úr bæjarvinnunni, þarna voru margir af skemmtilegustu karakterum fjarðarins í vinnu.
En þetta sumar vorum við að ljúka við að steypa upp 8 köntuð kjarnorkubyrgi yfir hitaveitudælurnar uppí Skútudal á föstudagseftirmiðdegi og stóri Link-Belt kraninn nú í eigu Rammans var að sjálfsögðu notaður í þetta mikla þarfa verk til að forða bæjarbúum frá því að verða hitavatnslausir eftir þrálát snjóflóð á dæluhúsin. Með í för voru kranastjórarnir þeir Birkir og Salli.
Steingrímur mætti í þetta skiptið bara til þess að taka myndir.
Þegar búið var að steypa, var kraninn notaður í að lyfta tveimur ekkert svo stórum lokum á brunn þarna rétt hjá. Seinna lokið rann af brunninum og við það kom snarpur kippur á kraninn, með þeim afleiðingum að malarundurstaðan undir krananum gaf sig og kraninn fer á hliðina og lendir rétt hjá brunninum.
Engin veruleg slys urðu á fólki sem betur fer. Birkir kranastjóri náði að henda sér út úr stýrishúsinu sem fór á kaf í jörðina, en Jónas í Rauðku sem var verkstjóri hitaveitunnar meiddi sig aðeins þegar einhver henti honum hreinlega niður af brunninum.
Það var vægast sagt hræðileg upplifun að sjá kranann koma á móti okkur þegar við stóðum uppá brunninum og eins og sjá má á myndunum lenti hann þar þétt sunnan við brunninn.
Seinnipart sama dag vildu Gísli Þorsteins bæjarverkstjóri, Jón á Hóli og Stebbi gamli endilega skeppa fram í Skútudal og kíkja á þetta slys.
Allir farnir heim og enginn starfsmaður í bæjaskemmunni og guli litli ljóti Mazda pallbíllinn hans Gísla er inni á verkstæði.
Gísli ákveður að taka hann, því bifvélavirkjarnir Biggi Björns og Ernst Kobbelt voru alltaf svo snöggir að laga allt sem kom þarna inn.
Ferðin gekk vel suður og uppeftir en á leiðinni til baka niður Skútudalinn komst Gísli af því af hverju bíllinn var inná verkstæði.
Hann var nefnilega bremsulaus og þessir þrír gömlu bæjarvinnu refir rétt náðu að henda sér út úr bílnum áður en hann endaði ofan í skurði. Enginn slasaðist sem betur fer og Gísli gengur síðan ofan í skurðinn og opnar bílinn til þess að kalla á hjálp í gegnum talstöðina.
Gísli: Hvar í andsk…… er talstöðin ????
Jón á Hóli:
Ertu að meina þetta ???……… Þá hafði Jón í fáti sínu gripið í talstöðina til þess að halda sér í eitthvað og rifið hana síðan með sér í fátinu þegar hann stökk út úr bílnum.
Þeir gamlingjarnir þurftu síðan að ganga langleiðina heim í rengingarsúld og kulda, en þeim varð síðan bjargað af einhverjum bæjarbúa sem var á rúntinum suður við Hólsbrú.
Kranaslys á Hafnarbryggjunni.
Löndunarvinna hjá Þormóði Ramma hf. Link Belt kraninn stóri var dæmdur ónýtur eftir Þetta slys.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
DÝPKUNARPRAMMAR, HEIMATILBÚNIR KAJAKAR OG FL. FLJÓTANDI SKRAPATÓL
Flestir Siglfirðingar muna eflaust vel eftir dýpkunarprammanum Björninn, sem þeir félagarnir Björn Þórðarson og Aage Johansen áttu saman í áratugi. Við krakkarnir kölluðum hann alltaf drullu-prammann ef ég man rétt. Björninn var gjörsamlega ódrepandi og hann sökk tvisvar eða þrisvar og það kveiknaði í honum líka minnir mig.
Það var bráðnauðsynlegt að hafa Björninn á staðnum. Í firði sem fyllist reglulega af sandi og grjóti. Björninn var sífellt að halda við dýpinu í syðri höfninni og duglegur við að sækja sand í byggingarefni.
Kraninn datt af Birninum og sökk við Hafnarbryggjuna í þetta skiptið.
Ljósmynd: Valbjörn Steingrímsson.
Upplýsingar Steingríms: Verið var hífa gamla bryggjustaura, er snúningsöxullinn sem hélt krananum föstum við bátinn, brotnaði méð ofangreindum afleiðingum. Johansen var við stjórn, hélt sér fast á meðan kraninn var að sökkva og þega niður var komið fór hann bara út hinn rólegasti og synti upp á yfirborðið, þar sem tekið var vel á móti karli. Ekki var hægt að sjá að hinum hefð brugðið. Enda vanur köfun, þó öðruvísi hafi verið, sem ma. atvinnukafari.
Björninn kominn í lag með segldúk á kranahúsinu. Bjössi Þórðar stendur við stýrishúsið
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Dýpkunarvinna við Rauðkubryggju
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Gamla fræga dýpkunarskipið GRETTIR
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Þarna að verki framan við SR bryggjur
Grettir fyrir framan SR bryggjuna
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Nýr og stærri GRETTIR mættur á Sigló til að rífa niður gamlar síldarsöltunarbryggjur 1980
Bryggjur sem aðkomu söltunarfélögin létu grotna niður
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
SR kraninn F-77 við að reisa mastur í Skagafirði fyrir landssímann árið 1971
Aðstoðarmaður Jón Kr Jónsson, sem tók myndina á vél kranamannsins SK
Link Beltinn kraninn að hífa steypu í hús við Brúnastaði í Fljótum árið 1975 Kranamaður: Steingrímur
Ljósmynd: Valbjörn Steingrímsson
Steinsteyptir prammar! Suðurbær sumarið 1965 / 66?
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Þetta er að mörgu leyti merkileg ljósmynd, í vinstra horninu sjást vel tveir strandaðir síldarflutninga prammar sem voru búnir til úr steinsteypu. Löngu horfnir undir landfyllingu Leirutangans.
Þeir tilheyrðu leiksvæði suðubæjarbarna og þarna gerðust mörg kajakastríð í denn. Undir Hafnargötu bakkanum sjást horfnir síldarbrakkar og risastór síldarplön og langar bryggjur þar sem Síldarminjasafn Íslands stendur í dag. Þar fyrir ofan sést húsið hennar Stínu á Túninu og hún bjó svo sannarlega á túninu því það liggur enginn gata að þessu húsi.
Húsið hennar Stínu á Túninu og horfin fjárhús þar fyrir ofan
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Steinsteyptir sokknir/strandaðir prammar
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Heimatilbúnir Siglfirskir kajakar voru búnir til úr bárujárnsplötum og mjög vinsæl farartæki hjá Siglfirskum börnum og unglingum. Siglt bæði vetur og sumar eins sjá má á myndunum hér undir.
Bárujárns kajakar og ísjakar í Hvanneyrarkrók og út með Strönd
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
oooooooooooooooooOooooooooooooooooo
Sjá meira hér um kajaka og ýmsa leiki barna í denn:
Horfin ævintýraheimur: Skoger, Evanger, Tordenskjold… og ég! 1. hluti
Formáli: (ATHUGIÐ: Ef þú lesandi góður villt stækka myndirnar er best að fara beint inn á sjálfa heimasíðuna gegnum trolli.is. Ef smellt er á greinina í gegnum Facebook grúppur verður það oft vandamál að geta ekki stækkað myndirnar.( JOB) Þó svo að titillinn á þessari minningarsögu úr barnæsku byrji á útlenskum orðum og endi á … og ÉG, …
oooooooooooooooooOooooooooooooooooo
Þessi er með mjög svo flottar árar
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
… skrítin skrapatól og hitt og þetta úr leitarorða flokknum “VÉLAR OG FARARTÆKI” á Ljósmyndasafni Siglufjarðar.
Síldarhreistursperlugerðarvél.
Haraldur Þór Friðbertsson verkstjóri á vélaverkstæði síldarverksmiðjunnar Rauðku –
þarna með sérstaka smíði fyrir Aage Schöth apótekara vegna perlugerðar úr síldarhreistri.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Grjótmulningsvélin Búkolla
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Flottur og snyrtilegur vélasalur.
Ljósmyndari óþekktur. Úr safni Gísla Halldórssonar framkvæmdastjóra SR
Í vélasal SR 30, eftir að ein dísilvélin sprakk að hluta til í tætlur.
Vélin var á fullu í gangi við að framleiða rafmagn fyrir verksmiðjuna þegar óhappið varð, með miklum hvelli og málmhlutir komu fljúgandi um allan salinn. Vélstjórinn slapp með skrekkinn. Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Mælibúnaður frá University of Lancaster í Skotlandi. Staðsettur og í umsjón Steingríms í kjallara hússins við Hvanneyrarbraut 80 á Siglufirði árið 1976. Búnaðurinn mældi meðal annars rafbylgjur himinhvolfsins, norðurljós og fl. Búnaður til þessara nota var þarna í nær 30 ár
Loftnetsbúnaður tilheyrandi.
Rafbylgjumælingum á vegum University of Lancaster í Skotlandi. Þarna neðan við húsið við Hvanneyrarbraut 80 Siglufirði.
Ljósmyndir: Steingrímur Kristinsson
Kvikmyndasýningavélar í Nýja Bíó
Þarna með kolboga ljósbúnaði.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Kvikmyndasýningavélar í Nýja Bíó
Þarna komnar með Halogen ljósabúnað.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Ungur nemur, gamall temur…. Steingrímur Örn, afastrákur, 12 ára sýningarmaður í Nýja Bíó
SR lyftari hangandi í SR krana 1999
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
+ <<<<< Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Höfundur og endurvinnsla ljósmynda:
Jón Ólafur Björgvinsson
Forsíðu ljósmynd:
Ljósmyndari: Hannes P. Baldvinsson.
Guðbrandur Magnússon á þríhjóla vespu.
Allar ljósmyndir eru birtar með leyfir frá Ljósmyndasafni Siglufjarðar.
Þakklætiskveðja til Steingríms Kristinssonar fyrir aðstoð, góð ráð og yfirlestur.
Aðrar áhugaverðar myndasyrpur sögur með mörgum minningum og myndum frá liðnum tíma:
SIGLFIRSK FARARTÆKI OG ÝMIS SKRAPATÓL. 2 HLUTI. 65 MYNDIR
BASSI MÖLLER. MINNING UM MANN. 25 MYNDIR
HEIMSFRÆGAR SKÚTUR OG MYNDAALBÚM SÆNSKRA SÍLDVEIÐIMANNA. 50 MYNDIR
MINNINGAMYNDASAGAN SEM ALÞÝÐA ÍSLANDS SAFNAR OG SMÍÐAR
SIGLÓ SÍLD! ÚR MYNDASAFNI BJÖRGVINS VERKSTJÓRA. 60 MYNDIR
ÖRSÖGUR ÚR MYNDAALBÚMI ÁSTVALDS (50 MYNDIR)
HRÍMNIR H/F. SÍLDARTUNNUR UPPÁ ÞAKI OG SUNDLAUG Í KJALLARANUM. 35 MYNDIR
PÓLITÍSKT UPPELDI Í SÍLDARLAUSUM SÍLDARBÆ. 50 MYNDASYRPUSAGA
HAFÖRNINN! EIGIN HEIMUR OG ÓVÆNT HEIMSÓKN. 70 MYNDIR.
RÁÐHÚS- TORGIÐ OKKAR FYRR OG NÚ… 1 HLUTI og 2 hluti 100 MYNDA-SYRPUSAGA
MYNDASYRPUSAGA: SIGLUFJARÐAR – LJÓSMYNDARINN HANNES BALD. FYRRI OG SEINNI HLUTI (100 MYNDIR)
GRÍMUBÚNINGAR & LJÓSMYNDASTOFA SIGLUFJARÐAR / MYNDASYRPUSAGA
KAÐLA OG KLIFUR ÆVINTÝRA MYNDASYRPUSAGA
JÓLASVEINNINN Í KJÖTBÚÐINNI ER AFI MINN
HRUN OG BRUNI – MYNDASYRPUSAGA
SUNNUDAGUR Í ZÍON OG FL. SKEMMTILEGT!
MEISTARI HLÖÐVER! GEFÐU OKKUR FRÍ. “MYNDASYRPA”
HORFIN ÆVINTÝRAHEIMUR: SKOGER, EVANGER, TORDENSKJOLD… OG ÉG! 1 og 2 HLUTI
HEBBI MÁLARI OG NORRÆN SÍLDARSÖGU VINÁTTA. 1 – 4 HLUTI.
MYNDASYRPA: SIGLUFJÖRÐUR UM 1960
100 ára afmæli! Göngutúr um heimahaga, 7 hluti, SIGLFIRSKT ! 80 myndir
Þessi mynd úr safni Gísla Halldórssonar sem hann tók sjálfur er svo flott að hún verður bara að fá að fljóta með. “Fljúgandi virki.” Staður og stund er óþekkt. Ljósmyndari: Gísli Halldórsson.