Myndir af þeim félögum Leifa og Sigga múrara, Þar sem þeir unnu hlið við hlið við vandasamt verk inni í einum af þremur þurrkyndihólfum S.R.46 verksmiðju. Og voru þar að auki með sinn hvorn handlangarann til aðstoðar.
Þetta var sennilega ekki það eina sem Palli sagði ráðherranum frá. Hvað það var nákvæmlega fékkst ekki uppgefið.
Nokkrum dögum síðar færði Leifi mér viskíflösku sem þakklæti fyrir myndirnar. Sennilega hefur Palli einnig fengið eina slíka. (að minnsta kosti)
Ljósmyndirnar eru í eigu Ljósmyndasafns Síldarminjasafnsins.
Ljósmyndarinn: Steingrímur Kristinsson
---------------------------------------------------
Þorleifur Hólm, f. 25, maí 1910 á Siglufirði, d. 18. apríl 1988 á Siglufirði.
Foreldrar Lárus Blöndal Bjarnason skipstjóri f. 17. júní 1894 d. 30 janúar 1954 í Reykjavík og Kristín Bessadóttir f. 13. júlí 1886 á Siglufirði d. 25. júní 1936 á Akureyri.
Iðnbréf samkvæmt ráðherraveitingu 1936. Félagi í Múrarafélagi Reykjavíkur.
Kona hans Sesselía Jóhanna Jónsdóttir f. 26 mars 1905 á Haugasundi Árskógshreppi Eyjafirði, d. 7 júní 1989 á Siglufirði. Foreldrar hennar; Jón Jóhannssonsjómaður á Árskógströnd, f. 26 október 1864 á Selá Árskógshreppi og kona hans Kristín Loftsdóttir f. 17 júní 1863 á Dalvík, d. 1 mars 1929 á Árskógströnd.
Börn þeirra Þorleifs og Sesselíu:
1. Hafsteinn Hólm, næst kom
2. Elva Hólm fædd 10. apríl 1936, dáin 6. mars 2007;
3. Sverrir Hólm fæddur 23. febrúar 1942, dáinn 19. apríl 1942
4. Kristinn Jón Hólm fæddur 2. júlí 1943, búsettur á Akureyri ásamt fjölskyldu sinni,
5. Þyri Sigríður Hólm fædd 21. apríl 1946, dáin 21. október 1977 og
6. óskírð Hólm fædd og dáin 8. september 1947. -
Ofanritaðar heimildir (Viðbót) eru að hluta frá „Múraratal og steinsmiða“ frá árinu 1936 gefið út af Múrarafélagi Reykjavíkur og Múrarameistarafélagi Reykjavíkur-
Hvað varðar fullyrðingu þar, um ráðherrabréf til handa Leifa árið 1936, þá finnst mér það vera nokkuð ólíklegt þar sem aldrei hafði Leifi nefnt það við mig eða vinnuveitanda sinn þann áratug sem ég vann með honum og að hann var undir sífeldum kærum og kvörtunum frá múrurum á Siglufirði og að auki kærum vegna vinnu hans við múrverk, kærur sem náðu alla leið til ráðherra árið 1963 sem endaði með Ráðherra réttindum út gefið af Bjarna Benedikssyni til handa Þorleifi Hólm.
Þá tilskipun sá ég með eigin augum mínútu eftir að hann tók við því úr hendi yfirmanns síns, Páli G Jónssyni byggingameistara. S.K.
Hinsvegar gæti verið að iðnheitið "Steinsmiður" og "ráðherratilskipun 1936" hafi verið gefin út og hafi gilt sem slíkt, en Leifi hafði lengi framleitt gangstéttarhellur og álíka, jafnvel legsteina ofl. En þetta nefndi Leifi aldrei, hvorki við Pál verkstjóra sinn hjá SR, né vinnufélaga,