Frú Andrea giftist:
Sigurður Jónsson, Guðmundssonar, frá Danghúsum í Fljótum, hinum mætasta manni, sem látinn er fyrir allmörgum árum. Börn þeirra, uppkomin, eru 8, allt gjörvilegt og harðduglegt fólk, svo sem þau eiga kyn til, og er þeirra kunnugast Kristján Sigurðsson, bæjarfulltrúi, sem flestum lengur hefur átt sæti í bæjarstjórn Siglufjarðar, og hefur haldið hæst á lofti merki jafnaðarstefnunnar hér í Siglufirði.
Frú Andrea er gagnmerk kona, dugleg og hreinskiptin. Blaðið Neisti leyfir sér, í tilefni áttræðisafmælis hennar, að þakka henni öll árin, sem að baki eru, og árna henni giftu og gengis í framtíðinni.
------------------------------------------------------
Andrea Sæby, var fædd þann 24.10. 1883, dáin. 14.10. 1970 - Enga minnigagrein fann ég um þessa merku konu, ekki einu sinni í Neista (sk)
Vantar mynd