trolli.is 27. Mars 2021 Jón Ólafur Björgvinsson
1993 – ÞÖKK SÉ FÁUM,
GETA ALLIR DRAUMAR RÆST!
INNGANGUR
Ég fann þennan Siglfirska fallega myndskreytta „framtíðadraumabækling“ frá 1993 í stórtiltekt hér heima í Svíþjóð. Þetta litla ritverk frá Átaksnefnd FÁUM (Félag áhugamanna um Minjasafn) fékk ég í hendurnar sumarið 1996 sem fyrsti ferðamálafulltrúi bæjarins.
Þegar maður les og skoðar vel innihaldið þá er það augljóst að SUMIR eru duglegri en aðrir við að dreyma STÓRT.
Þessi 19 bls. bæklingur sýnir okkur líka að hinn einstaki „við gerum þetta bara sjálf“ Siglfirski andinn lifir og virðist hreinlega geta flutt fjöll.
28 ára gamall bæklingur miðlar til mín óbilandi framtíðartrú og krafturinn úr þessum draumum sem koma úr þeim tíma þar sem kröftugir mótvindar blésu, löngu fyrir opnun Héðinsfjarðargangna, fer í rauninni langt fram yfir allar væntingar eins og sjá má heima á Sigló í dag.
Andinn sem ríkti á þessum tíma var mikið: „eigum við ekki bara frekar að kveikja í þessu síldarminja drasli?“
Róbert Guðfinnsson sjálfur, hefur viðurkennt opinberlega að þegar Örlygur Kristfinnsson kom að máli við hann til þess að betla pening á sínum tíma á skrifstofu Þormóðs Ramma, þá bauðst okkar mikli ferðamennsku uppbygginga frumkvöðull til þess að gefa Örlygi frekar eldspýtustokk.
Það er næstum spaugilegt að í bæklingnum er talað um kvöldvökur og gistimöguleika í Sunnu brakkanum (Tynesbragganum) og þar stendur nú „Sigló hótel“ flotta hótelið hans Robba og allt í kringum okkur, margt annað sem nefnt er í þessum draumabækling.
Þökk sé „FÁUM” og seinna Robba okkar og nokkrum öðrum stórhuga innfæddum og aðfluttum Siglfirskum einstaklingum með óbilandi framtíðartrú, þá var hér á sínum tíma lagður grunnur fyrir öllu því stórkostlega sem við sjáum fyrir framan nefið á okkur heima á Sigló í dag.
Það eina sem mér finnst sárt og sorglegt er að á bls. 14 er teikning undir nafninu “Merkileg húsasamstæða” er að ekki virðist vera til áhugi í að finna okkar sögufræga kvikmyndahúsi Nýja Bíó nýtt hlutverk í Siglfirsku menningarlífi.
Getur ekki bankinn sem hét áður Sparisjóður Siglfirðinga sem á þetta hús í dag hreinlega gefið FÁUM eða Fjallabyggð þetta merkilega miðbæjarhús… og kannski Hótel Hvanneyri líka?
Ég hef engar áhyggjur af hinum þremur húsunum á myndinni, þau eru öll í notkun og í góðum höndum.
Inngangur, samtekt og myndvinnsla:
Jón Ólafur Björgvinsson
Heimildir:
Ferðamennska á Siglufirði, Hugmyndir og tillögur.
Átaksnefnd Fáum 1993
Höfundar texta:
Birgir Steindórsson og Örlygur Kristfinnsson.
Teikningar:
Örlygur Kristfinnsson.
Prentvinnsla:
(Siglfirska útgáfufélagið hf. / Oddi hf.1993)
Aðrar áhugaverðar nýlega birtar myndasyrpur og sögur með mörgum Siglfirskum minningum og myndum:
ERT ÞÚ ÁTTAVILLTUR SIGLFIRÐINGUR?
TÍMASPEGILLINN Á MILLI ÁLFAKIRKJU OG ÁLAGABOLLA
GUÐSGJAFAR DRENGURINN OKKAR ALLRA
MARGRÉT SI 4 OG FYLLERÍ ALDARINNAR SEM LEIÐ
RÁÐHÚS- TORGIÐ OKKAR FYRR OG NÚ… 1 HLUTI. 60 MYNDA-SYRPUSAGA
RÁÐHÚS- TORGIÐ OKKAR FYRR OG Í FRAMTÍÐINNI… 2 HLUTI. MYNDA-SYRPUSAGA
SKYNDIKYNNABARN? SANNLEIKURINN SEM ALDREI VAR SAGÐUR
UM SIGLFIRSK VIÐURNEFI: ÉG HEITI EFTIR AFA MÍNUM…
FÁEIN ORÐ UM ÞORMÓÐ EYJÓLFSSON
SUNNUDAGSPISTILL: „ATHUGIÐ AÐ SIGLFIRÐINGAR ERU FLEIRI EN ÍSLENDINGAR“
SIGLFIRSKIR VILLIKETTIR OG ROTTUR HIMINSINS
MYNDASYRPUSAGA: SIGLUFJARÐAR – LJÓSMYNDARINN HANNES BALD. FYRRI HLUTI (50 MYNDIR)