Jóhann Landmark f. 22-10-1887 d. 29-11-1959 Trésmiður á Siglufirði.
Mjölnir 22 október 1947:
Jóhan Landmark, Hafnargötu 10, á sextugsafmæli í dag (1947)
Jóhan er norskur að ætt, en tók sér búsetu hér árið 1915.
Stundaði hann fyrst síldarsöltun en allmörg hin síðari ár hefir hann starfað við trésmíði, mest hjá Síldarverksmiðjum ríkisins. Er Jóhann hinn besti samstarfsmaður, léttur í lund og trygglyndur, en ákveðinn ef því er að skipta.
Vil ég óska honum gæfu og gengis á óförnum árum, sem ég vona, að verði bæði björt og hlý.
Jóhann og kona hans
Valgerður Ólavía Eðvaldsdóttir Landmark, f. 1891, d. 1980
Þau áttu kjörbarn sem hét
Ester Landmark, hún fæddist á Akureyri 16. maí 1915. Hún lést þriðjudaginn 24. janúar 2006 -Uppeldissystir hennar var
Steinfríður Petra Landmark, f. 1921, d. 1988.
Jóhann Landmark
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Neisti 3 desember 1957
JÓHANN LANDMARK. Þann 22. okt. s.l. varð Jóhann Landmark trésmiður, Hafnargötu 10, sjötugur. Jóhann er norskur að ætterni og fluttist hingað til Siglufjarðar 1916. Hann hefur lengst af stundað trésmiðastörf hjá Síldarverksmiðjum ríkisins af mikilli skyldurækni og trúmennsku. I hópi samverkamanna er Jóhann skemmtilegur og afbragðs félagi. Jóhann hefur skipað sér í raðir jafnaðarmanna og reynzt góður liðsmaður.
Sextugsafmæli Jóhann Landmark, Hafnargötu 10, á sextugsafmæli í dag. Jóhann er norskur að ætt, en tók sér búsetu hér árið 1915. Stundaði hann fyrst síldarsöltun en allmörg hin síðari ár hefir hann starfað við trésmíði, mest hjá Síldarverksmiðjum ríkisins. Er Jóhann hinn bezti samstarfsmaður, léttur í lund og trygglyndur, en ákveðinn ef því er að skipta. Vil ég óska honum gæfu og gengis á óförnum árum, sem ég vona ,að verði bæði björt og hlý.
Siglfirðingur
********************************************************
Sextugsafmæli Miðvikudaginn 22. okt. s.l. var Jóhann Landmark, Hafnargötu 10, sextugur. Jóhann er norskur að ætterni. Kom hingað til lands 1913 en settist hér að 1915 og hefur dvalið hér síðan. Jóhann hefur undanfarin ár stundað trésmiðar hjá Síldarverksmiðjum ríkisins. I hópi samverkamanna er Jóhann skemmtilegur og góður félagi enda nýtur hann mikilla vinsælda allra þeirra, sem hafa kynnzt honum. Fjöldi vina heimsóttu hann á afmælisdaginn og barst honum fjöldi góðra gjafa. Jóhann Landmark hefir skipað sér í raðir jafnaðarmanna og reynzt traustur liðsmaður. Neisti flytur Jóhanni bestu árnaðaróskir Alþýðuflokksmanna, með þökk fyrir samstarfið á liðnum árum.
*******************************************************
Athugasemd SK, er þetta var fært 2020:
Næsta blað Neista kom svo ekki út fyrr en 13. maí 1960 og þar var að finna fjórar litlar minninga „greinar“ um fólk sem nýlega hafði látist. En hvergi greint frá Jóhanni Landmark. Neisti virðist hafa gleymt símum digga samstarfsmanni sínum.
Neisti - 23. desember 1959 Neisti -
Þessi auglýsing hér fyrir neðan var fyrsta og eina vísbending sem ég fann, um að Johan Landmark færi dáinn.
Og í örlitlum dálki varla sjáanlegt, neðst í horni á sömu blaðsíðu og auglýsingin,var svohljóðandi setning;>
„Hins ágæta manns, Jóhanns Landmarks, verður minnst í næsta blaði.“
Neisti 23. desember 1959