trolli.is 27. febrúar 2021. Jón Ólafur Björgvinsson
RÁÐHÚS- TORGIÐ OKKAR FYRR OG Í FRAMTÍÐINNI…
2 HLUTI. MYNDA-SYRPUSAGA
Í þessum seinni hluta byrjum við með að kíkja á þetta…
…BÆJARSKIPULAG OG BEINAR LÍNUR.
FRÁ AÐALGÖTUNNI… TIL GUÐS?
Síðan koma kaflaheitin:
Á MILLI AÐALGÖTU OG GUÐS…
VANDRÆÐAGATNAMÓT ÞÁ OG NÚ?
FRAMTÍÐ TORGSINS OKKAR?..
… og þar er greinarhöfundur sko ekkert að skafa af því hvað honum finnst um vissa hluta af þessum framtíðardraumum.
ÚT UM GLUGGANA HJÁ GESTI FANNDAL MINNINGAR FRÁ TORGINU
OG … mynd af… hmm.. hmm… SEM HVARF… og þar á eftir stutt lokaorð til ykkar allra.
Bæjarskipulags teikning frá 1969.
Mynd lánuð frá greinaseríunni: Furðulegar götur 1 – 5 Hluti. HÚS
Falleg vetrarmynd frá Torginu okkar.
Ljósmynd: Hinrik Andrésson.
Greinarhöfundi, sem og mörgum öðrum hefur þetta einstaka Siglfirska miðbæjarskipulag lengi verið kært umtalsefni og ég lána eftirfarandi orð frá sjálfum mér í fyrsta hluta greinarseríunnar Furðulegar götur:
“Maður sér framtíðartrú í stóru miðbæjartorgi og Aðalgötu með risastórri kirkju í öðrum endanum.
En á eyrinni eru líka hús sem pössuðu ekki alveg inn í þessa heildarmynd og standa á ská við götuna eða á milli gatna.
Líklega vegna þess að þau stóðu þarna áður en Séra Bjarni tók málið í sínar hendur.
Þessi greinarsería fjallar nú reyndar ekki svo mikið um skipulagið á eyrinni, heldur meira um furðulegar götur sem eru í tveimur og þremur hlutum upp í fjalli, byrja, slitna og byrja aftur og það er ekkert einfalt fyrir ókunnuga að finna þessar slitnu götur.
En Siglfirðingar kunna þetta og það er ákveðinn sjarmi yfir þessari “gatnamála vitleysu”.
Bein lína frá Aðalgötunni og heim til Guðs!
Ljósmynd: Sigurður B Jóhannesson.
Mynd lánuð úr myndasyrpu sögunni: SIGLUFJÖRÐUR UM 1960
Siglufjörður.
Ljósmynd: Kristín Sigurjónsdóttir.
Séð úr kirkjuturninum yfir torgið og nágrenni á Siglufirði.
Ljósmynd: Gunnar Smári Helgason.
Sagan segir að Séra Bjarni hafi frá fyrstu byrjun séð fyrir sér stóra glæsilega kirkju miðsvæðis á eyrinni.
Greinarhöfundur hefur einnig haft hugleiðingar um staðsetningu Siglufjarðarkirkju áður og lánar hér texta og gamla ljósmynd frá sjálfum sér úr ferðasögugreininni:
SUNNUDAGSPISTILL: FALLEG SÖGUFRÆG KIRKJA (20 LJÓSMYNDIR)
“… í leit minni að síldarsögum hér á vesturströnd Svíþjóðar sem tengjast mínum fagra Siglufirði get ég ekki að því gert að ég verð oft mjög svo forvitinn um einmitt kirkjuna í bænum og í huga mér koma upp allskyns spurningar.
Af hverju stendur þessi risastóra kirkja akkúrat þarna og ekki í miðbænum í þessum litla samfélagi ?
Af hverju snýr hún svona norður/suður og ekki austur/vestur ?
Mega kirkjur snúa hvernig sem er ?
Ég kemst ekki hjá því að bera þær allar saman við kirkjuna mína á Sigló en hennar sögu kann ég vel. Skírður og fermdur þarna í þessu “í dag” of stóra fallega Guðshúsi og svo man ég þann tíma líka þar sem ég var í sjóvinnuskóla uppi á kirkjuloftinu.”
Siglufjarðarkirkja er á réttum stað og snýr “RÉTT”
Ljósmyndari: Kristfinnur Guðjónsson.
Séð upp Aðalgötuna, í vesturendanum blasir við risastór kirkja og í austurendanum söltunarplan og glæsilegur hraðbátur við bryggju.
Beinar línur.
Ljósmyndari óþekktur.
Á þessari gömlu mynd sjást þessir ferhyrningar vel, því það er ekki búið að fylla upp í þá alla með húsum eða verksmiðjum.
Á MILLI AÐALGÖTU OG GUÐS…
… Standa bæði hótel og hús!
Skátar og... í skrúðgöngu á leið til kirkju.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson.
Á þessari ljósmynd sjást hús sem eru fyrir “Beinu línunni” frá Aðalgötunni og beint að Guðshúsinu flotta. ATH! Mörg horfin hús í bakgrunninum líka.
Næst á myndinni hér fyrir ofan má sjá ofan á þak hússins Lindarbrekku, síðan Hótel Siglunes. Þá Túngötu 1 þar sem Ingibjörg Jónsdóttir og Þorgrímur Brynjólfsson ráku lengi verslun og síðar fleiri – Þá Gömlu mjólkurbúðina og Náttúrulækningabúðina, og aftar Blöndalshúsið, Tórahúsið, var það lengi líka kallað (þar bjó til margra ára Ólafur Thórarensen og svo má einnig sjá húsið sem Gulli Jóns og fleiri bjuggu í……………ofl.
Á milli kirkju og Aðalgötu voru bara tröppur upp að hótel Siglunes í denn.
Ljósmynd: Jóhannes Jósefsson.
Enginn klukka á kirkjuturninum.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson.
Ekki lengur svo mikið á milli Aðalgötu og kirkju.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Þetta glæsilega hús var nú reyndar ekki fyrir einum eða neinum…. en Kaupfélaginu vantaði ljótan lager-lókal.
Ljósmyndari: Steingrímur Kristinsson.
Það er mér persónulega sárt að þetta virðulega hornhús með þessum flotta turni hafi verið látið hverfa. Því þarna uppi á þriðju hæð leigðu ég og mín fyrrverandi sambýliskona 6-7 herbergja íbúð með glæsilegu útsýni yfir Torgið og Aðalgötuna.
Á miðhæðinni voru skrifstofur Olís og fl. og á jarðhæð gamla verslunarhúsnæði Kaupfélagsins og vörumóttaka í norðurendanum.
VANDRÆÐAGATNAMÓT ÞÁ OG NÚ?
Já, þessar þrjár götur sem leiða okkur að torginu úr suðurátt hafa alltaf átt erfitt með að mætast á þessu einkennilega götuhorni og ekki hefur þetta lagast við að einmitt þessi gatnamót urðu síðan hluti af þjóðveg sem liggur í gegnum bæinn.
Nótabátar á gatnamótum.
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Gatnamót Suðurgötu, Snorrabrautar og Gránugötu.
Lengi vel litu þessi gatnamót út svona
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Holur á gatnamótum
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Einhverskonar gatnamót og undirbúningur niðurrifs. Slökkvilið bæjarins bjargar - X ALBERT kosningarskilti
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Suðurgata 8 rifið.
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
FRAMTÍÐ TORGSINS OKKAR?
Greinarhöfundi hefur borist til eyrna að stórar og miklar og nú þegar samþykktar framtíðar áætlanir séu til um TORGIÐ okkar og að það séu mjög svo skiptar skoðanir meðal bæjarbúa um ágæti þessara framtíðar drauma.
Persónuleg finnst mér að syðri hlutinn á skipulagsplaninu sé bara nokkuð góð lausn á ofannefndu vandræðagatnamóta málefnum.
Þessir möguleikar eru nú þegar til staðar eftir að Egilssíldarhúsið hvarf og sagt er að við viljum ekki lengur hafa tjaldstæði inn í miðjum bæ.
En þetta með að Torgið verði skorið niður í Pizzusneið er fáránlegur óþarfi til þess eins að skapa meira ljótt malbik og fleiri bílastæði og það eitt er líka algjör helgispjöll á þessum heilaga stað.
Þarna er í mínum huga verið að yfirgefa FERNINGA og “beina línu” hugmyndafræði Séra Bjarna sem einkenna allt skipulag í miðbænum og á allri eyrinni.
Mynd lánuð úr SAMÞYKKTU deiliskipulagi, undirritað 11 september 2017.
Nei takk og mér er dauðans alvara þegar ég segi:
Fólk getur, andsk… hafi það, gengið 50 metra frá bílnum sínum og yfir í Kaupfélagið……
Burt með bílana eins mikið og hægt er og inn með meiri gróður og grænt. Við skulum frekar skapa lifandi miðbæjartorg þar sem fólk vill hittast og getur talað saman án umferðahávaða. Í dag vilja flestir sem búa í borgum og bæjum minnka bílaumferð með því að bílum er lagt utanvið miðbæjarsvæðið. Stundum finnst mér eins og að Íslendingar vilji helst geta keyrt inn í búðirnar eða hreinlega versla allt í gegnum bílaafgreiðslulúgu.
Í rauninni upplifði ég alltaf mínar bestu stundir á Sigló sem sumardrengur þá örfáu daga sem Aðalgötunni er breytt í göngugötu og lokuð fyrir bílaumferð.
Held við vinnum meira á að skapa gönguvænlegt umhverfi en fleiri bílastæði vestan við torgið og þessi lausn skapar bara umferðatafir með bakkandi bílum út á þjóðveg og það eitt verður einnig mikil slysagildra fyrir göngulata Kaupfélagskúnna.
Eða hvað finnst þér kæri lesandi og velunnari Siglfirskra hefða og sögu ?
FJALLABYGGÐ – SIGLUFJÖRÐUR. MIÐBÆR, DEILISKIPULAG.
Greinargerð og skipulags- og byggingarskilmálar. 2017.
ÚT UM GLUGGANA HJÁ GESTI FANNDAL
Við vorum svo heppin að sá sem bjó lengst af öllum við Ráðhústorgið okkar hafði mikinn ljósmyndaáhuga og hann Gestur okkar Fanndal tók einfaldlega margar skemmtilegar myndir út um gluggana á þessu sögufræga heimili/verslunarhúsi
Um vetur var Torgið okkar oftast notað sem skógeymsla
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Síldarævintýrið á Siglufirði.
Ljósmynd: Gestur Fanndal
ATH! Göngustígur í eina átt yfir Torgið
Samkoma við Torgið/Aðalgötuna.
Ljósmynd: Gestur Fanndal
ATH! Takið eftir hvítu “gangið ekki á grasinu” girðingunni.
Ráðhús ennþá í byggingu… eða?
Ljósmynd: Gestur Fanndal
Þó loksins orðið þrjár hæðir
MINNINGAR FRÁ TORGINU
Við eigum okkur öll minningar tengdum Ráð’ “náðhúsartorginu” okkar heima á Sigló og þær minningar eru líklega af ýmsum toga og fara líklega mikið eftir aldri og kyni og í hvaða erindagjörðum maður fór niður á TORG.
En það er örugglega þannig að margar kynslóðir muna mikið eftir því sama og þá held ég að Gústi Guðsmaður sé sá sem við munum best eftir að hafa hitt á Torginu.
Í þessum loka kafla eru nokkrar ljósmyndir sem ég tengi sterkt við minningar tengdar Torginu. Þarna er fólk sem maður sá og hitti oft gegnum öll sín æskuár, eins og t.d. vinirnir Barði og Ægir sem stóðu annaðhvort í Kaupfélagsskotinu eða Bankaskotinu… það fór svona mest eftir því hvernig viðraði.
Góðir vinir á spjalli. Barði Ágústsson (Sæby) og Ægir Jóakimsson
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Guðsmaður í góðum gír á Torginu.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Gústi Guðsmaður er mættur aftur á TORGIÐ.
Ljósmynd: Kristín Sigurjónsdóttir.
Gústi er komin aftur á Torgið í styttu formi og vert er að muna að styttan sjálf er gerð eftir fyrirmynd frá frábærri ljósmynd sem Árni Jörgensen tók á sínum tíma. Slíkur er máttur góðra ljósmynda að þær geta orðið styttur og okkur um alla eilífð minningar og sögu efni úr horfinn tíð.
Torgið og okkar fræga Nýja Bíó stofnað 1924 með réttu nafni
og íklætt fallegum snyrtilegum litum.
Ljósmynd: Guðný Ósk Friðriksdóttir.
En ég á mér margar og góðar minningar tengdum þessu húsi, barnabíó, allskyns skemmtanir og leikfélags þátttaka o.fl.
Það er sárt að ekki sé hægt að finna þessu húsi nýtt hlutverk í miðbæjarlífinu í dag.
Bíóbarinn.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Alltaf gott að koma þangað og fá sér Thóraís eða kannski eina Valash appelsín í gleri með alvöru mjúku lakkrísröri til þess að hægt og rólega sötra í sig ljúft innihaldið. --
Viðbót frá Steingrími. Þegar Thorarensen rak bíóið sá hann um Tóraísinn, og hann blandaði að megninu til rjóma og einhverjum bragðefnum saman við löginn áður en að frystingu kom
En Thórarensen flutti síðar til Reykjavíkur, hætti öllum afskiftum af rekstri og eftir lét tveim af sonum sínum eftir hús sín, rekstur og verslun.
Óli sá um verslunina alfarið sem staðsett var við Aðalgötu 34 (Útvegsbankahúsið) og Oddur sá um Nýja Bíó og tilheyrandi.
Um tveim árum eftir að Oddur tók við rekstri Nýja og tilheyrandi, það frétti Guðrún kona Odds af því að erlendis væri vinsæll ís sem kallaður væri mjólkurís. Hún mixaði ísblöndu sem að megni til var undanrennuduft, blandaði mjólk + ýmsu bragðrefnum.
Hún gerði nokkrar tilraunir heima í eldhúsi og valdi síðan uppskrift sem þeim hjónum þótti best og gáfu ísnum nafnið Bíóís
Þessi ís varð síðar landsþekktur fyrir hið ljúffenga bragð, bragð sem allir eldri Siglfirðingar muna eftir.
Þessa sömu uppskrift fékk ég og fjölskylda mín í kaupbætur, þegar við keyptu Nýja Bíó og tilheyrandi.
En Nýja Bíó áttum við og rákum í um 13 ár (til 1999)
Þess má geta að með stuttu millibili að tvö stór mjólkurís framleiðslufyrirtæki, föluðust eftir uppskriftinni en fengu ekki.
Torgið og Sigurvin, báturinn hans Gústa Guðsmanns séður út um annan glugga af Gesti Fanndal sem hlýtur að hafa verið í heimsókn hjá sögumanninum okkar Leó Óla í Schötarahúsinu hans við Aðalgötuna.
Frá vinstri Barði Ágústsson, Eysteinn Aðalsteinsson í fiskibúðinni og Ásgeir Björnsson (Á Nesi) vélstjóri.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
ATH. Norðurhlið Ráðhússins er enn ópússað 1990.
Björn Þórðarson og Jósafat Sigurðsson, fyrir utan fiskbúð Jósa og Bödda.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Alltaf gaman að koma í fiskbúðina og ekki síst í hádegismat hjá Eysteini og Abbý í litlu kompunni innan við búðarborðið. Þetta var hálfgerður leyni veitingastaður og það var kannski lágt til lofts þarna inni, en stórt hjarta og húmorinn hjá þeim hjónum og þeirra gestum fékk mann að gleyma stað og stund. Held ég hafi hvergi annarstaðar upplifað eins sterkt og akkúrat þarna að ég var í HJARTA Siglufjarðar.
Algjörlega í miðjunni á nafla alheimsins og svo sannarlega á RÉTTUM stað.
Guðmundur Davíðsson og Karl Eskil Pálsson ( Verslunin Álfhóll)
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Á unglingsárunum eyddi maður aleigunni í tískuföt og risastórar steríógræjur í Álfhól hjá þeim Kalla Páls og Gumma Davíðs og ef eitthvað var eftir í buddunni þá fór það líka í vasann hjá Guðmundi… og frú á “Billanum” rétt rúmlega 100 metrum innar í Lækjargötunni.
Barnagarðarútan “… og mamma bíður á Torginu... Volli.. volli… volli, Vei. Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson.
Leikskálarútan við Bifreiðastöðina.
ATH. Ekki búið að sletta málningu á hvorki kirkjuturn eða Útvegsbankahús.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson.
Símaklefi.
Þetta var allavega það merkilegt alvöru torg að Póstur og Sími setti upp þennan líka flotta símaklefa á sínum tíma.
Maðurinn á myndinni heitir Atli Angantýrson.
Steingrímur hefur tekið myndir á Sigló í yfir 70 ár og veit allt um sögu bæjarins og ljósmyndun og gömul tæki og tól. Ljósmyndari: Jón Ólafur Björgvinsson.
Síðan vill ég minna alla á, sem finnst það mikilvægt að við eigum þennan sögufjársjóð áfram í tiltæku nútíma alnets formi að við þurfum að aðstoða Síldarminjasafn Íslands sem í dag er formlegur eigandi af þessum stóra sameiginlega ljósmyndafjársjóði við að koma þessum 180.000 myndum í betra gagnabanka form. Þar sem við öll getum á einfaldan máta sett inn leitarorð og líka haldið áfram að segja söguna saman um það sem sést á myndunum.
RÁÐHÚS- TORGIÐ OKKAR FYRR OG NÚ… 1 HLUTI. 60 MYNDA-SYRPUSAGA
Bestu Siglósaknaðarkveðjur til ykkar allra
Nonni Björgvins.
Höfundur og myndvinnsla:
Jón Ólafur Björgvinsson
Forsíðu ljósmynd:
Gestur H Fanndal.
Aðrar ljósmyndir eru birtar með leyfi frá Ljósmyndasafni Siglufjarðar og frá ættingjum Hannesar P Baldvinssonar.
Heimildir:
Myndir og skýrsla frá Skipulagsstofnun o.fl.
Þakklætiskveðjur fyrir yfirlestur og góðar ábendingar sendi ég þeim:
Steingrími Kristinssyni, og Sólveigu Jónsdóttur.
Aðrar áhugaverðar nýlega birtar myndasyrpur og sögur með mörgum Siglfirskum minningum og myndum:
UM SIGLFIRSK VIÐURNEFI: ÉG HEITI EFTIR AFA MÍNUM…
FÁEIN ORÐ UM ÞORMÓÐ EYJÓLFSSON
SUNNUDAGSPISTILL: „ATHUGIÐ AÐ SIGLFIRÐINGAR ERU FLEIRI EN ÍSLENDINGAR“
SIGLFIRSKIR VILLIKETTIR OG ROTTUR HIMINSINS
MYNDASYRPUSAGA: SIGLUFJARÐAR – LJÓSMYNDARINN HANNES BALD. FYRRI HLUTI (50 MYNDIR)
MYNDASYRPUSAGA: SIGLUFJARÐAR – LJÓSMYNDARINN HANNES BALD. SEINNI HLUTI (54 MYNDIR)
GRÍMUBÚNINGAR & LJÓSMYNDASTOFA SIGLUFJARÐAR / MYNDASYRPUSAGA
KAÐLA OG KLIFUR ÆVINTÝRA MYNDASYRPUSAGA
JÓLASVEINNINN Í KJÖTBÚÐINNI ER AFI MINN