Einherji 5. október 1946
Síldarverksmiðjur ríkisins unnu úr 55,95% bræðslusíldaraflans.
Aflahæsta skip flotans var Siglfirska skipið “Dagný”.
Síldarsöltunin nam rúmum 158 þúsund tunnum af Norðurlandssíld.
Þann 14. september hættu síldarverksmiðjurnar á Norðurlandi að taka á móti síld í bræðslu, höfðu þá verksmiðjunum borist 1.171.514 hektólítrar af síld. Bræðslusíldaraflinn skiptist þannig niður á verksmiðjurnar í landinu:
Síldarverksmiðjur ríkisins hafa eins og yfirlitið ber með sér unnið úr rúmum helming bræðslusíldarmagnsins, sem á land hefur borist í sumar. Hér fer á eftir yfirlit, sem sýnir vinnslu ríkisverksmiðjanna árin 1942-1946:
1942: 549.146 mál.
1943: 719.394 -
1944: 919.950 -
1945: 162.380 -
1946: 460.892 -
Síldarsöltunin:
Samtals hafa verið saltaðar í sumar 158.313 tunnur af Norðurlandssíld. Skiptist söltunin þannig á milli stöðvanna:
Dalvík
Hofsós
4.994 -
1.687 -
Söltun Faxasíldar nam um síðustu helgi 6163 tunnum, og skiptist þannig á söltunarstaði sunnanlands.
Síldin á þessum tímum var ekki viktuð eins og frá árinu 1966 +/- heldur var mælt samkvæmt rúmmáli -
Undantekning var þegar síld var lestuð um borð í síldarflutningaskip, þá var rúmmálið látið gilda eftir komu farmsins um borð var síðan reiknað út frá eðlisþyngd síldarinnar, sem er rétt yfir eðlisþunga vatns (man ekki nákvæmlega)
En magnkvittun til síldarskipsins var í tonnum reiknuð.
Ath. sk:. 1 hektólítir er jafngildi 100 lítrar (metralíttar - 1 rúmmeter)
1 tunna var talin vera um 135 lítrar