Jónas Jónasson frá Nefstöðum í Fljótum.
Hinn 6. janúar 1962 lézt hann að heimili sínu, Hverfisgötu 3, Siglufirði.
Jónas var fæddur 3. marz 1892 að Ökrum í Fljótum.
Foreldrar hans voru þau hjónin
Sólveig Ásmundsdóttir og
Jónas Jónasson, sem þar bjuggu. Jónas var næst yngstur af 7 systkinum.
Hann dvaldist í foreldrahúsum til 1913.
Þá kvæntist hann
Jóhanna Jónsdóttir frá Brúnastöðum.
Jóhanna var mikil myndarkona og mikilhæf húsmóðir, eins og hún átti kyn til. Hin ungu hjón hófu búskap að Nefstöðum í Stíflu og bjuggu þar til ársins 1924, er þau fluttu til Siglufjarðar.
Þau eignuðust 5 mannvænleg börn og eru fjögur þeirra á lífi, öll gift:
Kári Jónasson, búsettur í Kópavogi,
Ingibjörg Jónasdóttir
Valtýr Jónasson vekstjóri og
Valey Jónasdótti kennari, öll til heimilis hér í bæ.
Gísla son sinn, hinn mesta myndarmann, missti Jónas 1950.
Fórst hann með skipinu Helga frá Vestmannaeyj um í aftakaveðri 7. janúar það ár, og er það slys eitt hið hörmulegasta, sem orðið hefur hér við land hin síðari ár. --
En sú harmsaga verður ekki rakin hér, enda flestum í fersku minni.
En meðal þeirra, sem þar fórust, Var annar Siglfirðingur, hinn mikli aflamaður og skipstjóri Arnþór Jóhannsson. —
Sonar missirinn var mikið áfall fyrir Jónas. Gísli Jónasson hafði, er hann fórst, lokið skipstjóraprófi og var í miklu áliti meðal sjómanna.
Mun Jónas hafa bundið við hann miklar vonir. Jóhönnu konu sína missti Jónas 1942.
Var sá missir mikið áfall fyrir hann og börnin, og mun Jónas hafa tregað hana til æviloka.........
Jónas Jónasson
Ljósmynd: Kristfinnur