sksiglo.is | Greinar | 19.05.2017 | 17:00 | Jón Ólafur Björgvinsson
Göngutúr um heimahaga. 9 hluti.
ÍÞRÓTTIR OG SKÓLI. (50 MYNDIR)
Boddi Gunnars, hnefaleikari. Bjarni Bjarnason
Ljósmynd: Kristfinnur.
Manstu þegar við....... segjum við oft við hvort annað þegar við hittumst á árgangsmótum og í öðru samhengi þegar við hittum gamla skólabræður og systur.
Á þessum árum bindumst við oft ævilöngum vináttuböndum, fylgjum hvort öðru í gegnum lífið og þrátt fyrir að maður hafi ekki hitt sumar persónur í 20 ár eða meira, líða bara nokkrar mínútur þar til að allir hafa dottið inní það hlutverk sem maður hafði í skólanum og sá persónuleiki sem formaðist á þessum árum kemur fram í gleði og sorg sem við deilum og eigum saman um alla ævi.
Það sama má segja um gamla íþróttafélaga og eilífðarvini sem maður eignaðist í gegnum þátttöku í íþróttum og allskyns félagsskap sem maður tók þátt
Þarna eru líka minningar um fólk sem var okkur fyrirmyndir í lífinu.
Kennarar, þjálfarar og aðrir sem trúðu á okkur, studdu okkur og hvöttu okkur til dáða í launuðum og ólaunuðum störfum.
Fólk sem formaði okkur, gerði okkur að manneskjum og formuðu okkar persónuleika miklu miklu meira en við kannski gerum okkur grein fyrir.
Ég er öllu þessu fólki óendanlega þakklátur fyrir að hafa aldrei gefist upp og fyrir að hafa trúað því statt og stöðugt að það væri til von um að ég yrði að manneskju einhvern tímann seinna í lífinu.
Sumir muna mikið og aðrir minna, einn gamall félagi sem ég hitti óvænt fyrir nokkrum árum man ekki neitt og að lokum greip mig sú tilfinning að hann vildi ekki muna eftir þeim tíma ævinnar þar sem hann var barnalegur og vitlaus. Nú þegar hann var orðinn svo vel menntaður, fullorðinn og í virðulegri stöðu, þá gat það bara ekki verið að hann hefði tekið þátt í prakkarastrikum og fíflagangi sem ég mundi svo vel eftir.
Þetta “minnisleysi” fór að lokum alveg ótrúlega í taugarnar á mér að ég æpti til hans:
HVAÐ ??? ER LÍFIÐ BÚIÐ AÐ BERJA ÚR ÞÉR BARNÆSKUNA ???
Hélt síðan einhverskonar ræðu yfir mann greyinu um hvað mér fyndist það ömurlegt að skólakerfið sem stanslaust þvingar í mann staðreyndir og gerir allt til að við hættum að vera barnaleg og rekur úr okkur ímyndunaraflið og hefur sem sitt eina markmið að að búa til ábyrga og duglega samfélagsborgara sem koma landinu til gagns í framleiðslu verðmæta og svo gleymum við að búa til almennilegar manneskjur............. Já.... og svo.... hmm.
Áttaði mig síðan á því að við erum líklega jafn ólík eins og við erum mörg, reddaði mér fyrir horn og spurði hann bara um hvað hann væri að gera í vinnunni, því það var greinilega staðreynd að allur hans persónuleiki var byggður á menntun og starfsheiti.
Hann fæddist greinilega 30 ára, fullorðinn og fullkominn.
Barnaskóli með viðbyggingu.
Carl Jóhann Lilliendahl sendi inn upplýsingar 28. júlí 2009
Barnaskólinn á Sigló. Sambyggða byggingin lengst til hægri á myndinni er leikfimisalurinn. Hann brann árið 1957 eða 1958. Hann var síðar endurbyggður og einni hæð bætt ofan á og skólastofum fjölgað eins og skólinn lítur út í dag.
oooOooo
Þegar foreldrar mínir gengu í þennan barnaskóla fóru allir í bekkja biðraðir úti og síðan fengu allir fljótandi lýsi úr tunnu sem stóð þarna við innganginn. Guði sé lof þá var búið að leggja þennan ósið niður þegar ég byrjaði þarna, við fengum lýsispillur með gulri húð sem var góð á bragðið, restinni stakk maður í vasann og henti í næstu frímínútum.
Minn fyrsti skóladagur byrjaði ekki beinlínis glæsilega, lenti í slag við verðandi bekkjabróðir sem rétt eins og ég var alls ekki til í að láta aðra segja sér að standa í röð, sitja þegjandi og hlusta á fullorðna sem vildu manni vel. Ég beit mig fastan á vinstra eyra hans, eins og Mike Tyson og sleppti ekki fyrr en Benidikt Sigurðsson sleit mig af eyranu. Mamma þurfti svo að sitja með mig þessu brjálaða barni í skólanum í heila viku.
Hér á eftir koma 50 ljósmyndir úr okkar óendanlega minningarfjársjóði sem til er í Ljósmyndasafni Siglufjarðar, myndir hef ég valið af handahófi í þema um íþróttir og skóla. Sumar af þeirri einni ástæðu að mér finnst myndin skemmtileg eða flott og aðrar vegna þess að þær sýna okkur fólk sem hefur verið mér og mörgum öðrum fyrirmyndir og stórir áhrifavaldar í hvernig maður hugsar og hvað manni finnst mikilvægt í lífinu.
Munið að þessar myndir eru EIGN Ljósmyndasafns Siglufjarðar og það má alls EKKI bara taka þessar myndir í leyfisleysi og birta hvar sem er.
Hafið samband við Síldarminjasafnið: sild@sild.is eða í síma 467 16 04.
Og eins og áður eru textar við sumar af myndunum lánaðir frá Steingrími og öðrum sem hafa sent inn upplýsingar um myndirnar.
Ég hef einnig lagfært allar myndirnar til þess að þær geri sig betur í birtingu á skjá.
Gamli leikskólinn. Ljósmyndi: Jóhann Örn Matthíasson
Jóhann Þorvaldsson Skólastjóri Barnaskólans.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Þessi merkilegi maður er mér og mörgum minnisstæður, ekki bara sem kennari og skólastjórinn sem tók við af Hlöðver heldur líka frá stúkufundum hjá Eyrarrós og úr sumarvinnu í skólagörðunum og skógræktinni.
Valey Jónasdóttir handavinnukennari.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Ég var svo heppinn að eiga bæði Valey og Hauk sem nágranna til fjölda ára en þau bjuggu lengi á sitthvorri hæðinni á Hafnartúni 4.
Lék mér mikið við börn þeirra sem voru á svipuðum aldri og ég. Yndislegar persónur og góðir kennarar.
Haukur Magnússon kennari. - Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Gagnfræðaskóli Siglufjarðar. Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson Skólastjóri Gagnfræðaskólans.
Þetta er ákaflega skemmtileg mynd af Gunnari Rafn með slaufu, nýfermdur og líklega að spá í sína eigin framtíð með glott á vör.
Man ekki eftir honum öðruvísi en í jakkafötum með slaufu í hvert skiptið sem hann tók mig á beinið inná skrifstofunni sinni. Hann talaði alltaf hægt og virðulega við mig og ég er honum óendalega þakklátur fyrir að hafa hvorki rekið mig úr skólanum eða gefist upp á mér á þessum árum sem ég hafi hann sem kennara og skólastjóra.
Oftast sagði hann bara: "Þú getur þetta alveg Jón......þú ert bara latur og þreyttur unglingur."
Já og það var alveg rétt hjá Gunnari, skil hann betur núna þegar ég er sjálfur að vinna með lata hormónastýrða unglinga.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Guðbrandur Magnússon kennari. ókunnur ljósmyndari
Sigurður Fanndal sendi inn upplýsingar 13. mars 2009:
Þarna er Guðbrandur Magnússon kennari og skólastjóri.
Myndin er tekin í brekkunni framan við hús hans.
Hann vann í nokkur sumur við afgreiðslu og útkeyrslu hjá Birgi Runólfssyni, vöruflutningum.
Þarna situr hann á 3ja hjóla ,, útkeyrslu - vespu " Birgis.
Mjög merkilegt farartæki.
Hafliði Guðmundsson stærðfræðikennari
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Hinrik Aðalsteinsson kennari.
ókunnur ljósmyndari
Til vinstri Gránugata 14, þar bjó Friðrik Guðjónsson, síðar var verkalýðsfélagið Vaka þarna með skrifstofu, einnig var Tónskóli Siglufjarðar þarna til húsa. Til hægri er Kaupfélagsbrakkinn.
Ljósmynd: Hinrik Andrésson
Gerhard Schmidt, ísl nafn: Geirharður Valtýsson, f.v. söngstjóri Karlakórsins Vísis og skólastjóri Tónskóla Siglufjarðar.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Elías Þorvaldsson skólastjóri Tónskóla Siglufjarðar.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Helgi Sveinsson leikfimikennari og íþróttafrömuður.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Sem einhverskonar millistig frá skólamyndum og yfir í íþrótta myndir og minningar er mjög svo við hæfði að nefna Helga Sveins og Regínu Guðlaugs sem kenndu okkur leikfimi og voru einnig viðloðinn allt mögulegt varðandi uppbyggilega starfsemi fyrir fólk á öllum aldri.
Fimleikasýningar FF voru frægar um allt land og hver man ekki eftir glæsilegum sýningum á Skólabalanum á 17 júní hátíðum bæjarins.
Minnist þess einnig hversu mikið var lagt í leikfimi og fimleikasýningar á hverju vori út í Sundhöll.
Allir í hvítum leikfimisfötum, hoppandi í takt.
Regína Guðlaugsdóttir leikfimikennari og íþróttafrömuður.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
<<<<<<<<<<<<<<<<
Fimleikasýning á 17 júní.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Aftari röð (frá vinstri) Reynir Árnason, Helgi Sveinsson, Jósef Flóventsson, fremri röð: Jeppen Erikson.
Til gamans má geta að merkið þýðir: Frískur, frægur, frækinn, frjáls.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Leikfimisýning í Sundhöllinni. Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Einar Hermannsson fimleikakappi með gríðarlega flott bindi.
Það verður að segjast eins og það er: SUMIR ELDAST EKKI....
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Árdís Þórðardóttir (Dísa Þórðar skíðadrottning)
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Jóhann Vilbergsson skíðakóngur.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Birgir Guðlaugsson íþróttakappi.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Mundína Bjarna og Brynja Óla gönguskíða og sunddrottningar Siglufjarðar.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Gönguskíða garpar. Magnús Eiríksson og Guðrún Pálsdóttir (Gunnóla). Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Dráttarvélar skíðalyfta. uppi í Hvanneyrarskál
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Skíðamót í vitlausu veðri uppi í Hvanneyrarskál. Takið eftir dráttarvélinni á beltum og aftan á henni er skíðalyfta bæjarins.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Kristín Þorgeirsdóttir skíðadrottning í svakalegri flottri peysu.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Steingrímur Garðarsson skíðakappi.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Birgir Gunnarsson gönguskíðakappi. Í sumum ættum eru til fleiri ættliðir af frægum íþróttakörlum og konum.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Helgi Magnússon, Sverrir Sveinsson, Freyr Sigurðsson og Hilmar Ágústsson, alltaf tilbúnir í sjálfboðavinnu í öllum mögulegum íþróttum.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Fleiri sjálfboðaliðar. Björgunarsveitin STRÁKAR
Ómar Möller, Sonur Gísla Antonssonar, Gísli Antonsson, Birgir Vilhelmsson, Erling Jónsson, Helgi Antonsson, Páll Helgason, Jón Dýrfjörð, ?, og Friðrik Hannesson
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Kristinn Georgsson og Hanna Stella Sigurðardóttir skátafrömuður.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Jónas Ásgeirsson, margfaldur skíðakóngur
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Eggert Ólafsson ( Eggert í Bakka ) Þess má til gamans geta að Friðrik í Bakka, afi hans smíðaði skíðastafina og skíðin.
Ljósmynd: Guðný Óska Friðriksdóttir
Þessi yndislegi maður var svo sem ekki frægur fyrir íþróttir en ég kynnist honum vel þegar hann vann með föður mínu í Sigló síld.
Fannst þetta bara svo skemmtileg skíðamynd og svolítið svona að það þurfa ekki allir flottar græjur til að fara á skíði.
Ottó Jörgensen "markvörður", í gamansömum fótboltaleik.
ókunnur ljósmyndari
Sjóskíðastúlka. Þetta er örugglega ein af dætrum Þórðar í Hrímni.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
KS leikur á gamla malarvellinum.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Ég veit að þetta er líklega sameiginleg æfing hjá þriðja og öðrum flokki í lok 1970. Svona leit malarvöllurinn oft út á voræfingum þegar búið var að taka gólfið af sundlauginni og við hættir að geta æft inni. Völlurinn grafinn upp, við gengum með haka og járnkarla og brutum ís í fleiri daga.
Síðan bráðnaði allt saman og vatnið komst ekki neitt og úr þessu varð snjóblandaður drullugrautur sem við æfðum í fleiri vikur áður en það varð fótboltavöllur úr þessu. En enginn var svo sem að klaga. Þetta var bara svona og við þekktum ekkert annað.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Knattspyrnufélag Siglufjarðar -- Myndin er sennilega tekin árið 1950 - vantar nöfn ?
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Fyrirtækjakeppni:
Ljósmynd: Erla Svanbergsdóttir
Þarna var keppt í knattspynu,fyrirtækjakeppni,slíkt var gert í nokkur ár. Efri röð:Þorsteinn Haraldsson,Birgir Guðlaugsson,Ágúst Stefánsson,Þorsteinn Jóhannsson,Guðmundur Ragnarsson,Hjálmar Jóhannesson,Rafn Elíasson Neðri röð:Skúli Jónsson,Hallgrímur Vilhelmsson,Birgir Eðvaldsson,Þorleifur Haraldsson,Birgir Óla (Óla Geirs)
Badminton leikur- í Síldarþró SR-30.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Ég var einu sinni þjálfari fyrir kvennahandboltalið og við æfðum handbolta í þessari þró eitt eða tvö sumur.
Þórður Björnsson badmintonmeistari
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Fjær: Kristján Kristjánsson og Eyþór Haraldsson spila borðtennis í kjallaranum í Æskó.
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
Hestamennska er íþrótt líka. Guðbjörg Friðriksdóttir (Gugga) á gamla Grána.
Ljósmynd: Guðný Ósk Friðriksdóttir
Stúlkurnar okkar í handbolta. Þarna að keppa á Hofsós
Ljósmynd: Guðný Ósk Friðriksdóttir
Aftari röð frá vinstri: Árdís Þórðardóttir, Jóhanna Helgadóttir, Þórunn Þórðardóttir, Ester Bergmann, Ingibjörg Daníelsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Erna Erlendsdóttir, Hilla, Gurra Erlendsdóttir, Kristbjörg Eðvaldsdóttir, Sigríður Þórdís Júlíusdóttir.
Myndin er líklega tekin í kringum 1964-1965.
Og þeir sem nenna ekki að elta bolta og renna sér á skíðum stunda sínar íþrótt sitjandi. Tekið við Skeiðsfossvirkjun .
Kristinn Steingrímsson og Fljótamaður
Ljósmynd: Steingrímur Kristinsson
==========
Lifið heil, Nonni Björgvins
Texti: Jón Ólafur Björgvinsson
Myndir: JÓB, og aðrar myndir eru birtar með leyfi frá Steingrími Kristinnsyni, Ljósmyndasafni Siglufjarðar og fleirum.
P.s. Ég tók mér það bessaleyfi að " laga og tjúnna aðeins upp " allar myndirnar svo að þær geri sig betur við birtingu á skjá.
TENGLAR Göngutúranna HÉR NEÐAR
GÖNGUTÚR UM HEIMAHAGA / Stövtåg i hembyggden 1.hluti
· GÖNGUTÚR UM HEIMAHAGA. 2 hluti, KONUR
· GÖNGUTÚR UM HEIMAHAGA. 3 hluti, ÖMMUR
· GÖNGUTÚR UM HEIMAHAGA. 4 hluti. Ljósmyndir (50 st) og LEIKIR
· GÖNGUTÚR UM HEIMAHAGA. 5 hluti. SKEMMTANALÍF ! Myndasyrpa.
· Göngutúr um heimahaga 6 hluti. LITRÍKIR KARAKTERAR !
· Göngutúr um heimahaga, 7 hluti, SIGLFIRSKT ! 80 myndir
Göngutúr um heimahaga, 8 hluti, NIÐURNÍÐSLA. (35 myndir)
Guðni Þór Sveinsson kraftakarl.
Ljósmynd: Margrét M Steingrímsdóttir
p.s. allir í eins peysum nema Leó Óla sem er með annað mynstur sem var í tísku hjá Brekkuguttum.