Reitir enn á
sksiglo.is | Reitir | 02.07.2015 | 22:00
REITIR enn á fullri ferð
Þátttakendur alþjóðlega samstarfsverkefnisins REITA hafa aldeilis ekki setið auðum höndum síðustu daga. Ýmis verkefni eru í vinnslu og verða til sýnist á opnun REITA á sunnudag. Utan þeirra verkefna hafa þátttakendur t.d. skipulagt hópsöng í sundlauginni á Siglufirði. Aðrir viðburðir á vegum þeirra eru nokkrir á næstu dögum.
SIGLO FOTO
Föstudaginn 3. júlí og laugardaginn 4. júlí á milli 11:00 - 18:00 verður opið ljósmyndastúdíó á Aðalgötu 23. Allir eru þá velkomnir inn í gamla ljósmyndastúdíóið til þess að vera ljósmyndaðir án endurgjalds.
Hin Ísraelska Ronit Parat tekur myndirnar.
RADIO REITIR
Þátturinn RADIO REITIR heldur áfram göngu sinni á FM Trölla á milli 14:00 og 18:00. Dagskrá seinni tveggja daganna verður pakkfull af skemmti legu efni. Þar má helst nefna tafl í beinni útsendingu á milli Arnljóts Sigurðssonar tónlistarmanns og Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra Fjallabyggðar á milli 14:00 og 15:00 á fimmtudeginum.
Einangruð einangrun
Laugardaginn 4. júlí klukkan 13:00 verður uppákoma í Héðinsfirði.
Lesiba frá Suður-Afríku og Ronit frá Ísrael eru höfundar verks sem fjallar um samband Siglufjarðar og Ólafsfjarðar.
Gestir eru hvattir til þess að koma með eitthvað matarkyns með sér þar sem hluti af uppákomuni er vinaleg lautarferð.