Verið er að laga skólplagnir og fleira við Torgið
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
sksiglo.is 24. júní 2015 Jón Ólafur Björgvinsson
Miklar framkvæmdir eru í gangi núna út um allan fjörð.
Fréttaritari Sigló.is fór í smá bíltúr um fjörðinn fagra og það var líf og fjör um allan bæ,
túristar á vappi, krakkar í sumarvinnuskóla, bæjarvinnu karlar að laga götur og ræsi,
menn uppi í fjalli að vinna við snjóflóðavarnir og fólk að mála og laga hús svo eitthvað sé nefnt..
Látum myndirnar og myndatextana tala.
Við suðurhlið Siglunes Gesthouse,
í gamla Billaportinu er komin þessi fína aðstaða til að fá sér kaffi eða Kaldan úr krana.
Þrír gluggar og hurð eru nú á suðurvegg matsalar og er þar nú bjart og notalegt.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Verið er að hreinsa til í gamla Gagnfræðaskólanum áður en honum verður breytt í íbúðarhúsnæði.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Unnið að kappi við að fegra umhverfið sunnan við Hótel Sigló.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Vesturhlið Hótel Sigló séð frá Suðurgötu.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Áframhaldandi vinna við snjóflóðavarnir í fjallinu norðan við Fífladal og ofan við Gimbrakletta
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Allt þetta og meira til á eftir að fljúga með þyrlu upp í fjall.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Sumarvinnuskóla krakkar að fegra hornið á Suðurgötu og Lindargötu.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Kristján Hauksson er að byggja sér sumarhús ofarlega á ásnum fyrir handan fjörð.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Við norðurenda Laugarvegs. Malbikunarvélar í hádegismat.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Suðurendi Laugarvegs. Allt á fullu, malbikun og umhverfis snyrting.
Suðurgatan verður tekin í gegn þar á eftir.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Alltaf eitthvað vesen á þessum sláttur orfum. Hafnartún 38 í bakgrunninum.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Reitir eru að byrja og þá verða alltaf til allskonar byggingar við Alþýðuhúsið.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Vernharður Skarphéðinsson er að byggja lítið hús á lóðinni við Hafnargötu 4.
Þar stóð áður hús þeirra heiðurshjóna Jónu og Christians Ludviks Möller.
(Langamma og langafi greinarhöfundar.)
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Áframhaldandi vinna við hin glæsilega golfvöll í Hólsdal sem vonandi verður tilbúinn sumarið 2016.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Ofan við gamla malarvöllinn er verið að laga þetta gamla bárujárnshús. Hvanneyrarbraut 15 ?
Er ekki alveg viss á götunúmerinu.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Vinna við "Salthúsið" hjá Síldarminjasafninu heldur áfram í sumar.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Gamli malarvöllurinn er núna grasi gróinn.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Aðalgatan er lokuð við Lækjargötu. Verið er að endurnýja skólplagnir og fleira í Lækjargötunni.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Neðst til vinstri á myndinni sést hinn sögufrægi Álalækur, en hvelfing án botns var steypt yfir þennan læk sem rann í gegnum alla eyrina hér áður fyrr, áður en fyllt var yfir hann og hús og götur byggð á eyrinni.
Bæjarstarfsmenn sögu að þó að þessi lausn hefði enst okkur vel þá væri nú kominn tími til að lækurinn færi í nútíma rör, það rennur skólp úr húsum í hann og svo er líka rangur halli á honum á kafla sem hefur valdið bakflæði í stórum rigningaveðrum eins og flóðið við Alþýðuhúsið í fyrra sumar.
P.S Af hverju hét þessi lækur ÁLALÆKUR? Liðaðist hann um eyrina eins og áll eða gengu álar upp í þennan læk? Einhver sem veit meira um þennan læk?
Strákur að mála austurvegginn á því sem áður var söltunarstöðin Hrímnir.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Verið að laga þakið á Rammanum, fáni Gautaborgar blaktir við hún hjá Valgeiri í Harbour House.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Fallegt hús við Suðurgötu 80 fær smá sumar upplyftingu.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Skemmtiferðaskipið Ocean Diamond
Þarna við Hafnarbryggjuna, en bráðlega hefst vinna við að lagfæra Hafnarbryggjuna.
Ljósmynd: Jón Ólafur Björgvinsson
Myndir og Texti: NB
(Jón Björgvinsson)