trollli.is 20. febrúar 2022 Jón Ólafur Björgvinsson
BÁTALISTAVERK OG
BÁTAVÉLAHLJÓÐ. 50 MYNDIR
Pistlahöfundur minnist þess að fátt var eins skemmtilegt og fagurt fyrir augað, en að spássera um bryggjurnar heima á Sigló á góðum sumar sunnudegi í denn og dáðst að fallegum og litríkum trébátum og trillum. Taktfast hljóðið úr bátavélunum var líka mjög svo sérstakt og mikið eyrnakonfekt og passaði vel við kyrrðina í hinu heimsfræga Siglfirska galdralogni.
Nú er þetta umhverfi allt löngu horfið og við eigum okkur aðeins minningamyndir úr ljósmyndum á Ljósmyndasafni Siglufjarðar og ekki síst með því að skoða fallega báta og bátalíkön á söfnum eins og t.d. Síldarminjasafni Íslands.
Hér birtast ykkur 50 ljósmyndir í þremur myndaalbúmum sem og kafli um bátavélasafn og gömul bátavéla hljóð:
Mynda albúm 1: Bátalistaverk eftir Åke Arnold Carlsson í Lysekil. 10 myndir.
Mynda albúm 2: Hálfir bátar og skrokkar. 6 myndir.
Mynda albúm 3: Siglfirskar báta listaverka ljósmyndir frá Steingrími Kristins (Litaðar, áður svarthvítar gamlar bátaljósmyndir) 35 myndir.
Tvær útgáfur af Hjalta SI 12. - Sá stærri í eigu Kambsbræðra og sá minni síðar, tengdum aðila.
Ljósmyndarar: (Halli Nonni) Hallgrímur Hafliðason og Steingrímur Kristinsson.
Í Lysekil á vesturströnd Svíþjóðar býr 84 ára gamli bátalíkana listamaðurinn Åke Arnold Carlsson, en hann smíðar ekki bara nákvæmar eftirlíkingar af bátum, skipum og húsum. Hann er nefnilega líka þekktur fyrir að smíða ótrúlega falleg bátalistaverk, eins og sjá má á myndunum hér neðar frá nýlegri sýningu í Lysekil. Auðvitað eru öll bátslíkön mikil völundarsmíði, en Åke Arnold gerir þetta líka á mjög svo listrænan máta og ýkir hlutföll og stærð bátana á skemmtilegan máta.
Myndaalbúm 1: Bátalistaverk
Smelltu á myndina
<<<<<<<<
Og
Snillingar bæjarins! Bátasmiðurinn Njörður
sksiglo.is 17.07.2014 | Jón Ólafur Björgvinsson
Myndirnar sem Sigurbjörg Þ Óskarsdóttir vinkona pistlahöfundar tók á sýningunni, tala sínu eigin máli og eigum við öllum þessum völundasmiðum sem leggja ómældan tíma í að varðveita bátasöguna okkar sameiginlegu mikið að þakka. Sjá t.d. meira hér um þekkta Siglfirska bátalíkanasmiði:
Og
Snillingar bæjarins! Bátasmiðurinn Njörður
sksiglo.is | Okkar fólk | 17.07.2014 | Jón Ólafur Björgvinsson
BÁTAVÉLASAFN OG BÁTAVÉLAHLJÓÐ
Listamaðurinn Åke Arnold er með vinnuaðstöðu hjá félaginu L. Laurin og það félag rekur bæði bátavélasafnið SKANDIAMUSEET og dráttarbátinn – M/S HARRY.
Félagskapurinn L. Laurin, var stofnaður 1993 og aðal driffjöðrin í því var góðkunningi pistlahöfundar, Stig Selander sem sem lést í fyrrasumar. Sjá meira hér um Stig:
PÅ VÄG MOT ISLAND…. á heimaslóðum sænskra síldveiðimanna! Lysekil (25 myndir)
sksiglo.is | Greinar | 28.07.2017 | Jón Ólafur Björgvinsson
Á safninu SKANDIAMUSEET er sýndur fjöldin allur af uppgerðum bátavélum sem herra L. Laurin hannaði og framleiddi í Skandiaverket í Lysekil. Þetta eru flestar tveggja takta litlar bátavélar sem eru kallaðar “TÄNDKULEMOTOR” á sænsku (glóðarhettumótor á Íslensku) og gáfu þær frá sér mjög svo róandi taktfast bátavélahljóð. Dunk… dunk… dunk.. og það getur hljómað einkennilega, en fólki finnst það sjarmerandi að fá að heyra þetta hljóð og árlega streymir fólk að til að fá að sjá og heyra í þessum gömlu frægu vélum á TÄNDKULEMOTORNS DAG.
Félagið L. Laurin hefur einnig hljóðritað þessi vélarhljóð og selur geisladiska út um allan heim, en hér á heimasíðu félagsins er hægt að hlusta á nokkur ókeypis dæmi: Lyssna på härligt dunk… …⚓ 🎵 🎵 🎵…
Mynda albúm 2: Hálfir bátar og skrokkar
Hálf bátslíkön og skrokkar eftir báta listamanninn Åke Arnold Carlsson.
Ljósmynd: Sigurbjörg Óskarsdóttir.
Að lokum…
Báta listaverka ljósmyndir frá Steingrími Kristins
Brúni SI 7, á reki með brotið stýri - upplýsingar neðst á síðunni
Ljósmynd: Guðbjartur Ásgeirsson
Aldan SI 85 á ufsaveiðum inni á Siglufirði.
Ljósmynd: Steingrímur
Sæfinnur NK 76 að landa hjá Pólstjörnuplani
Ljósmynd: Kristfinnur
Þorsteinn SI 100
ókunnur ljósmyndari
Hringur SI 34, með tunnfarm frá Akureyri
ókunnur ljósmyndari
Skjöldur SI 82 -
Ljósmynd: Kristfinnur
Vel hlaðinn síldarbátur
Ljósmynd: Kristfinnur
Löndunarbið hjá SR
Ljósmynd: Steingrímur
Ljósmynd: Steingrímur
Ljósmynd: Steingrímur
Dagur SI 66
Ljósmynd: Steingrímur
Færeysk skúta KG 391
Ljósmynd: Steingrímur
Einar Hálfdáns ÍS 3 og SI 26
Ljósmynd: Steingrímur
Hringnótar síld veiði -
ókunnur ljósmyndari
Keflvíkingur GK 400
Ljósmynd: Kristfinnur
Hringur SI 1
Ljósmynd: Kristfinnur
Geir SI 55 og Freyja RE 38
Ljósmynd: Kristfinnur
Rafn SI 2
Ljósmynd: Kristfinnur
Gunnvör SI 61
Ljósmynd: Kristfinnur
Geir SI 55
Ljósmynd: Kristfinnur
Snorri SI 21
Ljósmynd: Kristfinnur
Löndunarbið hjá SR Hábryggjur á Siglufirði. ? RE 200? - VE 7 - Sæbjörn? ÍS 16 - og Nonni -- Ljósmynd: Kristfinnur
Villi SI 70
Ljósmynd: Kristfinnur
Björn Austræni SI 8
Ljósmynd: Kristfinnur
Hjörtur Pétursson SI 80
Ljósmynd: Kristfinnur
Ljósmynd: Kristfinnur
Freyja VE 260
Ljósmynd: Kristfinnur
Flóabáturinn Drangur
Ljósmynd: Steingrímur
Slippurinn á Siglufirði
Ljósmynd: Kristfinnur
Einn í kassa og fimm í hettu ofan af mjölsíló sem þarna er á hvolfi
Ljósmynd: Steingrímur
Kajakar og ísjakar við Hvanneyrarkrók
Ljósmynd: Steingrímur
Kajakar við Hvanneyrarkrók
Ljósmynd: Steingrímur
Hringur SI 1
Ljósmynd: Kristfinnur
Upplýsingar frá Steingrím (árið 2024) vegna myndar hér fyrir ofan.
Fyrsta myndin: Báturinn Brúni SI 7, frásögn; Gísli J. Sigurðsson:
Brúni SI 7 sökk eftir árekstur við m/s Dronning Alexandrine, sem sigldi á bátinn.
Drottningin ætlaði ekki að bjarga neinu. Garðar GK var með bátinn í togi því stýrið á Brúna var brotið, og vegna þess hve slæmt var í sjóinn þá var haft langt í tauginni á milli skipa.
Drottningin stefndi á milli skipana og þá var slakað á tauginni til að hún gæti farið á milli, en Drottningin keyrði á Brúna miðjan, braut og ruddi á undan sér.
Einar Bjarnason kallaði á menn sem voru á Drottningunni og sagði þeim að henda kaðli til að bjarga þeim og klifraði síðan upp kaðalinn og fékk stýrimann á Drottningunni og Íslenska farþega til að hjálpa sér við að setja út bát til að bjarga þeim sem voru í sjónum, en þeir voru 4.
Skipstjórinn á Drottningunni var sem steinrunnin þegar Einar kom þar um borð en hafðist ekkert að.
Getið lesið góða lýsingu á þessu í Mbl. frá 11.12. 1991 eða í bókinni Brotsjór rís Lífssigling Einars Bjarnasonar.
(Einar Bjarnason var bróðir Kjartans Bjarnasonar sparisjóðsstjóra).
Myndina tók Guðbjartur Ásgeirsson sem var á Garðari.
=======================================================
https://trolli.is/author/nonni/
Forsíðu ljósmynd: Sigurbjörg Óskarsdóttir.
Allar ljósmyndir eru birtar með leyfi frá Ljósmyndasafni Siglufjarðar , Steingrími Kristinssyni og Sigurbjörgu Óskarsdóttur.
Heimildir: Vísað er í heimildir í greinatexta.
Þakklætiskveðja til Steingríms Kristinssonar fyrir aðstoð, góð ráð og yfirlestur.