sksiglo.is | Afþreying | 02.08.2017 | 15:45 | Jón Ólafur Björgvinsson
SÍLDARÆVINTÝRI 2017 - DAGSKRÁ ..... og gamlar myndir
Dagskrá 1991 - Ljósmynd: Gestur Fanndal
Margir þjónustuaðilar verða með eitthvað skemmtilegt í boði þessa daga. Í gangi verður útigrill ef veður leifir, hægt er að fara í fatbike ferðir alla daga og magadans námskeið verður í gangi á föstudeginum. Leiksvæði Rauðku er opið alla daga 10-22 þar sem eru rennibrautir, minígolf og strandblak ásamt frábærum sandkassa með gulum strandsandi. Í Alþýðuhúsinu verður listasmiðja fyrir börn og aðstandendur ásamt því að listasýning og gjörningur verður á svæðinu. Þá verður söltunarsýning hjá Síldarminjasafninu á laugardeginum og hægt að fara í bátsferð á rib bát á sunnudeginum svo fátt eitt sé nefnt.
Ljósmyndasögusafnið Saga Fotografica er opið alla daga frá kl: 13:00 - 16:00. Ókeypis aðgangur
Fílapenslarnir skemmta á fimmtudagskvöldinu ásamt hljómsveitinni Stormar.
Ljósmyndi: Guðný Ósk Friðriksdóttir.
Skemmtun á Torginu.
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Sölutjöld KS og Skíðafélagsins og fl.
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Sölutjald litla Billanns.
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Bryggjuveiði keppni (Dorgveiði)
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Ungir drengir spila og syngja fyrir utan Fiskbúðina
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Teikningar eftir Braga Magnússon.
Ljósmynd: Gestur Fanndal.
Lifið heil og góða skemmtun
Jón Ólafur Björgvinsson
(Nonni Björgvins)
(Myndir birtar með leyfi frá Ljósmyndasafni Siglufjarðar)