Þóra Frímannsdóttir, fv. húsfreyja og verkakona á Siglufirði, fæddist í Neðri-Sandvík í Grímsey 19.12. 1921. Hún andaðist á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar á Siglufirði 21.3. 2010 Foreldrar hennar voru Emilía Guðrún Matthíasdóttir f. 26.7. 1894, d. 3.7. 1969, húsfreyja, og Frímann Sigmundur Frímannsson f. 9.10. 1879, d. 23.3. 1934 útvegsbóndi í Grímsey. Systkini Þóru eru Guðný Frímannsdóttir, fv. húsmæðrakennari í Reykjavík og víðar, f. 30.9. 1920, d. 22.1. 1983; Sigríður Frímannsdóttir, fv. húsfreyja í Reykjavík, f. 20.6. 1926, d. 2.5. 1967; og Matthías Frímannsson, cand. theol. og löggiltur skjalaþýðandi, fv. framhaldsskólakennari og leiðsögumaður, Kópavogi, f. 30.12. 1932. Fyrri maki Þóru var Ingimundur Vilhelm Sæmundsson, vélvirki, f. 26.5. 1921 í Hnífsdal, d. 10.12. 1988. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Frímann Emil Ingimundarson rennismiður, f. 12.6. 1941, hann á þrjú börn, er fráskilinn; 2) Ríkey Frímannsdóttir, f. 1.6. 1942, hún á þrjár dætur, er fráskilin; og
3) Þorsteinn Frímannsson, f. 3.12. 1943, d. 17.1. 1963.
Seinni maki Þóru var
Kristján Ægir Jónsson, vélstjóri, sjómaður og verkamaður, f. 4.5. 1921 að Stóra-Grindli í Grindum í Fljótum, Skagafirði, d. 15.12. 1993.
Börn þeirra eru:
Gylfi Ægisson, f. 10.11. 1946, hann á fjögur börn, er í
sambúð með Jóhönna Finnborg Magnúsdóttr;
Lýður Ægisson, f. 3.7. 1948, hann á fjóra syni, er fráskilinn;
Jón Ægisson, f. 19.5. 1953, barnlaus og einhleypur;
Sigurður Ægisson prestur, f. 21.9. 1958, hann á þrjú börn af fyrra hjónabandi, núverandi
kona hans er Arnheiður Jónsdóttir og eiga þau tvö börn; og
Matthías Ægisson, f. 1.6. 1960,
eiginkona hans er Hanna Ólafsdóttir og eiga þau þrjú börn.
Þóra ólst upp í Grímsey fram undir 1930, en fluttist þá með foreldrum sínum til Hríseyjar og bjó þar í eitt ár.
Síðan flytja þau aftur út til Grímseyjar. Á 13. ári missti hún föður sinn og flutti móðir hennar þá til Akureyrar með systkinahópinn, en Þóra varð eftir
hjá afa sínum og ömmu,
sr. Matthías Eggertsson og
Mundíana Guðný Guðmundsdóttir, úti í Grímsey og fermdist þar.
Seinnipart sumars fór hún í vist til
Árni Kristjánsson tónlistarkennari í Reykjavík og frænku sinnar, konu hans,
Anna Steingrímsdóttir, og dvaldi hjá þeim í eitt og hálft ár, við barnapössun.
Þaðan fór hún til Patreksfjarðar eitt sumar (1936), til
Gísli Bjarnason skipstjóri og
Nanna Guðmundsdóttir konu hans. Var svo í Reykjavík hjá ömmu sinni og afa, um hríð, svo á Haugum í Stafholtstungum í Borgarfirði sumarið 1937, en fór um haustið í nám í Reykholtsskóla í Borgarfirði og útskrifaðist þaðan vorið 1939.
Var það sumar í vist á Akureyri, hjá Ásgeir Matthíasson kaupmaður, móðurbróður sínum, og konu hans.
Þaðan fór hún til Siglufjarðar og bjó þar til æviloka.