Árni Jónasson klæðskeri og póstur var þingeyingur að ætt og rakti skyldleika til menkra og ágætra manna iangt í ættir fram. Hann var fæddur 13. mars 1904 á Grenivík við Eyjafjörð, sonur hjónanna Guðrúnar Jónsd. og Jónasar Einarssonar, sem þar bjuggu. Hann sleit þó sínum bernskuárum hér á Siglufirði, óx hér upp við þröngan kost þeirra tíma.
Hugurinn hneygðist þó til einhvers náms og fór hann því til Akureyrar og hóf þar nám í klæðskeraiðn, lauk námi og hóf síðan störf í iðninni og seinna á eigin verkstæði.
Á Akureyri kynntist hann Soffía Jóhannesdóttir og gengu þau i hjónaband árið 1928, og varð hún honum hinn ágætasti lifsförunautur.
Börn- þeirra urðu þrjú:
1) Haraldur Árnason gjaldkeri
kvæntur Helga Guðmundsdóttir, eru þau búsett á Siglufirði og er hann gjaldkeri í Sparisjóði Sigluifjarðar.
2) Sigríður Lára Árnadóttir
gift Þorsteinn Júlíussoni, búsett í Reykjahlíðarþorpi við Mývatn og er hún stöðvarstjóri Pósts og síma í Reykjahlíð.
3) Baldur Árnason, viðskiptafræðingur
kvæntur Kristín Friðbertsdóttir,
Óhætt er að fullyrða að barna lán þeirra hjóna, Soffíu ag Árna var þeirra stærsta lífshamingja, og barnabörnin þeirra yndi og ánægja.
Þessvegna mun það hafa orðið Árna meira áfall en margan grunar, þegar snjóflóð lagði hið fagra heiimil Haralds og Helgu í rúst á augabragði nú í desembermánuði s. 1., en þá var Árni að stríða við sjúkdóm sinn á Sjúkrahúsi Siglufjarðar.