sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 20.05.2016 | 14:38 | Finnur Yngvi Kristinsson - sksiglo ehf.
Í dag, á afmælisdegi Siglufjarðarkaupstaðar 20. maí 2016 afhenti SKSigló ehf. (siglo.is) með stolti og ánægju Síldarminjasafni Íslands, Ljósmyndasafn Siglufjarðar.
Aníta, safnstjóri Síldarminjasafnsins, tók við safninu frá Steingrími Kristinssyni, Sigríði Maríu Róbertsdóttur og Róberti Guðfinnssyni við notalega athöfn í Síldarminjasafninu.
Mikil og góð viðbót við safnið sagði Aníta sem sagði jafnframt að þetta væri skemmtilegt og viðamikið verkefni sem nú væri farið í að vinna úr. Aníta mun kynna verkefnið betur á opnum fundi Rauðku klukkan 17 í dag.
Skrifað undir: Aníta Elefsen, Steingrímur Kristinsson og Sigríður María Róbertsdóttir
Róbert bætti við og sagði að safnið væri nú komið í góðar hendur. "Við komum Ljósmyndasafni Siglufjarðar í ákveðinn farveg en þar sem okkar verkefni á Siglufirði hafa vaxið mikið og breyst síðastliðin ár þá væri það okkur sönn ánægja að afhenda safnið þeim sem geta tekið verkefnið áfram til áframhaldandi vinnslu og varðveislu".