Haraldur Sigurðsson
f. 06-04-1917 - d. 05-07-1976
Þann 5. júli sl. andaðist i Sjúkrahúsi Siglufjarðar,
Haraldur Sigurðsson Hliðarvegi 30, hér I bæ, eftir erfið veikindi sl. þrjú ár.
Þótt Haraldur vissi hvert stefndi fyrir all löngu,var kjarkurinn ávallt hinn sami til slðustu stundar. Haraldur var fæddur 6. april 1917 og voru
foreldrar hans atorku- og sæmdarhjönin
Andrea Sæby og
Sigurður Jónsson.
Þau hjónin kölluöu hús sitt „Eyri" og voru börn þeirra kennd við það hús.
Haraldur alst upp i fjölmennum systkinahópi.
Það sem einkenndi þau systkinin, sem á legg komust, var atorkusemi og sjálfsbjargarviðleitni, ásamt samvizkusemi i öllu þvl sem þau toku sér fyrir hendur og störfuðu að.
Haraldur fór snemma að vinna og vann alla almenna vinnu til sjós og lands. Vegna dugnaðar var hann alls staðar eftirsóttur til vinnu. Um tiu ára skeið var hann verkstjóri við sildarstöltun hjá Haraldur Böðvarsson hér i bæ og I mörg ár var hann yfirtökumaöur sfldar á vegum Friðrik Guðjónsson. Oll þessi störf leystihann af hendi af kostgæfni og eljusemi.
Þegar atvinna var litil i bænum sótti Haraldur vinnu utan bæjarins.
Árið 1954 kvæntist Haraldur eftirlifandi konu sinni
Valgerður Guðmundsdóttir ættaðri frá Bohmgarvlk.
Þau eignuðust einn son,
Guðmundur Haraldsson, sem er trésmiður og nú búsettur á Blönduósi
maki Erla Bjórg Evensen.
Auk þeiss ólu þau upp sem eigið barn,
Svava Axelsdóttir frá átta ára aldri.
Svava er búsett I Grundarfirði
maki Grímur Haraldsson.
Það má með sanni segja um Harald Sigurðsson, að öll sin unglings- og fullorðinsár þurfti hann að vinnahörðum höndum fyrir sér og sínum og hann brást aldrei neinum, sem hann vann fyrir.
Haraldur var ávallt trúr og dyggur.
Hann var hreinskilinn í allri umgengni. Sagði skoðanir slnar umbúðalaust, hvort sem mönnum líkaði betur eða verr.
Slíkt er orðið fatítt nú.
Sambúð þeirra Valgerðar og Haraldar var hin bézta. Þau hjálpuðu og styrktu hvort annað í veikindum.
Nú þegar Haraldur er farinn á fund feðranna er honum þökkuð samfylgdin og góð kynni.
Siglufjörður er einum dugnaðar- og sæmdarmanninum fátækari.
Blessuð sé minning Haraldar Sigurðssonar frá Eyri.
Kunningi.