sksiglo.is | Greinar | 12.07.2014 | 18:00 | Jón Ólafur Björgvinsson
Hér áður fyrr var bara ein símalína í bænum, allir gátu legið á hleri og fengið fréttir meðal annars.
Þetta var kallað að liggja á Bæjarlínunni.
www.Siglo.is er bæjarlínan í dag. Ekkert er of lítið eða of stórt til að birta þar.
Ég geng um fjörðinn minn fagra með myndavél á maganum og fólk kemur til mín með hugmyndir að fréttum og tipsar um skemmtilegheit sem eru í gangi.
Friðardúfa á Bæjarlínunni!
Hver á þetta gat í gangstéttinni? Eftir miklar rannsóknir hef ég komist að því að Helgi Magg á þetta stórhættulega gat og hann er búinn að loka því núna.
En líka um hluti sem þeim mislíkar og eru leiðir og reiðir yfir. Eftir að bæjarlínunni var lokað og allir fengu eigið símanúmer, varð skyndilegur brestur á fréttum í bænum. Þá stofnuðu nokkrar eldri konur bæjarins tvær fréttastofur.
Rauthers og Tass voru þær kallaðar.
Konurnar bjuggu á vel út völdum stöðum í bænum, t.d. götuhornum eða hátt uppi í brekku með gott útsýni yfir bæinn. Aðalskrifstofur beggja fréttastofanna var við bandið í Sigló síld.
Þessi fréttamennska fyllti upp í þessa skrítnu mannlegu þörf sem við öll höfum.
Þ.e.a.s. finna eitthvað til að "fussa og sveigja" yfir, finna að fari annarra og finna að maður sjálfur sé kannski pínu betri. Facebook er fullt af svona fréttum og kommentum.
Í lýðræðisþjóðfélagi hafa allir rétt á að hafa skoðanir, en stundum finnst mér við gleyma að við höfum líka skyldu til að taka þátt í því samfélagi sem við lifum í og skyldu til að koma með hugmyndir og tillögur sem breyta og bæta okkar umhverfi og líf.
það er eitthvað svo auðvelt við það að bara nöldra og finna að!
Við þurfum að spyrja okkur sjálf: Hvernig sköpum við gott mannlíf í okkar fallega firði/fjörðum? Jú, við þurfum að tala saman og komast að einhverri niðurstöðu sem við erum sammála um.
Hver á Hólshyrnuna?
Fjörðurinn í hyllingum næturinnar.....(sumar 2013)
Það er augljóst að það ríkir einhverskonar stefnuleysi og óreiða í þessum málum, eins og að þetta hafi ekkert verið rætt.
Eins og ég sagði hér fyrir ofan um réttlætið og raunsæi er það ljóst að þessi málefni skipta íbúa Fjallabyggðar miklu máli, þó svo að að mörg af þessum málum séu ekki beinlínis í höndum bæjarstjórnar, meira í höndunum á stjórnum íþróttafélagana.
En bærinn styrkir þessa starfsemi og hlýtur að hafa einhverskonar stefnumörkun í íþrótta og félagsmálum bæjarbúa, Eða hvað?
Bæjarfélag með metnað, sem vill lokka til sín ungt og menntað fólk, verður að hafa klára stefnu í þessum málum, þetta fólk sem og allir bæjarbúar vilja hafa þjónustu fyrir börnin sín sem besta. Samt að jafnræðis sé gætt þegar kemur að kvenna sem og karla áhugamálum.
Það á líka að vera gott og ríkt félagslíf fyrir eldriborga bæjarins.
Þurfum við nokkuð að vera að rífast um tvennt af öllu, það er t.d hvorki umhverfisvænt eða raunsætt að keyra börnum yfir 30 km fram og til baka til þess eins að fara í sund eða spila fótbolta.
Í staðin fyrir að segja "Annað hvort eða ekki" þá hljótum við að geta safnað saman öllum aðilum sem vinna að velferð og vellíðan borgara Fjallabyggðar og segja við þá:
"Komdu með óskalista og rök fyrir því hvað ykkur vantar í ykkar geira og við munum ekki segja NEI við neinu, heldur reyna að gera raunsæjan framkvæmda lista þar sem sumt verður að bíða aðeins lengur en annað, enn allt verður með tímanum gert.
Ég trúi því að Fjallabyggð getur orðið sumar og vetrarparadís fyrir bæjarbúa sem og ferðamenn, ef við bara vinnum saman og sköpum hluti sem byggja upp gott líf fyrir okkur bæjarbúa fyrst og fremst og hinir mega svo bara koma og vera með og njóta.
Við verðum að læra að gleðjast yfir framförum í báðum fjörðunum, dáðst að fólki sem er duglegt og segja flott hjá þér/ykkur og sjá að allt þetta gagnast okkur öllum.
"Af hverju er hann, sumardrengurinn frá Sverige að skipta sér af og hafa skoðanir á þessum málum." Gæti einhver verið að hugsa.
Jú, vegna þess að þetta skiptir mig máli, hér er ég fæddur og uppalin og ég vil flytja heim!
Myndir og texti: NB Ath. Tenglarnir hér neðar, ekki enn tengdir við þessa síðu. Er að vinna við tengla
Tengdar fréttir