Einherji, 23. júlí 1936
Búið er að salta hér á sumum söltunarstöðvum eins mikið og saltað var hér í allt fyrrasumar.
Um síðustu helgi var hér landburður af síld svo að á sumum söltunarstöðvum var unnið samfleytt dag og nótt en 2 undanferna sólarhringa hefir aftur á móti mjög lítið af síld borist að.
Virðist nú eins og sakir stands frekar vera að dofna yfir veiðinni í bili.
Í gærkvöldi var heildarsöltun hér a Siglufirði orðin sem hér segir:
Á mánudaginn var höfðu Síldarverksmiðjur ríkisins framleitt mjöl og lýsi sem hér segir:
Lýsi og mjöl sem ríkisverksmiðjurnar hér á Siglufirði fengu úr þeirri síld sem þær höfðu unnið fram að s.l. mánudag, skiptist þannig niður:
Í gærkveldi höfðu Ríkisverksmiðjurnar tekið á móti síld sem hér segir:
Þrjú hæstu skip hjá Síldarverksmiðjum ríkisins eru:
M.s. Eldborg
E.s. Fróði
E.s. Ólafur Bjarnason
4.737 mál
4.529 mál
4.443 mál
Nokkur skip hafa komið inn í nótt og morgun með sæmilegan afla, en lítið af þeirri síld mun hæf til söltunar.