Í litlu sætu frægu húsi í Kvósinni á Hofsós býr Siglfirðingurinn Kristinn Halldórsson (Kiddi Gósa málara) og konan hans Jófríður Hauksdóttir ásamt fullt af barnabörnum. Það er minnst sagt líf og fjör í þessu pínulitla húsi.
Kiddi Gósa er vélstjóri og vann hann lengi á skipum Þormóðs Ramma áður en þau hjónin fluttu suður fyrir mörgum árum síðan.
Faðir hans var Halldór Kristinsson, en hann var ævinlega kallaður Gósi Málari og móðir Kidda er Björg Pálína Jóhannsdóttir (Palla Jó).
Litla húsið í kvosinni er frægt hús.
Braut. Litla húsið í Kvosinni, fréttaritari stendur við svalirnar með 8 af 9 íbúum hússins á svölunum.
(Mynd Kristín Sigurjónsdóttir)
Kiddi og Jófríður keyptu þennan húshelming sem sumarhús árið 2003 en þetta hús heitir Braut og stendur beint á móti Sólvangi sem var heimili afa og ömmu Jófríðar.
Þau hafa smá saman verið að laga þetta hús og Kiddi vill undirstrika að sú skemmtilega tilviljun að húsið sé svona tvískipt í litum, þeirra helmingur gulur og hinn bleikur botni alls ekki í neinu ósætti við nágrannan, þvert á móti kemur þeim vel saman.
Kiddi segir ennfremur að ástæðan fyrir að hann klæddi sinn helming var að sumir útveggir voru að hruni komnir og það var aldrei rætt að hinn eldri maður sem á þarna sitt lögheimili gerði slíkt hið sama.
Þess vegna hefur þetta litla skrítna hús vakið athygli allra sem koma niður í Kvosina á Hofsós á leið sinni á Vesturfarasafnið, húsið prýðir líka forsíðu á vel seldri Ljósmyndabók sem heitir Iceland Small World, sjá litlu myndina hér fyrir ofan.
Kiddi; Jófríður og barnaskarinn á svölunum.
Stoltur afi með tvö af barnabörnunum að þvo bátinn eftir sjóferð. Húsið Sólvangur í baksýn.
Barnabörn, já það sést svo sannarlega að í þessu litla sæta húsi eru barnabörn eftirréttur lífsins.
Kristinn Halldórsson (Kiddi Gósa) eðalafi, þessi litli sem sést í þarna á myndinni fylgir afa sínum út um allt, má ekki missa afa sinn úr augsýn eitt augnablik.
Jófríður Hauksdóttir, stolt amma með þann minnsta í fanginu. Þriggja mánaða sætan snáða.
Myndir og texti: Jón Ólafur Björgvinsson - Fréttasími: 842 - 0089
Tengdar fréttir