Jóna Stefánsdóttir

Jóna Guðbjörg Stefánsdóttir

Jóna Stefánsdóttir fæddist á Sigríðarstöðum í Flókadal í Fljótum 23. maí 1927.

Hún lést á Landspítalanum 22. maí 2014.

Jóna Stefánsdóttir var ein af fjórtán börnum 

Stefán Aðalsteinsson bónda og

Kristín Jósepsdóttir. 

Systkini hennar voru:

 

Jóhann Helgi Stefánsson, 

Guðlaug Ólöf Stefánsdóttir, 

Helga Anna Stefánsdóttir,

Jósep Stefánsson

Svanmundur, 

Sigrún, 

Sigríður Helga, 

Jakobína Kristín, 

Albert Sigurður Stefánsson, 

Guðrún Svanfríður, 

Jón Sigurður Stefánsson og 

Gísli Rögnvaldur Stefánsson. 

Guðrún Svanfríður og Jakobína Kristín lifa einar systkinanna. 

Stefán og Kristín höfðu flust með börnin frá hverju býlinu til annars eins og fátækra leiguliða var háttur: Minni-Reykir, Borgargerði, Sjöundastaðir, Hólar, aftur Borgargerði, Sigríðarstaðir, Sigríðarstaðakot og loks aftur Sigríðarstaðir. 

Jóna ólst upp í foreldrahúsum uns fjölskyldan fluttist til Siglufjarðar. Hún stundaði snemma öll venjuleg heimilis- og bústörf í sveitinni. Nam við Húsmæðraskólann á Laugalandi veturinn 1947-1948.

Jóna giftist í desember 1948 

Kristfinnur Guðjónsson ljósmyndari, f. 27. nóvember 1896, d. 19. mars 1974. 

Sonur þeirra er 

Örlygur Kristfinnsson, f. 21. mars 1949.

Fyrri kona hans Valgerður Erlendsdóttir og

sonur þeirra er 

Seinni kona Örlygs er 

Guðný Róbertsdóttir og börn þeirra eru 

Árið 1950 gengu Jóna og Kristfinnur 

Alda Aðalsteinsdóttir, f. 4. júní 1948, í foreldrastað. 

Alda er dóttir Sigríðar, systur Jónu, sem hafði þá nýlega misst eiginmann sinn frá fimm börnum þeirra.

Fyrri eiginmaður Öldu var

Ólafur Bæringsson, d. 1982, og eru

synir þeirra

Sambýlismaður Jónu 1980-1988 var

Gústaf Júlíusson, f. 1. júlí 1918, d. 9. ágúst 1988.

Seinni sambýlismaður Jónu, 1989-2011, var

Egill Sigurðsson, f. 24. janúar 1919, d. 27 desember 2011.

Jóna Guðbjörg stundaði margháttuð störf um ævina, svo sem ljósmyndaiðn á Ljósmyndastofu Siglufjarðar, síldarsöltun og verslunarstörf.

Síðustu sautján árin bjó hún á Dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík.

Jóna Stefánsdóttir

Ljósmynd: Kristfinnur