Hinrik Thorarensen
Hvað er þetta,
á þessi Thorarensen allt hér í bæ?
á þessi Thorarensen allt hér í bæ?
Hinrik Thorarensen, var víða með fingurna. Fyrst sem sérmenntaður barnalæknir og síðan afkastamikill athafnamaður. Hann rak ma. læknastofu, hænsnabú, skóverslun,umboð Tóbaksverslunar ríkisins, Hótel, kaffihús, veitingastði og sjoppur og svo auðvitað Nýja Bíó.
Ein brosleg saga sem kom oft frá munni manna á þessum tímum og raunar lengi eftir að hann yfirgaf fjörðinn okkar.
Sagan hefur verið sögð í ótal eintökum og breytingu manna á milli.
Sú saga sem ég heyrði sem ungur drengur, kemur hér á eftir.
Sjómaður nokkur hafði orðið eftir er skip hans (síldarbátur) lét úr höfn, en sjómaðurinn var drukkinn og hafði ráfað um í reiðuleysi. Þar á meðal á einni af bryggjunum þar sem hann féll í sjóinn.
Honum var bjargað um borð í annað veiðiskip, og af honum þurrkuð fötin á meðan hann svaf af sér ölvímuna.
Þegar hann var vakin og hafði klætt sig í nýþurrkuð föt sín uppgötvaði hann að enga skó átti hann. Hann hafði verið í klofháum bússum en misst þær í sjóinn við fall sitt í sjóinn kvöldið áður.
Hnirik Thorarensen -Ljósm. Kristfinnur.
Hann fékk lánað skó hjá einum skipverjans og fór í land og að sjálfsögðu grút timbraður eftir drykkjuna daginn áður.
Hann mætti manni og spurði hann hvar hann gæti fengið eitthvað sterkt til hressingar. Honum var bent á Thorarensen, hann gæti örugglega reddað honum um spíra. Það gekk eftir og sjómaðurinn helti sig fullann, en þó svona „rétt mátulega“
Hann hafði fengið upplýsingar hjá umboðsmanni bátsins sem hann var á að báturinn hans væri á veiðum austur af Grímsey og kæmi væntanlega næsta dag til Siglufjarðar. Hann fékk peninga hjá umboðsmanninum og var bent á Hótel Siglunes, sem væri í eigu Thorarensen.
Þangað fór hann og fékk sér herbergi. Svo fékk hann sér að borða á veitingastað, þar sá hann stórann stæðilegan mann og spurði þernuna svona af forvitni hver þetta væri.
Þetta er Thorarensen, hann á staðinn, svaraði stúlkan. Seinna spurði hann mann hvar bíóið væri. Honum var bent á Nýja Bíó, þangað fór hann. Þar sá hann Thorarensen, og spurði nálægan. Hvort Thorarensen ætti bíóið. Svarið var auðvitað já.
Eftir að sýningu lauk, frétti hann af dansleik sem væri hjá Hótel Siglunes, sem Thorarensen ætti, hvað er þetta, á þessi Thorarensen allt hér í bæ?
Hann fór á dansleikinn, þá orðinn nokkuð ölvaður og lenti þar í slagsmálum, sem lauk með því að læknir var ræstur og sjómaðurinn fluttur hálf meðvitundarlausog illa blóðugur til læknis.
Hann rankar við sér er verið var að gera að sárum hans og sér þá andlit Thorarensen. Honum brá ylla, en spurði svo í rælni. Ertu læknir líka?
Já svaraði Thorarensen.
Þar sem sjómaðurinn sem enn var allslompaður, en saklaus af slagsmálunum sem hann hafði óvænt blandast í, þá flutti lögreglan hann til herbergis síns á hótelinu.
Þegar hann svo vaknaði að morgni, þá ákvað hann að hætta drykkju um sinn, þrátt fyrir timburmennina og eymsla í höfði eftir barsmíðarnar um nóttina.
Hann leitaði frétta af bát sínum og honum sagt að hann væri á leið til Siglufjarða með slatta af síld.
Hann fékk sér hádegisverð á sjoppu, og þar sá hann Thorarensen að tala við stafslið sitt. Hann spurði einskis, en hristi höfuðið.
Þá mundi hann eftir því að honum vantaði bússur og spurði næsta mann hvar hann gæti fengið slíkar.
Svarið var einfalt og var á bent á og sagt hjá Thorarensen í Skóbúðinni.
Ekki segir meira af þessu ævintýri sjómannsins
------------------------------------------------------
Útsvarsskráin hér fyrir neðan frá árinu 1938 - þar sem Thorarensen var oftar en ekki sá hæst greiðandinn
BRAUTIN 7. maí 1938
Útsvarskráin
H. Thorarensen 9400.00
Olíuverzlun íslands h.f. 8500.00
Shell á íslandi h.f. 7000.00
Verzl. Halld. Jónasson 5000.00
Ásg. Pétursson h.f. 3700.00
Kaupfélag Siglfirðinga 3700.00
Steindór Hjaltalín 3500.00
Ingvar Guðjónsson 3400.00
Ole Tynes 3300.00
Ólafur Ragnars 3200.00
Halldór Kristinsson 2700.00
Kjötbúð Siglufjarðar 2600.00
Sveinn Hjartarson db. 2400.00
Aage Schiöth 2300.00
Hringur h.f. 2100.00
Sig.Kristjánsson konsúll 2100.00
Pétur Björnsson 2000.00
Verzlunarfél.Siglufjarðar 2000.00
Þorm. Eyólfsson 2000.00
Gísli Halldórsson 1800.00
Steingr. Einarsson 1500.00
Bjarni Kjartansson 1450.00
Gestur Fanndal 1450.00
Egill Stefánsson 1350.00
Einar Jóhannsson & Co. 1300.00
Guðm. Hannesson 1300.00
Jóhann Stefánsson 1200.00
Hannes Jónasson 1000.00
ísafold (söltunarfélag) 1000.00
Páll Einarsson 1000.00
-----------------------------------
Takið eftir því, hvað "vantar" í útsvarsskrána hér fyrir ofan.
Það eru nöfn margra síldarsaltenda,sem hér stunduðu umfangsmikinn rekstur yfir sumartímann vegna síldarsöltunar ofl. sjást ekki, frekar en nafn Síldarverksmiðja ríkisins, sem eru ekki á skránni, enda greiddu þessir aðilar ekki útsvar, þó stór hluti, allra tekna sem aflað var á síldarævintýrinu, færi í vasa viðkomandi einstaklinga og fyrirtæja.
Ekki treysti ég mér til að umreikna níuþúsund þáverandi krónur yfir í núverandi verðgildi. En ljóst má vera að það er dágóð fúlga á gengi dagsins í dag. SK- árið 2023