Pálmi Pálsson

Pálmi Þór Pálsson stýrimaður/skipstjóri

Pálmi Pálsson fæddist að Hömrum í Grundarfirði 27. apríl 1940.

Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. desember 2012. 

Foreldrar hans voru 

Páll Guðfinnur Þorleifsson, skipstjóri og bóndi á Hömrum, og 

Ólöf Þorleifsdóttirhúsmóðir.

Pálmi Þór var yngstur fjögurra systkina, sem eru 

Sigríður, Leifur (látinn),

Hörður og

Jarþrúður Guðný.

Eftirlifandi eiginkona Pálma Þórs er 

Soffía Friðgeirsdóttir frá Siglufirði, foreldrar hennar voru 

Sigurlaug Skúladóttir húsmóðir og 

Friðgeir Árnason vegaverkstjóri.

Börn Pálma Þórs og Soffíu eru: 

1) Gunnar Þór Pálmason,

maki Ida Surjani, sonur þeirra er

2) Haukur Örvar Pálmason,

maki Kristín Haraldsdóttir,

dætur þeirra eru

3) Sunna Guðný Pálmadóttir,

maki Brynjar Þór Sumarliðason, synir þeirra eru

Pálmi Þór hóf ungur sjómennsku á bátum frá Grundarfirði og síðar á farskipum erlendis.

Árið 1966 lauk hann prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Pálmi Þór var stýrimaður á síldarflutningaskipinu Haförninn 1966-1971

Á árunum 1971-1974 var Pálmi Þór stýrimaður og afleysingaskipstjóri á m/s Ísborg og m/s Sæborg.

Árið 1974 stofnaði Pálmi Þór ásamt fleirum Skipafélagið Nes h/f.

Hann var skipstjóri á fyrsta skipi félagsins m/s Svanur og framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá 1980 til 2010.

Pálmi Pálsson