Árið 1946 - Rauðkumálið - 3

Rauðkurógurinn

Einherji 10. febrúar 1946

Út af meðmælum þremenninganna með mér, og einkum Rauðkurógi Þormóðs Eyjólfssonar, fylgja hér með staðfest afrit af fundargerðum Rauðkustjórnar frá 28. apríl 1944 og frá 24. júní s.á. 

Þau hljóða þannig: 

“Ár 1944, föstudaginn 28. apríl hélt stjórn Rauðku fund að Hótel Vík i Reykjavík.

Allir stjórnarmeðlimir og framkvæmdarstjóri voru mættir". 

Fyrirtekið: 

Svohljóðandi tillaga kom fram: 

Stjórnin samþykkir að fela Lárusi Jóhannssyni hæstaréttarlögmanni, að afla 4,5 milljón króna láns til endurbyggingar Rauðku, 2½ milljón króna lánsins með 4,5% vöxtum og 2,0 milljón krónur með 5% vöxtum. 

Fyrra lánið sé með fyrsta veðrétti til 15 ára afborgunarlaust í fyrstu 7 ár og síðara lánið til 7 ára með 2 veðrétti. Lárus áskilur sér 2% í ómakslaun. 

Tillagan samþykkt með öllum atkvæðum.

Guðmundur Hannesson bæjarfógeti - Ljósmynd: Kristfinnur

Fleira ekki fyrir tekið. Upplýsingar staðfestar. 

Fundi slitið. 

 -----------------------------------------------------------

Laugardaginn þann 24. júní 1944 var haldinn annar fundur í stjórn “Rauðku.” 

Fyrirtekið:  

Svohljóðandi tilaga kom fram:

Með því að ákveðið er, að framkvæmdastjóri fari til Reykjavíkur næstu daga felur stjórn Rauðku honum að ganga endanlega frá samningum um þóknun til handa Lárusi Jóhannessyni lögfræðingi, vegna aðstoðar hans við lántöku í sambandi við endurbyggingu “Rauðku,” enda leiti hann álits hæstaréttarlögmannsins G.I. Guðmundssonar um málið.

Tillagan samþykkt með 3 atkvæðum.

Þeir Kr. Sigurðsson og Axel Jóhannsson greiddu ekki atkvæði. 

--------------------------------- 

Forsendur fyrri fundargerðarinnar urðu aldrei fyrir hendi - Lárus útvegaði aldrei það lán, sem þar var gengið út frá. 

Annað en þessar fundagerðir hefir gamla Rauðkustjórnin ekki samþykkt um ómakslaun Lárusar.
Sjálfur hefi ég aldrei átt svo mikið sem samtal við Lárus út af ómakslaunum hans, því síður samið við hann um þau, eins og verið er að breiða út. Ég hefi ekki átt annan þátt í þessu en þann; er fundargerðin frá 24. júní ber með sér og þar er málið lagt undir álit merks óvilhalls lögfræðings. 

Ég endurtek:

Ég hefi aldrei átt svo mikið sem tal við Lárus um ómakslaun hans, því síður samið við hann. 

Það ætti því að vera eitthvað annað, sem meðmælendurnir eiga við, en gaman væri að heyra. 

Guðmundur Hannesson