Ólafur Jóhannsson

Ólafur Guðmundur Jóhannsson, aðalvarðstjóri

Ólafur Jóhannsson varðstjóri á Siglufirði, fæddist á Skeiði í Fljótum í Skagafirði 17. október 1927.

Hann lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 28. júní 2013.

Foreldrar hans voru 

Jóhann Benediktsson, bóndi á Skeiði og víðar í Fljótum, f. 14. júní 1894, d. 9. júní 1964 og 

Sigríður Jónsdóttir, f. 14. maí 1890, d. 14. okt. 1939. 

Systkini hans eru: 

Sóley, 

Jónína, 

Stefán, 

Ingibjörg, 

Árný, 

Björg, 

Sæmundur, 

Einar, og 

Jón, 

þau eru öll látin. Eftirlifandi systkini eru 

Guðmundur Jón, 

Andrés Stefán og 

Sigurður Þorsteinn (samfeðra).

Ólafur Jóhannsson var kvæntur 

Önna Björnsdóttir, f. 17. feb. 1921 á Siglunesi, búsett á Siglufirði. Þau skildu. 

Foreldrar hennar voru 

Björn Jónsson, bóndi á Siglunesi, f. 8. nóv. 1885, d. 7. sept. 1949, og 

Sigrún Ásgrímsdóttir f. 27. júní 1893, d. 17. feb. 1973. 

Börn þeirra:

1) Björn Sigurður Ólafsson (Björn Ólafsson), f. 17. júní 1952, eiginkona hans er María Jóhannsdóttir, börn þeirra eru

2) Kjartan Smári Ólafsson, f. 24. apríl 1954,

sambýliskona hans er Þóra Sigurgeirsdóttir, dætur þeirra eru

3) Sigrún Gunnhildur Ólafsdóttir, f. 27. maí 1956, synir hennar eru

4) Sigríður Elva Ólafsdóttir, f. 9. nóv. 1958,

maki Guðbrandur Ólafsson lögregluþjónn.

Börn þeirra eru

5) Sóley Ólafsdóttir, f. 9. des. 1960,

maki Björn Z. Ásgrímsson.

Börn þeirra eru

6) Ólafur Ásgeir Ólafsson, f. 10. júlí 1963,

maki Pamela Collins Ólafsson.

Synir þeirra eru:

Seinni kona Ólafs er 

Sigríður Kristín Björnsdóttir (Sigríður Björnsdóttir), f. 11. júlí 1940 á Siglufirði.

Foreldar hennar: 

Björn Tryggvason, f. 11. apríl 1911 á Ísafirði, d. 4. jan. 1962 og 

Halla Jóhannsdóttir, f. 18. ágúst 1917 á Siglufirði, d. 18 maí 1975. 

Fyrir átti Sigríður börnin:

 

1) Björn Jónsson, 

2) Sigurjón Jónsson, 

3) Guðmund Jónsson, 

4) Kristin Jónsson, 

5) Valborg Jónsdóttir 

6) Sigrún Jónsdóttir og 

7) Jóhann Valberg Jónsson.

Ólafur hóf störf í lögreglunni á Siglufirði 1. maí 1947 og starfaði þar til 1974, er ríkið tók við löggæslu af Siglufjarðarkaupstað 1948. Ólafur starfaði óslitið í lögreglunni í meira en 50 ár, eða þar til að hann hætti störfum 17. okt. 1997, fyrir aldurs sakir.

Ólafur starfaði áður sem bifreiðastjóri, auk þess við ökukennslu, fjárbúskap og verkamannavinnu með lögreglustarfinu. 

Ólafur var virkur í félags- og trúnaðarstörfum. Hann var formaður Starfsmannafélags Siglufjarðarkaupstaðar í nokkur ár og hefur gegnt flest öllum trúnaðarstörfum innan Lögreglufélags Norðurlands vestra. 

Hefur setið á þingi BSRB og síðan á þingum Landssambands lögreglumanna. Formaður í Lionsklúbbi Siglufjarðar og ritari. Stjórnarformaður Siglufjarðardeildar KEA. 

Ólafur Jóhannsson (2006)