Guðbrandur Sigurbjörnsson

Guðbrandur Þórður Sigurbjörnsson (Akra Brandur)

Guðbrandur Sigurbjörnsson, Túngötu 38 Siglufirði, fæddist að Ökrum í Fljótum 18. febrúar 1916. Hann lést á sjúkrahúsi Siglufjarðar hinn 9. júní 2001.

Foreldrar hans voru 

Sigurbjörn Jósefsson bóndi að Ökrum og Langhúsum, Björnssonar bónda á Stórureykjum Fljótum, f. 5.1. 1884, d. 11.5. 1968 og 

Friðrikka Magnea Símonardóttir Márussonar bónda áFyrirbarði í Fljótum, f. 8.10. 1877, d. 23.9. 1979.

Systkini Guðbrands : 

Jósef Sigurbjörnsson, f. 1908, d. 1997.

Björn Sigurbjörnsson, f. 1913, d. 1988. 

Jón Sigurbjörnsson, f. 1914, d. 1987. 

Lovísa Sigurbjörnsdóttir, f. 1915, d. 1995. 

Hermína Sigurbjörnsdóttir, f. 1916, 

Gísli Sigurbjörnsson, f. 1919, d. 1990. Ríkey, f. 1922.

Hinn 6. nóvember 1937 gekk Guðbrandur að eiga 

Hulda Regína Jónsdóttir, f. 29. júní 1916.

Foreldrar hennar voru

Jón Kristjánsson frá Lambanesi í Fljótum og 

Stefanía Guðrún Stefánsdóttir af Róðhólsætt.

Guðbrandur og Hulda eignuðust fjórar dætur sem eru: 

1) Laufey Alda Guðbrandsdóttir, f. 6. maí 1938, búsett á Sleitustöðum Skagafirði,

maki Jón Sigurðsson bílstjóri og eiga þau fjögur börn. 

2) Elva Regina Guðbrandsdóttir, f. 30. júlí 1941, búsett í Reykjavík,

maki Friðleifur Björnssoni rafvirkji og

eiga þau tvo syni,

3) Alma Elísabet Guðbrandsdóttir, f. 17 mars 1949, búsett í Kópavogi,

maki Páll Þórðarson og

eiga þau þrjú börn,

4) Bryndís Sif Guðbrandsdóttir, f. 26. júní 1958, búsett í Grindavík,

maki Þorsteinn Símonarson skipstjóri og

eiga þau þrjú börn,

Barnabarnabörnin eru orðin 17.

Guðbrandur vann ýmiskonar verkamannavinnu, á yngri árum vann hann við múrverk og smíðar.

Í nokkur ár vann hann í Síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði og einnig í tunnuverksmiðjunni á Siglufirði.

Síðustu árin vann hann hjá Kaupfélagi Eyfirðinga og var í stjórn félagsins í mörg ár.

Alþýðuhúsið á Siglufirði rak hann í 12 ár.

Góður bridgemaður var hann og vann til margra verðlauna. 

Guðbrandur Sigurbjörnsson