Ýmsir molar
Íslandskvikmyndin var sýnd hér á dögunum. + Nýtt bíóhús
SÍLDIN 5. ágúst 1939
Mörg skínandi falleg atriði eru í myndinni s.s. fossarnir og laxastökkin, eins ýmis atriði úr herpinótaveiðinni; síldartorfan, háfunin ofl. Mörg atriði er aftur á móti leiðinleg og ekki sýnandi ókunnugum, eins og td. ýmis sóðaskapur og hirðuleysi, sem sést alltof vel í kaflanum um síldarverkunina.
Myndatökumaðurinn, en það er: HRAÐINN; Siglufjarðarhraðinn.
það er eins og valin hafi verið hægasta vinnan og silalegustu handtökin. Ein kona sást þó hausskera og leggja niður. síld af mesta myndarskap.
Hitt var bara "puð". Hvers vegna fékk maður ekki að sjá nót kastað og "snurpað"?
það er þó sýningarvert. Eða þá frákeyrslu við grófsöltun, eða kverkun- og niðurlagningu í fyrstu tunnur við grófsöltun, svo sem 50 stúlkna röð.
Það mundi hvarvetna vekja hrifningu. þarna var sýnt mikið af lélegri vinnu lítið af góðri. Fólkið, bæði sjómenn og síldarverkunarfólk, sem sást á myndinni, var hraustlegt- og menningalegt.
Ef jafnframt hefði verið sýnt, hvernig það gat unnið hraðast og best, var hægt að afla sér með því virðingar og trausts í útlöndum, eins og mig minnir að einhver blöð hafi talið að umrætt myndarkorn væri líklegt til að gera.
Engin undirskrift
------------------------------------------------------------
Einherji 15. júní 1944
Siglufjarðarbíó.
Fyrir nokkrum dögum tók hér til starfa nýtt bíó, er nefnist Siglufjarðarbíó.
Er bíóið starfrækt í Alþýðuhúsinu, og eru það verkalýðsfélögin "Þróttur" og "Brynja" sem starfrækja bíóið. Húsið hefur verið málað, salur stækkaður og bætur. Sæti eru stoppuð og rúmgóð og eru sæti fyrir um 180 manns.
Sæti og annar útbúnaður, svo og hreinlæti og umgangur allur í húsinu er til mikilla bóta frá því sem Siglfirðingar hafa átt að venjast frá Nýja-Bíó, enda var ekki úr háum söðli að detta í þeim efnum.
Vonandi skapast heilbrigð samkeppni milli bíóanna um aukinn þrifnað og reglusemi í hvívetna.
Framkvæmdastjóri Siglufjarðarbíós er Þórhallur Björnsson.