Haraldur Árnason, SHELL

Haraldur Árnason, SHELL

Haraldur Árnason fæddist í Lambanesi í Fljótum 4. maí 1922.

Hann lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 29. desember 2010. 

Foreldrar hans voru 

Guðbjörg Kristinsdóttir ljósmóðir f. 3.10. 1898, d. 1983 og 

Árni Kristjánsson skipstjóriá Siglufirði f. 29.9. 1891, d. 1969.

Systir Haralds er 

Freyja Árnadóttir f. 28.10. 1926 og fósturbróðir 

Pétur Pétursson f. 14.6. 1936, d. 1987. 

Foreldrar Haralds fluttust til Siglufjarðar þegar hann var barn að aldri og þar ólst hann upp. 

Eiginkona Haralds er 

Karólína Friðrika Hallgrímsdóttir f. 26.7. 1921. 

Þau giftust 28.10. 1944. 

Foreldrar Karólínu voru

Ragnheiður Söebech kaupmaður f. 10.3. 1894, d. 1977 og

Hallgrímur Þorvaldsson ökumaður á Akureyri f. 27.9. 1893, d. 1925, og

fósturforeldrar

Ólöf Jónsdóttir f. 16.5. 1900, d. 1984 og 

Eyþór Hallsson skipstjóri á Siglufirði f. 4.8. 1903, d. 1988. 

Börn Karólínu og Haralds eru 

1) Ólöf Þórey Haraldsdóttir f. 21.6. 1943,

maki Ásgeir Sigurðsson, f. 1937. 

2) Helga  Haraldsdóttir f. 12.4. 1951,

maki Erlingur Björnsson f. 1944,

þeirra dætur

3) Ragnheiður Haraldsdóttir f. 6.12. 1956,

sonur hennar og

Guðmundur Þorsteinsson f. 1954 er

4) Árni Haraldsson f. 11.1. 1959,

maki Ragnheiður Árnadóttir f. 1963,

þeirra börn

5) Eyþór Haraldsson f. 1960. 

Haraldur lauk gagnfræðaprófi og vann í verslun Gests Fanndals, á bílastöðinni, var deildarstjóri hjá Kaupfélagi Siglfirðinga 1944-1958, rak eigin verslun, Ísbarinn, 1957-1967 og starfaði hjá Skeljungi (SHELL)1967-2002, umboðsmaður frá 1988.

Haraldur var mikill útivistar- og veiðimaður, stundaði laxveiði og skotveiðar á sjó og landi. Hann var einn af stofnendum Stangveiðifélags Siglufjarðar og heiðursfélagi þar og sat í stjórn klakstöðvar félagsins.

Hann var félagi í Bridsfélagi Siglufjarðar um áratugaskeið og tók þátt í mörgum mótum og náði þar oft ágætum árangri enda góður bridsspilari. 

Haraldur gekk ungur til liðs við Alþýðuflokkinn og fylgdi honum að málum alla tíð og seinna Samfylkingunni, og var virkur á fundum og í starfi í ýmsum nefndum.

Haraldur Árnason