Skarðskmót

Skrifað í október 2015 

Ég rakst á þessi stórskemmtilegu glös fyrir stuttu síðan þegar mér datt í hug að kíkja inn í hið óborganlega og ómissandi magasín "Góða Hirðinn", en þar sem áletrunin er ekki mjög vel sýnileg, skal upplýst að fyrir ofan skjaldarmerki Siglufjarðar stendur "Skarðsmótið 1976".


Ég hugsaði mig ekki mjög lengi um og festi kaup á þeim þrátt fyrir að mig vantaði svo sem ekkert endilega fleiri drykkjarílát. Kaupverðið var 10 kr. stykkið og þar sem stóð sæmilega á hjá mér akkúrat þá stundina, gat ég nokkuð auðveldlega greitt það út í hönd í reiðufé. 

Þegar heim kom datt mér í hug að fræðast svolítið um þetta tiltekna mót og niðurstöðurnar gera glösin jafnvel enn merkilegri og sérstakari, því í ljós kom að Skarðsmótið 1976 var síðasta punktamótið sem haldið var á þeim stað. Annars var Skarðsmótið á árum áður alltaf síðasta skíðamót keppnistímabilsins, nokkurs konar uppskeruhátíð og punkrurinn yfir i-ið, því það var haldið um Hvítasunnuna og oft orðinn lítill snjór í fjöllum.

Þetta ár áttu Siglfirðingar því miður mun færri menn og konur á verðlaunapalli en fáeinum árum áður þegar "við" bárum hreinlega ægishjálm yfir flesta aðra landsmenn þegar skíðaíþróttir voru annars vegar.

Enginn Siglfirðingur var í neinu af fimm efstu sætunum í stórsvigi karla, en Gústi Stefáns bjargaði því sem bjargað varð í þeirri grein og var í þriðja sæti í sviginu. Gamla kempan Jóhann Vilbergs var í þriðja sæti í alpatvíkeppni karla, en garpurinn Magnús Eiríksson var fyrstur í göngu karla og þar með eru siglfirstu nöfnin upp talin.

Athygli vakti að Steinunn Sæmundsdóttir Reykjavík, Aldís Arnardóttir Akureyri og Kristín Úlfsdóttir Ísafirði voru efstar í stórsvigi kvenna, svigi kvenna og alpatvíkeppni kvenna. Og ekki bara það, heldur var Steinunn alltaf efst, Aldís alltaf önnur og Kristín alltaf í þriðja sæti.