Markús Kristinsson

Markús Bergmann Kristinsson

Markús Kristinsson fæddist í Hafnarfirði 2. október 1930.

Hann lést á lungadeild Landspítalans Fossvogi 21. júní síðastliðinn (2008). 

Hann var sonur hjónanna 

Kristinn Bergmann Jónasson skipstjóri, f. 26.6.1899, d. 23.12. 1976 og 

Helga Markúsdóttir húsmóður og verkakonu, f. 31.1. 1906, d. 27.8. 2003. 

Hálfsystkini Markúsar samfeðra voru 

Kristjana Kristinsdóttir, 

Alma Kristinsdóttir og 

Halldór Kristinsson sem öll eru látin.

Markús Kristinsson kvæntist 2. október 1952 

Soffía Sigurðardóttir, f. 29.04. 1933,

dóttur hjónanna 

Sigurðaur Eiðsson sjómaður, f. 29.10. 1908, d. 15.11. 1989 og 

Ingileifur Fjóla Pálsdóttir húsmóður, f. 22.11. 1909, d. 1.8. 2007. 

Systkini Soffíu eru

Eiður, Hrafnhildur,

Páll og

Ragnar.

Markúsi og Soffíu varð sjö dætra auðið. 

Þær eru

1) Helga Markúsdóttir, f. 10.3. 1951 var

maki Rúnar Georgsson þau skildu, dóttir þeirra er

2) Fjóla Markúsdóttir, f. 19.6. 1952 var

maki Ásbjörn Blöndal, þau skildu og 

Tony Holm Pedersen, þau skildu, 

börn hennar eru

3) Hulda Markúsdóttir, f. 11.6. 1954 var

maki Bergsteinn Ásbjörnsson, þau skildu. 

Hún er gift Páll Eyvindsson,

synir hennar eru

4) Svala Markúsdóttir, f. 18.8. 1955 maki 

Leifur Jónsson,

börn þeirra eru

5) Lilja Markúsdóttir, f. 2.6. 1962

í sambúð með Lárus Bjarnarson

synir hennar eru

6) Árdís Markúsdóttir, f. 11.10. 1964 var

í sambúð með Sveinn Auðunn Jónsson sem er látinn,

börn hennar eru

7) Sædís Markúsdóttir, f. 9.2. 1975

maki Rafn Heiðar Ingólfsson

börn þeirra eru

                            Langafabörnin eru þrettán.

Markús var menntaður sem vélstjóri og starfaði sem slíkur um árabil hjá Eimskip og víðar. 

Hann var einnig sýningarmaður í nokkrum kvikmyndahúsum borgarinnar fyrr á árum. 

Hann starfaði sem eftirlitsmaður hjá Öryggiseftirliti ríkisins um 10 ára skeið.

Hann var verksmiðjustjóri Síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði í sjö ár og rak eigið fyrirtæki Valfóður ehf. í Ytri-Njarðvík um árabil.

Síðustu starfsárin ók hann strætisvögnum hjá Hagvögnum eða allt til 72 ára aldurs.

Skömmu eftir starfslok greindist hann með Parkinsonsveiki og var vistmaður á Sólvangi í Hafnarfirði frá desember 2007 til dauðadags. Markús var virkur félagi í Oddfellow-reglunni í 40 ár. Markús var mjög músikalskur og lék á harmonikku. Hann lærði þó aldrei á hljóðfæri en gat leikið af fingrum fram og lék oft fyrir dansi á böllum fyrr á árum og síðustu árin á jólaböllum hjá Oddfellow-reglunni.

Hann var yfirleitt hrókur alls fagnaðar á skemmtunum og hafði skemmtilega kímnigáfu sem fjölskylda hans og vinir fengu óspart að njóta. Markús var afburðagreindur og var mikill viskubrunnur og leituðu dætur hans og barnabörn gjarnan til hans ef þau þurftu að fá staðfestingu á einhverjum staðreyndum og fannst það jafngilda staðfestingu úr alfræðiorðabók.

Vegna Parkinson-sjúkdómsins naut Markús ekki þeirra lífsgæða sem allir hefðu kosið honum til handa síðustu æviárin en allt var gert til að létta honum lífið eins og kostur var. Laugardaginn 14. júní veiktist hann af illvígri lungnabólgu sem dró hann til dauða viku síðar.

Markús Kristinsson